Vikan


Vikan - 08.02.1962, Síða 4

Vikan - 08.02.1962, Síða 4
Ahlmann eldavélasamstæðan hefur náð miklum vinsældum vegna þess, að hún: 1. Uppfyllir ströngustu kröfur yðar, því nú er klukkurofinn bæði á bökunarofni og eldunarplötum. 2. Hefur sjálfvirkan hitastilli á hrað- suöuplötum, sem dregur úr hit- anum við suðumark niður í hæfi- legt hitunarstig. 3. Er úrvals Vestur-þýzk framlciðsla. Sighvatur Einarsson &^Co »S?l©Skipholti 15 — Sími 24133. liökunarofn nieð (írilli með Klukkurofa og einnig með glerhurð llraðsuðuplötur með klukkurofa AULMANN Móti bjór . . . . Kæri Póstur! Ég rakst á grein lijá þér, sem „Bjórvinur" skrifar, þar sem hann var að skora á samherja sína að láta til sín heyra. Þá fékk ég löng- un til að leggja orð í belg; þótt ég sé ekki i þeim flokknuin, sem hann vill heyra í. — Þó mikið sé búið að skrifa og tala um þennan drykk, þá verður þó aldrei hrýnt of mikið fyrir fólki að hugsa vel um, hvað það er að gera, ef hjórinn yrði leyfður hér. Ég get ekki skilið, hvað fullorðið fólk getur verið blint. Hver hugs- andi móðir, sem verður að láta börnin sín fara að heiman, er kvíð- in fyrir því, að þau lendi í siæm- um félagsskap, því svo sannarlega sjáum við daglega svo sorglega mirg dæmi þess, hve unglingar eru til.eiðanlegir til að reyna það, sem nýit er fyrir þeim, og fæstir sleppa að skaðlausu frá siíku fikti. Ég hef átt tal við vel hugsandi mann (sem er ekki bindindismað- ur). Hann er vel kunnugur bjór- sjoppum erlendis, og liann segist ckki óska þess, að slikt sæist hér. Ég tel alveg nógu margar gildrur lagðar fyrir okkar litlu þjóð, þótt bjórnum yrði sleppt. — Móðir. Svar til XXx: Ef þú segir satt og rétt frá, finnst mér maðurinn þinn eiga alla sökina, og þú get- ur alls ekki látið við svo búið sitja, einkum þar sem önuglynd'í mannsins þíns er farið að bitna á barninu frá fyrra hjónabandi. Hugsaðu þig samt vel um, áður en þú leggur út í skilnað. Mér finnst þú ættir að ympra á því við manninn þinn — helzt þeg- ar honum er vel til þín — að lík- lega væri skilnaður eina lausn- in, ef þetta breyttist ekki þegar til batnaðar. Ef hann er fús til þess, finnst mér sízt ástæða til þess að halda í hann. Svar til Einnar, sem elskar: Ég hélt það væri löngu úr móð að foreldrar réðu ráðahag dóttur sinnar. Þótt honum pabba þínum 'ítist vel á einhvern og einhvern skaltu alls ekki láta það verða til þess að þú gangir í það heil- aga með þessum einhverjum og einhverjum, nema þú beinlínis elskir hann. Ég skil satt að segja ekkert í honum pabba þínum. Ætli foreldrar hans hafi valið hana mömmu þína handa hon- um? „Komum í lyftuleik . . .“ Kæra Vika mín! Ég bý í stóru fjölbýflishúsi á sjöttu hæð. Það eru tvær lyftur í jiessu húsi — en önnur er að vísli svo til alltaf biluð. Nú er þáð svo í þessu húsi, að mikið álag er eðlilega á lyftunum — eða lyft- unni — á vissum tímum dagsins, og líklega myndi ein lyfta nægja, ef hún væri einungis notuð af nauð- syn. En þessi blessuð Iyfta virð- isl vera orðin eftirlætisleikfang barnanna í húsinu — og ég hef jafnvel orðið vör við, að það dríf- ur að krakka úr nærliggjandi hús- um, til þess að fara i „lyftuleik". Ég hef talað um þetta við hús- vörðinn, og hann lofar svo sem öllu góðu, en það verður yfirleitt lítið úr efndum. Við liöfum talað um þetta okkar á milli, nokkrir íbúar í húsinu, en við vitum ekkert hvert við eigum að snúa okkur í j vandræðum okkar. Er það ekki skylda húsvarðarins að sjá umi þetta? — Iíatrín. — — — Auðvitað verður hús- vörðurinn að sjá um þetta, en ég er hræddur um að hann hafi nóg að gera, ef hann fær ekki foreldrana í húsinu í lið með sér. Það verður auðvitað að taka hart á því, ef börnin halda upptekn- um hætti. En ef húsvörðurinn stendur engan veginn í sínu; stykki, finnst mér rétt, að íbú- arnir skjóti á fund og nái sér í nýjan og dugandi húsvörð. Ung í annað sinn . . . Kæri Póstur! Hvað á ég að gera við hana mömmu. Hún er farin að iita á sér hárið og mála sig eins og smástelpa, þótt hún sé komin á fimmtugsaldur. Mér finnst þetta svo asnalegt, en ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég þori varla að tala um þetta við hana. Ég er viss um, að það eru allir farn- ir að gera grín að henni. Svo reynir hún að haga sér alveg eins og skóla- stelpa, en það fer henni bara svo asnalega. Hvað á ég að gera, Vika mín? — Dóttir í öngum sínum. — — — Þú átt hreint ekki að gera neitt. Mömmu þinni líður vei, og það er fyrir mestu — það eru ekki allir, sem geta verið svona ungir á fimmtugsaldri. Ef þú heldur áfram að gera þér grillur út af þessu, líður ekki á löngu, áður en þú verður orðin eldri en hún móðir þín. Ólíkur smekkur ... Kæri Póstur! Hvernig á ég að tjónka við mann- f inn minn, hann er svo afskaplega gamaldags. Hann hefur eitthvað svi]iaðan smekk og ömmur okkar höfðu i dentíð. Sjálfur segir hann að ég sé snobb og vilji ekkert í kringum mig nema móderne hluti, þótt ég hafi ekkert vit á þvi, segir hann. Um daginn kom hann með hryllilegt málverk — eina af þess- um voðalegu glansmyndum — og hann vill endilega hengja hana upp, I stofunni hjá okkur. Stofan okkar er mjög nýtizkuleg (svo að þú sérð, að ég hef einhverju feng- ið að ráða), og þessi óskapnaður slcer sig svo úr, að það er eins og hann æpi á þá, sem i stofunni sitja. Hvernig í ósköpunum á ég að þroska með manninum minum svolítinn smekk, þetta málverk er farið að fara svo í taugarnar á 4 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.