Vikan


Vikan - 08.02.1962, Qupperneq 8

Vikan - 08.02.1962, Qupperneq 8
Framhaldssagan: Eins og ég gat um áOur, var Clarkskemmtileg borg, og ekki dró þaö úr góö skytta og fengsæll veiöimaöur, og það kom varla fyrir aö viö ættum ekki fasana í kæliskápnum. Stél- fjöörunum safnaöi hann handa börn- unum, sem notuðu þær í höfuðskraut aö hætti Indíána. Spá hans rættist vonum framar, ég varö sæmileg veiði- kona með tímanum, og hreint ekki svo litið upp með mér, þegar hann hét því að gefa mér nýjan Winchest- erriffil í viöurkenningarskyni. Það var í nóvember, 1958, að við ^flugum til New York til þess að vera viöstödd nokkrar kvikmynda- sýníngar og heimsækja gamla vini, og að sjálfsögðu hugðumst við kaupa ýmislegt til jólanna um leiö. Mér hefur alltaf fundizt New York ánægju minni, aö þetta var í fyrsta ^skipti, sem við Clark vorum þar saman á ferð. Þetta voru sannar- lega mikil viðbrigði eftir alla kyrrð- ina heima á búgarðinum; þarna rak hvað annað, leiksýningar, kvikmynda- sýningar, kvöldverðarboö og ýmis samkvæmi, og svo búöaferðirnar. Eitt sinn fór Clark meö mig til Cartiers, frægustu gimsteina- og skartgripaverzlun í New York; kvaö sig langa til að gefa mér einhverja fallega og verðmæta gjöf. Sjálfur forstjórinn, Jules Glaenzer, tók á móti okkur og sýndi okkur meö mikl- um virðuleik hin dýrustu djásn. Þaö var óskaplega heitt þarna inni, mér leiö illa, og þegar mér varð litiö á Clark, sá ég að hann var líka miöur sín sökum hitans. ,,Það er svo heitt hérna, Clark", sagöi ég formálalaust. „Eigum við ekki heldur að bregða okkur til Aber- crombie og athuga nýja riffilinn?" Svo kvöddum við og fórum, en for- stjórinn staröi á eftir okkur, eins og hann vissi ekki hvaðan á sig stóö veðrið. Seinna lét hann svo um mælt við mig, og gat þá ekki varizt brosi, að aldrei heföi sér til hugar komiö að hann ætti eftir að kynnast konu, sem tæki skotvopn fram yfir skart- gripi. Eg hef alltaf verið stolt af skipu- lagshæfileikum mínum, og þaö var því ekki nema eðlilegt aö öll skipu- lagsatriöi í sambandi við dvöl okkar I New York hvildu á mér — eins og til dæmis þaö, að viö kæmum i rétt samkvæmi á réttum tíma og mættum stundvíslega til þess aö vera viöstödd vissar kvikmyndasýningar. Eitt kvöld- ið vorum við að búa okkur til leik- húsferðar. Eg vakti athygli Clarks á því að Tailerhjónin hefðu boöið okk- ur að köma við heima hjá sér i leið- inni og þiggja bita og hressingu, svo bað væri óþarft fyrir okkur að snæða kvöldverð áður en sýning hæfist. Þettá kvöld var ofsarok og rign- ing, en sem betur fór höfðum viö yfir bæði bil og bílstjóra að ráða. Við komum til Tailershjónanna á ákveðnum tíma og hringdum dyra- bjöilunni. Húsbóndimi kom sjálfur til dyra. Hanh var snöggklæddur og ógreiddur, og ég sá ekki betur en kvenvera á hvitum slopp með lokka- pinna i hárinu flýði úr anddyrinu inn í næsta herbergi. Og svipurinn, sem húsbóndinn setti upp þegar hann Það var sama hverju Clark klæddist — hann var alltaf jafn karlmannleg- ur, og skipti ekki neinu máli þótt hann væri órakaður. Þessi mynd var tekin, er hann lék í kvikmynd- inni: „Across The Wide Missouri". sá okkur standa fyrir utan þröskuld- inn, sýndi óvefengjanlega að hann hafði ekki átt okkar von. ,,Ó, fyrirgefið", stamaði ég. „Kom- um við kannski of snemma?" Þá fór húsbóndinn að hlæja. „Jæja", svaraði hann, „ekki nema viku fyrr en ráðgert var . . .“ Þá varaðist ég að mæta augnaráði eiginmanns míns. Það kom á daginn, að þjónustu- fólkið hafði fengið frí þetta kvöld, og að hjónin ætluðu að fara að búa sig í samkvæmi. Þau máttu þó ekki heyra annað en við kæmum inn sem snöggvast og fengjum einhverja hressingu. Þegar við svo héldum af stað aftur, hafði Clark drukkiö nokk- ur glös af kokkteil, en ekki fengið matarbita, og þegar ég leit á arm- bandsúrið mitt, sá ég að við höföum ekki tíma til að fá okkur svo mikiö sem brauðsneið áður en sýning hæf- ist. E'kki bætti það heldur úr skák, að við höfðum snætt hádegisverð í fyrra lagi og i „léttara" lagi þennan dag. Þegar í leikhúsið kom, máttum við ekki seinni vera. Ég greip tækifæriö til að kaupa súkkulaði á meðan Clark var að afhenda yfirhafnir okkar í fatageymslunni; valdi allstórt stykki, þar sem ég vissi að við vorum bæði svöng, en þegar ég opnaði handtösk- una mína og hugðist borga, komst ég að raun um að ég var ekki með neina peninga. Ég sagði stúlkunni í sælgæt- issölunni, að ég yrði að bíða þang- að til maðurinn minn kæmi og greiddi skuld mína, og tók hún því vel; mátti þó varla vera að hlusta á mig, því að nú höfðu allir gestir og starfsfólk i anddyrinu borið kennsl á Clark Gable ög störðu á hann, og vitanlega þurfti hún að stara á hann líka. Þeg- ar hann svo kom til okkar og greiddi súkkulaðið, var rétt liðið yfir vesa- lings stúlkuna. „Er Clark Gable eig- inmaður yðar?" spurði hún. „Ham- ingjan góða, hvað ég er fegin því að þér skylduð ekki hafa peninga & yður . . .“ g VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.