Vikan - 08.02.1962, Page 21
Islenzk skáld eru fremur hikandi við leikritun, en nú
hefur eitt úr þeirra hópi, Sigurður A. Magnússon,
hrist af sér slenið og komið saman nýju leikriti sem
verður sýnt í Þjóðleikhúsinu eftir rúmaviku. Það heitir:
GESIAGANGUR
4 5
íslenzkir rithöfundar hafa verið dálítið
feimnir við leikritun fram til þessa og er
ástæðan ef til vill sú, að þeir þykjast ekki
þekkja skilyrði leiksviðsins nægilega vel.
Það er vel, að sjá fótum sínum forráð, en
gætnin getur líka orðið um of; enginn
verður óbarinn biskup, og enginn getur
liúizt við þvi, að gallalaus verk komi frá
honum í fyrsta sinn. Það er æfingin, sem
skapar meistarann; liæfnin þroskast við
árekstra og mistök og það er tilvinnandi
að einn maður láti frá sér fara nokkur
misheppnuð stykki í von um það, að eitt-
hvað gott kunni að koma frá honum siðar.
Önnur ástæða kann að vera sú, að leik-
mennt okkar er ung; það er ekki fyrr en
á þessari öld, að menn leika listir sínar
á leiksviði að einhverju ráði, enda þótt
Skugga-Sveinn hafi öld að baki sér. Og
úr þvi minnzt er á Skugga-Svein; ekki
hafði iMatthías leikhúsmenntun, en hann
lagði samt í það að skrifa þetta leikrit til
allrar blessunar, því margir liafa hafl
ánægju af þvi um dagana. Frh. á bls. 27.
VIKAN 21