Vikan


Vikan - 08.02.1962, Side 23

Vikan - 08.02.1962, Side 23
Enda þótt nú sé komið fram i febrúar, voru enn jól, þegar þessi mynd var tekin. Þess vegna teljum við, að jóiatréð sé mjög eSlilegur hliitur þarna. En þaS er annar hlutur, sem er vafasanmr — ætli fremur aS vera annars staðar í íbúSinni. Þið skulið skrifa á getraunarseðilinn, bvaða hlutur það er, klippa síðan seðilinn út og senda hann ásamt hinum getraunarseðlunum fjórum, sem áður eru komnir. Þessari verð- launakeppni er semsagt lokið. Við birtum að þessu sinni mynd af mjög glæsilegri stofu i nýju húsi i Reykjavík — myndirnar, sem við höfum birt að undanförnu hafa raunar allar verið teknar í íbúðum í Reykjavík. Bakveggurinn í þessari stofu er úr palisandervið, sönmleiðis bitarnir i loftinu og súlan. Ax- minsterteppið cr gráyrjótt og fer einstaklega vel við vandaða innrétt- ingu stofunnar. Af öllum fallegum hlutum, sem þarna eru inni gcgnir þó teppið aðalhlutverki. Án þess væri stofan vart þessi fallega og hlýlega heild. Og eins og við höfum áður bent á: Gólfteppi er ekki aðeins til þess að horfa á það. Það er mun þýðingarmeiri hlutur en til dæmis við- arklæðningin á veggnum, vegna þess að teppið léttir húsmóðurinni störfin. Og nú býðst einum af lesendum Vikunnar að verða heilum 40 fermetrum ríkari af þessari gæðavöru, sem Axminster gólfteppi eru. Og Axminster mun sjá um það að taka mál af ibúðinni og leggja teppið á gólfið. Lausnir verða því aðeins teknar til greina, að þær séu á get- ráunarseðlinum, klipptum úr blaðinu. Frestur til að skila lausnum er þrjár vikur: Það verður dregið hinn 1. marz næstkomandi. Allir getraunarseðlarnir verða látnir í poka og að- eins einn dreginn úr. Það er þessi unga stúlka, sem við höfum fengið til þess, en það skal tekið fram, að þá munum við binda fyrir augun á henni, meðan hún vinnur það verk. Stúlkan heitir annars Guðrún Ól- afsdóttir og vinnur hjá Hihni h.f. um þessar mund- ir. SÍÐASTI HLUTI r s- ‘O íg '£ Qi w <D fl fi ‘u ffi *<D rCj •a I o td | ■'M GETRAUNARSEÐILL E

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.