Vikan


Vikan - 08.02.1962, Síða 24

Vikan - 08.02.1962, Síða 24
VERÐLAUNATEIKNING Fnrðudýrið Hér birtum við skemmtilega mynd, sem þarf dálitla þolinmæði og athugun til að ljúka við, og við teljum það vel þess virði að veita smávegis viðurkenn- ingarverðlaun fyrir að gera hana vel úr garði. Við leituðum álits Tómstunda- búðarinnar i Austurstræti 8, vegna þess að þeir eru sérfræðingar í tómstunda- vinnu, og þeir sögðu að þetta væri aldeilis fyrirtak, og satt að segja urðu þeir svo hrifnir af hugmyndinni, að þeir buðust til að leggja fram verðlaunin. Þau verða tvenn, og fyrstu vcrðlaun verða vörur fyrir 100 krónur, en önnur verðlaun vörur fyrir 50 krónur. Lausnirnar þarf að senda til Vikan, pósthólf 149. — í neðra liorn umslagsins, vinstra megin á að skrifa orðið: Teikning. Það er ekkert skrýtið þótt maðurinn á myndinni sé svo furðulostinn að hárið rísi á kollinum á honum. Hann hefur nefnilega séð aldeilis stórfurðulegt skordýr, og það svo stórt að hann hefur aldrei gert sér slíkt í hugarlund. Þetta sama getið þið séð, ef þið dragið línur eins og sagt er fyrir hérna að neðan — en varið ykkur og verið ekki hrædd! Byrjið við M-12 og dragið strik til P-12, til R-13, S-14 U-15, U-14 S-ll P-9 0-9, P-ll, R-13. Dragið strik frá 0-12 til P-ll. Svo frá T-13 til X-13, W-ll, T-8, P-8. Strikið frá W-ll, X-ll, T-7, K-9, J-8, 1-8, H-9, G-ll, G-13, H-14. Strik frá L-12, L-ll, K-9. Strik frá U-14, U-7, V-5, W-5. Strik frá S-8, S-6, T-5, U-5. Setjið sfðan línurnar E-16 til G-13, G-16 til H-14, W-ll til W-10, V-10 til V-9, T-8 til T-7, R-8 til R-7, Q-8 til Q-7, P-9 til P-7. Dragið frá frá 1-13 til H-13, H-ll, J-ll, J-13. Bætið síðan inn í línuna J-10 til J-8, U-9 til V-8, U-8 til V-7, U-7 til V-6, S-7 til T-6, N-7 til 0-5, N-8 til M-7, M-7 til N-5, L-7 til M-5, L-8 til K-7 til L-5. NAFN HEIMILI ALDUR Listaverk íyrir lítið fólk Loks kemur svo hérr.a listaverkið, sem allir hafa beðið eftir með óþreyju, og ekki sizt yngstu lesendurnir, sem biða með litina sína tilbúna, að mála ... Þessi mynd er af honum Snata litla, sem var alveg búinn að steingleyma hvar hann gróf beinið sitt i jörðu. Hann var búinn að leita og leita, en hvergi fann hann staðinn. Þess vegna er það að hann er fullur áhuga að horfa á hvað hann Stjáni vinur hans er að gera. Hann er nefnilega að . . . Ja, hvað haidið þið að hann sé að gera? Það fáið þið að sjá, þegar þið eruð búin að teikna myndina eins og venjulega, með því að byrja á númer eitt með blýantinn, og draga strik til númer tvö, þrjú og svo framvegis. Og svo þegar þið eruð búin að því, þá er náttúrlega að mála myndina. UMFERÐAR- VANDAMÁL Það var geysileg heræfing. Allur herstyrkur Putalands var á æfing- um og mikið gekk á. Hernum var skipt niður í þrjár herdeildir, sem voru staðsettar hingað og þangað — að- allega þangað. Vandræðin voru þau, að hver herdeild átti að halda þrem stöðum, og milli þessara þriggja staða þurfti að halda uppi samgöngum, til að flytja milli vistir og púðurkerlingar. Umferðamálastjóri Putaríkis mátti ekki heyra á það minnzt að þessar sam- gönguæðar skærust, eða mættust, þannig að hver herdeild fyrir sig varð að beina umferðinni milli sinna staða þannig, að þær mættu aldrei umferð hinna herdeildanna, né skæru þær. Herdeildirnar báru virðuleg nöfn, og hétu „Hringurinn", „Stjarnan“ og „Krossinn“. Nú er að vita hvort þið eruð eins sniðugir herstjórar og yfirhermálaráðherra Putalands, sem leysti vandann í grænum hvelli, og sýndi herdeildarstjórunum á blaði hvernig þeir ættu að hafa umferðinni, svo fyrirmælum umferðarmála- stjórans væri hlýtt í einu og öllu. Ef þið gefizt upp, hafið þið tapað stríðinu, og þá getið þið tekið það rólega og fundið lausnina einhvers staðar annars staðar i blaðinu. 24 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.