Vikan


Vikan - 08.02.1962, Side 42

Vikan - 08.02.1962, Side 42
UNDRAEFNIO Nýtt efni Þreíöld ending 59 °/o^Orlon & Nylon HERRADEILD P.Ó. L. H. MULLER MARTEINI EINARSSYNI YINNUFATABÚÐIN Falaserðin Bnrkxii Lnueavesri 178. — Sími 37880. Hljóðritarinn með hátalara. Hljóðritarinn. Frh. Þetta var upphaf hljóðritarans, sem var afkvæmi afkastamesta upp- finningamanns Aineríku, Thomas Edisons. Þegar Edison dó árið 1931, hafði hann fengið rúmlega þúsund einkaleyfi til endurbóta á rit- og talsima, rafal og glóðarlampa, sein eftir það var farið að hafa til heimilisnota. Einhvers staðar segir hann, að sér hafi verið hljóðritar- inn einna kærastur af uppfinning- um sínuin. Edison var af hollenzkum og skozkum ættum, en lærði bæði rafmagns- og efnafræði. Hann fór snemma að grúska við ým- iss konar uppfinningar, smiðaði meðal annars nokkur ritsímatæki, sem hann seldi, og fyrir peningana kom hann sér upp vinnustofu í New Jersey. Það var í þedrri vinnustofu, að hann var eitt sinn að prófa tæki, sem átti að endurtaka ritsímamerki sjálfkrafa. Það var árið 1877. Merki, sem inn kom, kom nál til að sveifl- ast og mynda flúr á pappaskífu, sem snerist. Edison brá skjótt við °g sneri skifunni, og heyrði hann þá undarlegt hljóð. Nú datt honum i hug, að ef sveiflur mannsraddar- innar væru markaðar á rétt yfir- borð, væri hugsanlegt að hægt væri að endurvekja þær og mynda þannig hin upprunalegu hljóð. Ár- angurinn af þessu var hljóðritarinn. Þegar Emile Berliner fann upp hljómplötuna árið 1887, sem varð til þess að auðvelt var að gera af- rit af hinum upprunalegu hljóð- upptökum, var þess ekki langt að biða, að leið hljóðritarans lægi inn á heimili manna. Um það bil tveim- ur áratugum áður en úvarpið kom til sögunnar, var hægt að heyra raddir þekktra listamanna eins og Enrico Caruso, Ernestine Schu- mann-Heink, Nellie Melba og Louise Homer á hljómplötum frá ýmsum amerískum hljómplötufyrir- tækjum. Hljóðritarinn flutti list ástsælla söngvara og tónlistar- manna langt út fyrir ættland þeirra og varðveitti liana, svo að enn i dag hrífur hún hugi þeirra, sem á hlýða. Siðan liefur hver nýjungin rekið aðra á þessu sviði, sem allar miða að jiví að auka gæði hljóðupptök- unnar og gera hana eðlilegri. Má þar til nel'na tilkomu magnarans og hátalarans kringum 1920. Hæg- gengar hljómplötur komu fyrst á markaðinn árið 1948 og á árunum kringum 1950 voru miklar endur- hætur gerðar á hljóðriturum og uppíökutaékni. Önnur nýjung, liljóð- upptaka á segulband, hefur reynzt nytsöm í sumum tilfellum, Þó má fullyrða, að aldrei fyrr liafi neitt náð þvílikum vinsældum og plötu- spilarinn, sem líka er ávöxtur af hugviti Edisons. ★ Kæri draumráðningamaður! Nótt eina dreymdi mig að skóla- bróðir minn, sem ég hef haft mjög náin kynni af væri orðinn að hænu. Það var um vetur og lá snjór yfir öllu. Voru ég og hænan staddar rétt lijá'tjörniniii. Kemur þó móðir hæn- unnar eða stráksins og segir við mig: „Viltu gera það fyrir mig að ná I hænuna og koma með hana til min?“ Já, já, segi ég. Síðan hljóp ég af stað og ætlaði að reyna að ná í hænuna. En hún gerði sér lítið fyrir og hljóp út í tjörnina, en þar var allt ísi iagt. Ég hljóp á eítir og var alveg að ná henni, en þá sprettur allt i einu upp gegn um isinn skólasystir mín og má segja að við séum alltaf að rifast um þennan strák. Hún nær góðu taki um fótinn á hænunni og hleypur með hana í áttina til móður- innar. Hún grípur hænuna fegins hendi og leggur af stað með hana og skólasystur mína lieim. En ég hleyp á eftir. Loksins erum við þó komin heim til hænunnar. Móðirin fór strax með hænuna inn og háttaði hana nið- ur i rúm. En skólasystirin lagðist undir rúmið. Nú kom móðirin fram til min, en ég stóð fyrir utan og skellti dyrunum á nefið á mér. Þá byrja ég að hringja dyrabjöllunni og hamast þangað til að hænan kem- ur til dyra. Heldur hún á eggi í hend- inni og segir við mig: Sjáðu hvað ég verpti og sýnir mér eggið. í þvi brotnaði eggið og út úr því kemur pínulítil stúlka, auðsjáanlega ný- fædd. í því vaknaði ég. Með fyrir- fram þakklæti. — Tóta. Svar til Tótu. Draumur þessi er talsvert við- burðaríkur og eins og sjá má er auðsætt að strákur verður þér ó- þjáll og vill greinilega losna við þig sem náinn kunningja, því hann breytist í hænulíki og hleyp- ur út á hálan fs, en það gerir hann til að losna við þig. fsinn í þessu tilfelli er tákn um einhver hliðarspor, sem stráksi stígur í þeim tilgangi að ofbjóða þér og losna við þig. Þetta verður samt ekki til að aftra þér í því að halda í rófuna á honum, þvf þú fylgir honum eftir. En þá vill ólukkan til, þar sem önnur stúlka kemur inn í spilið og ef marka má fram- haldið af draumnum er það hún en ekki þú, sem hlýtur hnossið að lokum. Kæri draumráðandi. Mig dreymdi að ég geng inn í vinnusal, þar sem ég starfa. Ég mæti þar manni er ég þekki. Við tölumst við og ég missi úrið mitt á gólfið og hann líka sitt. Allt fellur innan úr báðuin úrunum. Ég beygi mig niður og ætla að tína upp hlut- ina úr inínu úri og fara með það lil úrsmiðs, en maðurinn segir að cg skuii liætta að tina þetta upp, því við þekkjum ekki hvað tilheyrir hverju úri. Svo tek ég upp mitt arm- band ásamt úrhulstrinu og hann tekur sitl einnig og horfir á mig með þvi augnatilliti er ég óttaðist. Við það vaknaði ég. Rafna. Svar til Röfnu. Það virðist augljóst af þessum draumi að þið munuð rugla reit- um ykkar saman í náinni fram- tíð, þar sem úr ykkar falla bæði á gólfið og involsið ruglast sam- an. Ég álít að tal ykkar um úr- smiðinn í sambandi við viðgerð- ina sé tákn um að þið látið prest gefa ykkur saman. 42 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.