Vikan


Vikan - 08.02.1962, Síða 43

Vikan - 08.02.1962, Síða 43
KS!S,u Cl£aUMuí>lnN Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Yikunnar. Kæri draumráðandi. Mig dreymdi að ég og strákurinn, sem ég er með, vorum trúlofuð og mér fannst hringurinn minn svo ægilega fallegur og mér finnst ég koma til bróður mins en hann verð- ur mjög undrandi, ]>egar hann sér mig með hringinn en mér fannst hann líka vera trúlofaður. Hann var ekki sérlega hrifinn af trúlofun minni, svo kynni ég mömmu fyrir kærastanum, en hún hefur aldrei séð hann í rauninni og mér finnst strákurinn vera ægilega feiminn og roðna mikið. Mér finnst pabbi hvergi vera nálægt og mamma segir að hann hafi íengið sér göngutúr. £g var svo undrandi yfir þessu. Eg man að ég var mjög ánægð og ham- ingjusöm en ég var alltaf rauð i andlitinu. Viljið þér gjöra svo vei að segja mér livað draumurinn þýðir, ef þér getið. Mig langar til að taka fram að ég og strákurinn ætlum heim í sum- ar, en við erum ekki búin að opin- bera og ég hugsa mikið um það hvernig heimkoman verði, af því að ég hef aldrei komið heim með strák fyrr, en svo dreymdi mig þennan draum og þá datt mér í hug að skrifa yður. Með fyrirfram þökk. Erla. Svar til Erlu. Talið er, að ef stúlka dreymir sig trúlofaða þá niuni sá piltur er hún dreymdi sig trúlofaða ganga að eiga hana. Já, það er auðvitað talsvert viðkvæmt mál þegar unnustinn er kynntur fyr- ir forcldrunum. En ég geri ráð fynr að það ætti alls ekki að þurfa að vera svo erfitt, þegar tillit er tekið til þess, að þetta er í fyrsta skiptið og einnig það síð- asta. Það er auðvitað talsvert erfiðara þegar kærastarnir eru margir og það tekur eiginlega ekki að kynna þá fyrir pabba og mömmu. En þetta er greinilega allt í bezta lagi hjá þér. Kæri draumráðandi. Fyrir nokkuð löngu síðan dreymdi mig, að ég stóð uppi á háum hól, sem var girtur og mér fannst girð- ingarstaurarnir vera þaktir gull- steinhringum og mig langaði til að máta þá svo ég tók trúlofunarhring- inn rninn af mér, en hann datt ofan í forarpoll eftir því, sem mér fannst og mér brá og ég hljóp af stað til að leita að hringnum en fann hann ekki. Hins vegar fann ég óekta liring og mér fannst hann vera í sundur, svo ég tróð honum undir gullsteinhring, sem ég ber, svo kær- astinn minn sæi hann ekki, en hann tók eftir honum, að mér fannst og sagði: „Komdu við skulum kaupa okkur breiðari hringi“, og mér fannst ég fara með honum. Fyrir hverju er þetta? Með fyrirfram þökk. María Sigurðardóttir, Langholtsvegi 200, Reylcjavík. Svar til Maríu Sigurðardóttur. Að standa upp á hól í þessu tilfelli er fyrir því, að margir rnunu verða til að taka eftir fegurð þinni og yndisleik. Staurarnir umhverfis þig með gullstein- hreingunum merkja trúlofunar- möguleika þína og þeir eru jafnmargir hringunum, sem á staurunum voru. Þetta allt verður sýnilega til að villa fyrir þér og slá ryki í augu þín, því þú tekur ofan trúlofunar- hringinn og kærastanuni þínum verður svo mikið um þetta að hann leggst í svall. En tilfiningar þínar gagnvart honum eru heitar af þrá, því þú ferð að leita hans, en í þeirri leit finnurðu hann ekki heldur annan mann(hring), seni reynist illa. Kærasti þinn, skilur þetta og samband ykkar hefst aftur á ný, betrg en nokkru sinni fyrr. Kæri draumráðandi. Eg ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir skömmu. Ég var stödd úti á Sauðárkróki og mér fannst móðurbróðir minn og konan hans, sem er dönsk, vera að fara út til Danmerkur með Gull- fossi. Gullfoss var á Sauðárkróki og fannst mér hann eiga að koma við í Reykjavík. Á leiðinni suður tók ég eftir því að ég var peninga- laus. Þegar við komurn til Reykja- víkur, föruin við til önnnu minnar og fannst mér pabbi minn koma þangað rétt á eftir. Þá spurði ég hann hvort hann gæti látið mig fá peninga. Lét hann mig fá þá bæði ávísanir og tékka, en ég vissi aldrei Iive mikla peninga hann lét mig l'á, en mér fannst peningaveskið mitt orðið troðfullt. Sagði ég hon- um þá, að ég liefði engin föt og lét hann mig þá fá sparifötin sín, sem hann hefur fyrir sunnan. Allt í einu segir pabbi við mig, hvaða glampi er þetta. Eg sagði að þelta væri Gullfoss, sem væri að tilkynna að liann væri að fara. Þá fórum við að kveðja, en þau fara á undan mér, svo að ég verð að biðja frænku mína, að fylgja mér niður að höfn, því ég hafi gleymt hvar skipið lá. Þegar ég vaknaði, fannst mér ég vera að leggja af stað. Með fyrirfram þökk. Helga. Svar til Helgu. Draumur þinn er fyrir velgengni í viðfangsefni, sem þú nú hefur tekið þér fyrir hendur, að minnsta kosti nærðu þeim ár- angri, sem til var ætlazt í upp- hafi. Hins vegar er greinilegt að þér mun hlekkjast ýmislegt á, en ekki er við öðru að búast, hlutirnir koma ekki allir af sjálfu sér. Sllll Nýtt útlit Ný tækni luggar fyrir verzlan- ir og skrifstofubyggingar I ýmsum litum og formum. Málmgluggar fyrir verk- smiðiubyggingar, gróður- hus, bílskúra o fl. /ZZ7 ^7 Lækjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.