Vikan - 15.03.1962, Blaðsíða 12
I
STORtS
STCCRIHG GCAR
r.WTANKt
i DECKAT SIDCS_
i »Ti
| | , [ fíTT rCAK
! * or rw
LM6IHC b BOILCR ROOM
BOUSR flAT
AU/IUARV /lAT
N! 10 TANKS
N- 1f TANKS
ÍUlRrLOl
LUBR. Ol
iZtO
TANK R
TEIKNAÐIATTFAU
SHERRA SNP EN
TRðUAFOSS
EN ER MEINAÐ AÐ NOTA STARFS-
HEITI SITT Á ÍSLANDI
K/-*7
Nf ð TANKS
I3QOQ
U°££
13000
' 300
í Danmörku er nú verið að smíða stærsta skip, sem nokkurn tíma hefur
verið smíðað þar, en það er 50 þúsund lesta olíuskip.
Til þess að hægt væri að smíða skip þetta, varð fyrst að byggja sér-
staka skipasmíðastöð, Lindö á Fjóni, sem tilheyrir Odense Staalskibsværft.
Maðurinn, sem gerði grunnteikningar af þessu skipi er íslendingur, heitir
Hörður Þormóðsson, og hefur undanfarin tvö ár unnið hjá þessu
danska fyrirtæki, sem skipaverkfræðingur.
Hörður Þormóðsson fær ekki atvinau á íslandi, sem slíkur, - vegna þess
að samkvæmt íslenzkum lögum er hann ekki viðurkenndur verkfræðingur.
Vikan birtir þetta viðtal við Hörð
Þormóðsson af tvennum ástæðum:
í fyrsta lagi til þess að kynna
mann, sem hlotnazt hefur sú við-
urkenning erlendis að fá að gera
frumteikningu að stærsta skipi,
sem smíðað hefur verið á Norður-
löndum. í öðru lagi til þess að
benda á þau ákvæði, sem gilda hér
á íslandi, að þessi maður skuli ekki
fá að nota starfsheiti sitt hér.
Ég heyrði sögur af því fyrir nokkru síðan,
að ísiendingur hefði teiknað 50 þús. lesta skip,
sem væri nú í smíðum fyrir bandarískt fyrir-
tæki, og væri það langstærsta skip, sem smíð-
að hefði verið í Danmörku.
Satt að segja man ég ekki í bili hver það
var, sem sagði mér þessa furðusögu, enda
gleymdi ég henni eins fljótt og ég gat með
nokkru móti. Blaðamenn heyra svo mikið af
slíkum sögum, að ef þeir ættu að trúa helm-
ingnum af þeim, væri hehningurinn af þeim
fyrir löngu kominn undir lás og slá. Ég hefi
töluverðan áhuga fyrir að ganga laus á meðan
hægt er, svo ég sting svona „gróusögum“ venju-
lega í rassvasann, en hann er botnlaus.
Svo heyrði ég söguna aftur, og ég hef þá
reynslu að ef maður heyrir sömu „lygasög-
una“ tvisvar sinnum, án breytinga, þá sé 0,001%
12 VIKAN