Vikan


Vikan - 15.03.1962, Blaðsíða 39

Vikan - 15.03.1962, Blaðsíða 39
FERÐAÁÆTLUN 16., 17., 18., 19., og 20. april verður svo dvalið í góðu yfirlæti á Capri. Verður búið á ágætu hóteli í samnefndum höfuðstað eyjarinnar. 21. april verður farið frá Capri um Sorino og Napoli til Rómar, á sama hátt og áður. Þó verður ekki farin sama leið, heldur önnur, sem liggur lengra inni í landinu. 22. april er páskadagur og verður þá dvalizt um kyrrt í Róm og verið við messu í Péturskirkjunni. 23. apríl verður enn dvalizt í Róm. 24. apríl verður síðan flogið aftur heim með við- komu á sömu stöðum og á útleiðinni, og komið til Reykjavíkur um kvöldið. Jóhannes páfi ku vera ljúfmenni og löngu búinn að gleyma átökum við Sturlunga. Hann mun blessa mannskapinn þarna á torginu. — Mynd- in að neðan er frá-Capri. Nú er mánuður til páska og ekki seinna vænna að fara að ákveða páska- ferðina. Á þessum síðum bjóðum við ykkur að fylgjast með í ferð til borg- arinnar eilífu og eyjarinnar Capri, en Ferðaskrifstofan Lönd og leiðir mun einmitt gangast fyrir páskaferð þangað, sem óhætt er að mæla með. meir, að á báðum þessum stöðum opnaðist eins konar kjallaragangur til Helvítis . . . ALLAR GÖTUR ENDA í RÓM. „Að fljúga er ekki að ferðast, heldur að skipta um dvalarstað“, sagði Poul Reumert, sá frægi leikari, einhverntíma í blaðaviðtali. Þar sem þátttakendurnir í þessari páskareisu fara flug- leiðis héðan til Rórnar og loks þaðan hingað, má því með nokkrum rökum segja að reisan hefjist og endi þar. Þann 13. apríl verður lagt af stað frá Reykja- vík með áætlunarflugvél um Glasgow og Lund- únir, lent í Róm að kvöldi og gist þar. Daginn eftir verður haldið þar kyrru fyrir og geta menn þá hvílt sig eða skoðað sig um að vild, og munu flestir taka síðari kostinn, því að flugferðin mun vart þreyta neinn að ráða, en svo margt er að sjá í „borginni eilífu“ að einn dagur endist skammt til þess. Þann 15. apríl verður ekið í þægilegri langferðabifreið suður Ítalíuströnd, urn Napoli til Sorento, sem er hin fegursta leið. I Sorento verður svo stigið á skipsfjöl og siglt til Capri, dvalizt þar 16., 17., 18., 19. og 20. apríl, haldið síðan aftur til Rómar, en aðra leið og ver- ið þar á páskadag og annan í páskum — 22. og 23. apríl — sótt messa í Péturskirkjunni og síðan svipazt um í borginni. Þess skal getið, þótt það sé alkunna, að dýrlegasta og fagnaðarríkasta kirkjuhátíð kaþólskra er á páskuin, og þó hvergi dýrlegri og áhrifameiri en í Róm, enda streyma þangað jafnan pílagrímar hvaðanæva svo tug- þúsundum skiptir til þátttöku í þeim hátíðar- höldum. Vagga vestrænnar menningar stóð við Mið- jarðarhaf, ítalia er að öllum líkindum sögurík- asta land í heimi og Róm óumdeilanlega sögurík- asta borg á Ítalíu. Sökurn þess hve veðrátta er til- tölulega mild og umhleypingalaus suður þar, og eins vegna þess hve meðfærilegt og um leið var- anlegt byggingarefni er þar nærtækt, hafa forn- ar byggingar, minnismerki og fornminjar all- ar, varðveitzt þar svo vel að furðu gegnir. Þess vegna er þar svo ótrúlega rnargt merkilegt að sjá, og ekki eingöngu í Róm, heldur og yfirleitt hvar sem farið er urn borgir og byggðir landsins. . .Og loks er það náttúrufegurðin og veðurblíð- an; þjóðin sjálf, hin suðræna skapgerð í sínu upprunalega umhverfi . . . lífsgleðin, tilfinn- ingahitinn, söngurinn, vínið, dansinn . . . Og sólskinið á heitum sandinum á Capriströnd í skjóli hinna björtu kletta — að geta látið sig einu gilda þótt hann verði napur í Naut- hólsvíkinni um bænadagana. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.