Vikan


Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 3

Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 3
„GEIMNÁLIN“ í SEATTLE. Þessi 200 m háa turnbygging úr stáli og gleri er fyrir skömmu risin af grunni i nýju úthverfi Seattle- borgar vestur f Bandarikjum. Nafn byggingarinnar er ekki síður ein- kennilegt en hún sjálf — kallast hún „Geimná in“, en í hinu nýja hverfi, sem lnin gnæfir yfir ve-rður opnuð „fyrsta geimaldar-heimssýn- ingin“ þann 21. apríl og stendur til 21. október. Efst uppi á nálinni er kringla mikil með útsýnissvölum. Þar er og veitingastofa, sem tekur 200 manns í sæti — og heitir hún að sjálf- sögðu „Nálaraugað“. Kringla þessi snýst einn hring á klukkustund, svo að þeir, sem gista nálaraugað, þurfa hvorki að líta til hægri né vinstri og sjá þó allt í kringum sig, en út- sýn er þarna hin fegursta. Lyftur með glerveggjum þjóta leifturhratt upp og niður innan í nálarleggn- um, en ef gestirnir kjósa það held- ur, geta þeir lika farið gangandi á tveim jafnfljótum upp i „N'álar- augað“, og eru þangað 832 allbrött stigaþrep. Sjálf sýningin verður hin merki- „Geimnálin“ er ekki nein smánál, og mundi auðfundin í hverjum með- alheystakki — 200 m á hæð, gerð eingöngu úr stáli og gleri. Einbrautarlestin, sem flytur gestina á milli borgarinnar og sýningar- svæðisins, táknar brautarlestir framtíðarinnar. Allar byggingarnar verða hinar ný- tízkulegustu, sumar að vísu reistar til „einnar nætur“ — en flestar eiga að standa að sýningu lokinni. legasta, að þvi er fregnir herma, en þar fá gestirnir að kynnast ýmsum þeim tækjum, sem talið er að verða muni í hvers manns eigu á næstu áratugum. Meðal þeirra verð- ur „heimilis-rafeindaheili", mesta þarfaþing, sem gerir allar mat- reiðslubækur og matreiðslukunnáttu húsmóðurinnar yfirleitt, með öllu næringareiningar, segir til um óþarfa, þar eð hann reiknar út allar hvernig hver fæðutegund skuli með- höndluð og stjórnar loks suðunni — auk þess sem hann minnir hús- ráðendur og heimilisfólk á ýmsa liluti, svarar spurningum um ótal atriði, segir krökkunum að fara að hátta þegar tími er til þess kominn, segir þeim sögur og svæfir þau loks með róandi hljómstefi. Rafeinda- tækin setja svip sinn á sýninguna — til dæmis heimilissími einskonar; velji maður víst númer, fer i gang sjálfvirkt kerfi, sem þvær og fágar giuggana eða vökvar garðinn og annað þes&háttar, og getur maður hagnýtt sér þessa heimilisaðstoð, þótt maður sé á langferðalagi og heimilið mannlaust — bara að hringja heim, þá gerist það sem ger- ast þarf. Þarna verður og „höll visind- anna“, þar sem sýnt verður i ýms- um deildum, og með ýmsu móti, hvernig visindin hafa þróazt með m.nningarþjóðum, hvaða hlutverki þau gegna þar þegar og livaða breyt- ingum þau muni taka i nálægri fram- tíð, — en stjórn Bandarikjanna styrkir þessa sýningardeild með níu milljón dollara fjárframlagi. Einbrautarlest, að sjálfsögðu raf- knúin, verður stöðugt í förum á milli borgarinnar og sýningarsvæðisins, og er gert ráð fyrir miklum fjölda gesta, ekki einungis úr Bandarikjun- um sjálfum, heldur viðsvegar að .. . BÍLBÁTUR - BÁTABÍLL. Bílar, sem nota má fyrir bát ef á liggur, hafa yfirleitt ekki verið frmaleiddir i verksmiðjum hingað til, þótt ýmsir hagir menn hafi gert þær breytingar á bílum sinum, sem Útgefandi: Hilmir h.f. Kitstjóri: Gísli SigurSsson (ábm.) Auglýsingastjóri: Jóhannes Jörundsson, .Fratnkvæmdastjóri: Hilraar A- Kristjánason. Hitstjórn og auglýsingúr: Skipholti 33. Shnar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 149, Afgreiðslá og dreifingN Blaðadreifing, Laugavegi 133, simi 30720. l)rgifingarstjóri: óskar Karls- son. Verð í lausasölu kr. 15. Áskrift- arvtrð er 200 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun: Hilrair b.f. Myndamót: Raígraf h.f. í næsta blaði verður m.a.: • Á íslenzka glíman sér lífsvon? Hvar stendur glíman í dag, miðað við aðrar íþróttir, hverjar eru vinsældir hennar, hvert er gildi hennar, hversu góð er hún sem íþrótt og hver er framtíð hennar. Þessum spurningum og ýmsum öðrum er leitazt við að svara. Margar myndir úr skjaldarglímu Ár- manns fylgja með. • Tebollinn. — Smásaga eftir hinn ágæta höfund, Katerine Mansfield. • Góðir grannar. Afburðasnjöll saga um tvo nágranna, sem urðu leiðir á kerlingunum sínum og hvernig þeir fóru að því að losna við þær. Sagan er eftir St. 0‘Connel. • Sérleyfishafar á betri buxunum. — Myndafrásögn frá skemmt- un sérleyfishafa í Hlégarði. • Friður og fegurð. — Vikan hefur brugðið sér til fundar við fólk á efstu hæðum háhýsanna í Reykjavík og það segir álit sitt á því að eiga heima hátt uppi. • Greinarflokkurinn Sálkreppur og sálgreining: Segðu mér draum þinn. Eftir dr. Matthías Jónasson. • Fegurðarsamkeppnin: Nú er það keppandi nr. átta, sem kem- ur fram fyrir lesendur Vikunnar. Hún er úr Reykjavík. • Svavar Gests skrifar um plötur og dansmúsík og aðrir fastir þættir blaðsins eru í því að venju. • Forsíðumynd: Strákar að veiða seiði við Ægisíðu. Bílbáturinn — skrúfurnar tvær sjást greinilega. með þurfti til þess að unnt væri að fieyta sér ó þeim yfir víkur og lygn fljót, og munu þær breytingar hafa gefizt misjafnlega eins og við má búast. Á þessu er nú orðin sú breyting, að Karlsruhe-iðjuverin taka að framleiða bílbáta eða bátbíla á næstunni, en verkfræðingurinn, sem teikninguna hefur gert að þeim far- kosti, nefnist Hans Trippel. Bíl- bátur þessi er með tveim skrúfum, vegur 1000 kg, er knúinn 40 hest- afla hreyfli og fer 120 km á klst. á landi, en 12 km á vatni. Nokkur hið mun þó verða á því að bilbátar þessir verði fáanlegir á Vesturlönd- um, þar eð samið hefur verið um sölu á 25.000 slíkum bilbátum til Bandaríkjanna, og sýnir myndin þegar þeim fyrsta af þeim er komið um borð i flutningaskipið. ★ VIKAN ^

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.