Vikan


Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 19

Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 19
LÓÐBYSSUR Sölustaðir: SlS Austurstræti og kaupfélögin um land allt. II 4 'bLiPnar m Hrútsmerkiö 21. marz—20. aprj: Þú munt eiga afar annríkt í vikunni, og ekki gefast Þér margar stundir til tómstundaiðju eða skemmtana. Þó verð- ur vikan í flesta staði hin ánægjulegasta. Kona, sem þú kannast aðeins lítillega við, mun koma talsvert við sögu Þína í vikunni, og munt þú ekki hljóta nema gott af því. Laugardagurin er dálítið varasamur peningalega. NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þú verður víst ekki í sem beztu skapi i vikunni, og er það svo sem ekki af þvi að þú verðir fyrir miklu mótlæti, heldur vegna þess að þig skortir viljastyrk. Þú átt ekki að láta Það eftir þér að vera önugur, þegar sizt gefst tilefni til. Þó er eins og glaðni eitthvað yfir þér um helgina. Kannski þú sért að taka Þig á. Heillatala 7. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Það er einkum tvennt, sem á hug þinn í vikunni. Þó væri þér hyggilegast að sinna þvi meir, sem snertir vinnu þína. Það liggur beinlinis á því, en hitt má gjarnan biða, þótt freistandi sé að sinna Þvi strax. Vinur þinn verður til þess að þér býðst einstakt tækifæri. Ekki get- ur þú samt notað þér það, eins og á stendur. Amor verður talsvert á ferðinni. Krabbamerkiö (22. jilní—23. júlí): Þetta verður óvenjuleg vika í aiía staði og mjög frábrugðin undanförnum vikum. Stafar það af því að þú leitar í nýtt umhverfi og er það vel, þvi að þér hefði hætt til að forpokast í þessu gamla umhverfi. Þú ert að glíma við eitthvert verkefni, sem er talsvert erfitt viður- eignar. Vertu alls ekki að flýta Þér neitt. Ekkert liggur á. Ljónsmerkiö (2lf. júlí—23. ágúst): Þú munt verða fyrir einhverjum vonbrigðum út af einhverjum í fjölskyldunni, en varastu samt að dæma hann of fljótt, því að þú kemst ekki að hinu sanna, fyrr en eftir svo sem viku. Þú lendir í skemmtilegu ævin- týri um heigina, og líklega á þetta ævintýri eftir að draga einhvern dilk á eftir sér, þótt síðar verði. MeyjarmerkiÖ (21/. ágúst—23. sept.) : Það bíður þín margt óvænt í vikunni, og ekki er víst að þú kunn- ir fyllilega að bregðast við öllu þessu. Þó munt Þú lifa góðu lífi. Þú skalt gæta mjög tungu þinnar, einkum ef þú kemur í margmenni. Þú virðist vera allt of þröngsýnn þessa dagana, og yfirleitt getur þú ekki sætt þig við skoðanir annarra. Þú verður að láta af þessu. VogarmerkiÖ (21f. sept.—23. okt.): Þú munt eiga mjög annrikt i vikunni, en þó er eins og þér gefist tími til þess að sinna eigin málefnum, jafn- vel þótt á vinnustað sé. Skapið verður ekki gott fram að helgi, og kann að vera að því valdi þessi stöðuga óvissa. Það fæst úr þessu skorið um eða eftir helg- ina, og þá mun skapið sannarlega batna. Heillalitur rautt. Drekamerkiö (21/. okt.—22. nóv.): — Þú lætur smámuni angra þig allt of mikið þessa dagana, og gengur það jafnvel svo langt, að það bitnar á því góða. Þú verður að venja þig af þessum ára. Vinur þinn stingur upp á einhverju við þig, og það sktil- uð þið gera saman hið fyrsta, ef það krefst ekki svo mikils tíma að það bitni á vinnu þinni. Laugardagur er heilladagur. Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þessi vika verður i alla staði allt öðruvísi en þig hafði órað fyrir, og á ókunnur maður ekki hvað sízt þátt í því. Þessi ókunni maður kemur nú mikið við sögu þína, og er þér ráðlegt að kynnast honum betur. Þið virðist eiga vel saman. Þú færð skemmtilega sendingu um helgina. Einhver lasieiki er í kringum þig. GeitarmerJíiÖ (22. des.—20. jan.): Þú virðist allt of óþolinmóður þessa dagana, og verður það til þess að þér verður ekkert úr verki, ert alltaf að bíða. Þú ferð i skemmtilegt samkvæmi í vikunni, þar sem margt verður um manninn, yfirleitt fólk, sem þú kannast lítið við. Þú verður hrókur alls fagnaðar í þessu samkvæmi. Líkur á stuttu en skemmtilegu ferðalagi. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.): Þú hefur einstakt lag á Því að gera þér mat úr smáatvikum, og verður þessi vika í alla staði hin ánægjulegasta bæði fyrir þig og fjölskyldu þína, því að þú munt umgangast fjölskylduna óvenjumikið í þessari viku. Miðvikudagurinn er sá dagur, sem skiptir þig mestu. Þann dag gerist eitthvað, sem hefur áhrif á framtíð þína. FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þetta verður vika mjög svipuð fyrri viku, og þarftu því sann- arlega ekki að kvarta. Þó virðist vera farið að bera eitthvað á afbrýðisemi i fari þínu, en sannarlega er engin ástæða til þess. Þú lofaðir einhverju i vik- unni sem leið, en nú getur þii ekki uppfyllt þetta loforð, og er þér réttast að gera grein fyrir því, áður en það er of seint. Stjörnuspáin gildir frá fiinmtudegi til fimmtudags.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.