Vikan


Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 16

Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 16
Byrjið handsnyrting- una með því að fjarlægja gamla lakkið vel og vandlega. yætið bómull- arhnoðra vel í góðu og olíuríku aceton. Notið acetonið aldrei tómt, burði eða góðu kremi. Fingurbroddunum er nú haldið i volgri sápu- upplausn i u. þ. b. fimm mínútur. Það mýkir nagl- böndin, svo auðvéldara verður að eiga við þau. það í lyfjaverzlunum. Síðan eru neglurnar sorfnar, fyrst með sveigj- anlegri fínrifflaðri stál- þjöl, en síðan með papp- írsþjöl, svo kantarnir Vætið þar til gerðan trépinna í naglabanda- eyði og farið með hann undir nöglina og hring- inn í kring eftir nagla- böndunum. Það hreinsar og mýkir. verði jafnir og sléttir. Eftir að neglurnar hafa verið sorfnar er borið á þær feitt krem og því nuddað vei á nagla- böndin. Hendurnar eru nuddaðar vel úr handá- Ýtið svo naglaböndun- um vairlega upp með tré- pinnanum og hafið á honum örlitla bómull, sem dýpt hefur verið í sápuupplausnina. Notið aldrei beitt eða hart á- hald til að ýta upp nagla- böndunum. Með naglaspaða má losa þá hluta af nagla- böndunum, sem fastir eru við nöglina. Meðan því fer fram mega negl- urnar <ekki vera þurrar, það mundi auðveldlega skemma yztu himnu þeirra. Hörð húð er nudduð í burt með pimp- steini, sem dýpt hefur verið í vatn. Það gengur mjög auðveldlega. Klipp- ið aldrei burtu harða húð, það gerir eingöngu illt verra. Nauðsynlegt er að hafa við höndina litil bogin naglaskæri eða sérstakar naglabanda- tengur. Með þeim eru litlar húðörður við negl- urnar fjarlægðar og klippið eins þétt og þið getið. Litla töng (pinsettu) þarf einnig oft að nota við handsnyrtingu. Laus- ar húðörður á nöglunum eða naglaböndunum má fjarlægja varlega með fingerðri töng. Rifin naglabönd eru klippt varlega með nagla- skærunum (annars á að nota þau sem minnst). Naglabönd, sem oft eru klippt verða gróf. Þvoið svo að lokum neglurnar, áður en þær eru lakkað- ar. Fyrst takið Þið eina umferð með litlausu lakki, eða svo kölluðu undirlagi (Super Base). Síðan tvö lög með þeim lit, sem þið notið, og svo aftur eitt lag af litlausu. Styrkleiki naglalakksins er mikið undir þvi kom- inn, að hvert lag fái að þorrna vandlega. Rétt hnndsnyrting Ekki eru allar konur fæddar með, það sem maður kallar fallegar hendur, og hvenig sem þær annars eru í laginu, verð- ur fólk að sætta sig við það, en aftur á móti er hverjum í sjálfsvald sett, hvort þær eru vel hirtar eða ekki, en það EIGA þær að vera. Ef nöglunum hættir til að brotna og klofna, verður að hætta að lakka þær dálítinn tíma og sverfa þær stuttar og jafnar, þannig að þær verði sterkar við rótina. Neglurnar á að næra með feitu kremi og fægja þær með naglakremi eða dufti og vaskaskinnspjötlu. Hugsað fyrir vori Nú er það langt liðið á veturinn, að við erum rétt farin að eygja vorið framundan. Þessi árstiðaskipti koma venjulega mjög niður á konum andlega. Þær sem ekki hugsa ennþá mjög mikið um utlitið byrja venjulega að gera hreint og endavenda öllu i hús- inu. En hjá hinum yngri og þeim sem enn eru svo hégómlegar að hugsa um útlitið kemur það niður á þeim sjálfum. Hvernig verður vor- og sumartizkan í ár, ætli ég þurfi ekki að breyta öllum minum fötum eða fá mér ný? Þær vita að vortízkan kemur alltaf með nýjustu og róttækustu línurnar. Og hvað á ég að gera, halda þær áfram, ég er eins og næpa og hárið á mér löngu vaxið niður úr siðustu klippingu, það eru pokar undir augunum á mér og þar að auki hef ég fitnað yfir veturinn. Hvernig ætli ég muni líta út i baðfötum og léttum sumarfötum í áberandi litum. Það ber meira á því á sumrin, hvort hendurnar eru vel snyrtar, oln- hogarnir, hárið o. s. frv. Það er elcki um annað að gera, en hyrja nógu snemma að hlúa að sjálfum sér. Hér ætlum við að gefa ykkui- nokkur smáráð í sambandi við snyrtingu. Auðvitað er bezt að hyrja á því að greuna sig, hvaða aðferð sem þið hafið tileinkað ykkur, en þær eru óteljandi, fara síðan á hárgreiðslustofu og láta klippa sig eftir nýjustu tízku og halda því við yfir sumarið og einnig er ráðlegt að byrja að fara reglulega í ljós, eða bera á sig brúnkunarmeðul, þær sem þau nota, en gætið þess að hafa ekki of mikið til að byrja með. Við ætlum þá að byrja á handsnyrtingu, það er skemmtilegra að geta lakkað heilbrigðar og vel snyrtar neglur þegar hendurnar eru orðnar fallega brúnar og eru reglu- lega áberandi við Ijósa sumarkjólana. Fyrir þær sem ekki eiga tjósalampa og ekki vilja nota brúnkuineðul, er hér gott ráð til að ná guibrúnum húðar- lit. Þetta er andlitsgríma og i'yrir utan það að gcfa liúðinni faiiegan b.æ, inniheldur hún mikið af vitaminum og olium, sem gagnlegar eru fyrir húð- ina. Hér er svo uppskriftin: Yzta lagið af appelsínu er fin- rifið og blandað safanum úr einum fjórða af appelsínu. Munið að þurrka af rifjárn- inu á eftir með bómullarhnoðra vættum í appelsínusafa og notið sömu bómull á eftir, þegar vökvinn er borinn á húðina. Blönd- una á að bera mjög jafnt yfir húðina og hún á að vera á að minnsta kosti einn klukkutíma. Sé þetta gert um kvöld, á ekki að fjarlægja grimuna, heldur aðeins að bera næringarkremið ofan á og eftir u. þ. b. stundarfjórðung er það krem sem húðin hefur ekki tekið í sig, fjarlægt með andlitsþurrku. Annars má fjarlægja grimuna með venjulegu andlitsvatni og enn betra er að nota heitt og slerkt te, því það gefur húðinni einnig brún- leitan blæ. 12 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.