Vikan


Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 36

Vikan - 05.04.1962, Blaðsíða 36
Mosagrænar — Brúnar — Koksgráar. G. Berg:mann Laufásveg 16. — Sími 18970. West Side Story Framhald af bls. 17. „Ef maður vill hræða þá til hlýðni, jú“, greip Aníta fram í fyrir honum um leið og hún tók sér stöðu við hlið Maríu ,og lagði höndina blíðlega á öxl henni. „Þegið þið, þetta kemur ykkur ekki við“, mælti Bernardo til þeirra hinna. „Chino, farðu heim með hana tafar- laust . . .“ María tók vasaklútinn frá augun- um. „Bernardo", mælti hún bænar- rómi. „Þetta er fyrsti dansleikur- inn . . .“ „Þú nýtur þess að þú ert systir min“, svaraði Bernardo. „Farðu heim með hana, Chino . . .“ Þar með var þetta útrætt mál. Hann gekk á brott, þungum skref- um og fékk sér svaladrykk. Vitanlega var hann systur sinni harður, en hún hafði líka unnið til refsingar. Hann dró djúpt andann, nasvæng- ir hans titruðu og hann spýtti um tönn þangað sem Þoturnar stóðu, í því skyni að sýna þeim hve innilega hann fyrirleit þá. Þeir tróðu allt nið- ur i svaðið, sem Þeir snertu . . . og þó sér í lagi stúlkur. Og ef þeir dirfð- ust svo mikið sem snerta fingri portí- kanska stúlku, skyldi þess grimmilega hefnt; það var eins gott að þeir gerðu sér það ljóst, að hann mundi ekki hika við að stinga hvern þann hnífi . . . ekki hika við að myrða og drepa . . . Hann sá að Þoturnar fylktu liði, 36 VIKAN eins og til atlögu. Hákörlunum var ekki neitt að vanbúnaði heldur. Chino gekk með Maríu út úr dyrunum, leit um öxl til Bernardo, sem gaf hon- um merki um að halda rakleitt heim með hana. Hann drakk enn, fann að hann var með öllu ódeigur og reiðu- búinn að láta hart mæta hörðu. Að vissu leyti fagnaði hann því að til átaka skyldi draga einmitt nú í nótt. Það mundi verða til þess, að á morgun þyrfti engin Porterikani óttast um sig á götum úti. Hann sá Hreyfilinn og Riff tala ákaft saman og líta öðru hvoru á Tony, eins og sigri hrósandi. Sjálfur var Bernardo dálítið hissa á því, að Tony skyldi hafa farið að dansa við Mariu. Þó furðaði hann sig erm meir á hinu, hversu hæversklega hann hafði kom- ið fram við hana. Það var í rauninni leiðinlegt að þurfa að segja Maríu hvílíkt úrhrak hann væri, og Þeir allir. En hjá því varð ekki komizt. Hvorki hann né aðrir af Hákörl- unum höfðu gerst til Þess að móðga þá að fyrra bragði. Þeir höfðu meira að segja verið reiðubúnir að fara að orðum þessa heimskulega dansstjóra og taka sporið með bandarísku stúlk- unum. Þetta var því ekki Bernardo. eða hans mönnum að kenna. Kanarn- ir vildu gera upp sakirnar, og Bern- ardo var maður til að standa fyrir sínu. Honum hafði borist það til eyrna, að Þoturnar hefðu í huga að skora Hákarlana á hólm; þess vegna hafði hann beðið Hákarlana að fjölmenna á dansleikinn. Og Þoturnar voru þarna, allt eins og hann kaus helzt, hið eina, sem hann hafði misreiknað var það, að hann skyldi leyfa Maríu að koma á dansleikinn. Hann hneppti að sér jakkanum, stakk höndunum I vasana, gekk föst- um skrefum þvert yfir gólfið og nam staðar gizka tíu fet frá Riff. Hákarl- arnir stóðu fylktu liði á bak við hann. „Voruð þið að svipast um eftir mér?“ Riff virti Bernardo fyrir sér um hrið. „Það má rétt vera“, svaraði hann eftir andartaks Þögn. „Við þurf- um að tala við herráð ykkar, það er að segja, ef þið eruð það. vel skipu- lagðir, að þið hafið eitthvert herráð". „Minn er heiðurinn og ánægjan“, svaraði Bernardo og hneigði sig. Þeir skyldu fá að sjá það, þessir óupp- dregnu Kanar, að hann kynni að koma fram sem prúðmenni sæmdi, hvernig sem á stóð. „Við skulum skreppa út fyrir“, sagði Riff. Bernardo leit þangað sem stúlk- urnar stóðu, síðan á Riff og glotti hæðnislega. „Við skiljum stúlkurnar okkar ekki einar eftir", sagði hann. „Hvar getum við hitzt . . . eftir svo sem klukkustund?“ „1 sælgætisbúðinni miðstrætis", svaraði Riff. „En því ekki í sælgætisbúðinni i húsinu þar sem ég á heima?“ spurði Bernardo og hló hæðnislega. „Nei, við skulum hittast á hlutlausum stað, til dæmis I Kaffikönnunni — þið vit- ið hvar sú sælgætisbúð er. Eða kann- ski við ættum að sprengja þar nokkr- ar ólyktarsprengjur, svo þið getið runnið á þefinn? Kaninn, sem á hana, hefur áreiðanlega ekki neitt við það að athuga“. Riff kinkaði kolli. „Þá hittumst við í Kaffikönnunni", svaraði hann. „Og höfum frið þangað til“. Bernardo lyfti hendi, eins og hann vildi gera honum það ljóst að orð sin ættu við um alla Hákarlana. „Við þekkjum leikreglurnar og höldum þær . . . innfæddi Kani". Það var- eins og hann spýtti út úr sér siðustu orð- unum. „Það er gaman að heyra það, að þið kunnið þó eitthvað", varð Riff að orði um leið og hann sneri sér að Hreyflinum. „Láttu þetta berast", sagði hann. Hreyfillinn myndaði hring með þumalfingri og vísifingri. „Allt í lagi“, svaraði hann. Leit síðan á Bernardo. „Hnúar mínir bíða Þess með eftir- væntingu að mega komast í náin kynni við túlann á þér“, sagði hann ögrandi. „E?kki neitt kjaftæði", sagði Riff byrstur. „Nú liggur það næst fyrir að koma hænunum heim". Hann svip- aðist um, sá að Tony stóð þarna enn og starði til dyra. „Komdu hingað, Tony“, kallaði hann. Riff vissi það aldrei hvort Tony heyrði til hans eða ekki. Víst var um það, að hann lét sem hann heyrði ekki kallið, þvi hann gekk beint til dyra, og það var eins og hann gengi í leiðslu. Það var eitthvað athuga- vert við hann, svo mikið var vist. Sennilega veikur, hugsaði Riff, og að öllum líkindum meir en lítið veik- ur. 1 höfðinu . . . En Þar var um að ræða leyndar- mál, sem hann hirti ekki um að hreyfa við neinn. Hann lét þvi sem ekkert væri, sneri sér að þeim, Hreyflinum og Diesilnum, og til þess að koma í veg fyrir óþarfa spurningar, bauð hann þeim að fara beinustu leið heim í vopnabúrið og hafa allt tilbúið, þvi enn var ekki víst hvaða vopn Bern- ardo kynni að kjósa. Það skipti ekki heldur svo miklu máli. Berardo mundi sjá eftir öllu saman, með hvaða vopnum sem svo yrði barist . . . Framhald I næsta blaði. HuMíiiiimwn vtöákM JTwctu súkku/ctði!

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.