Vikan


Vikan - 05.04.1962, Qupperneq 11

Vikan - 05.04.1962, Qupperneq 11
Sigurður Waage, 34 ára og kunnur fjallgöngu- garpur, kleif m. a. Hraundranga í Öxnadal. Verkstjóri hjá Sanitas. Þrektala 41. syn og meira aSkallandi en margir hyggja. c f Þolrannsóknir í skólum. Svíar urSu fyrstir til að hefja markvissar þolrannsóknir í skólum. Rannsóknir þessar hóf- ust 1959 og eru framkvœmdar reglubundið við 10 menntaskóla. Nti eru svipaðar samanburðar- rannsóknir framkvæmdar í Noregi, Danmörku, Þýzkalandi og Bandaríkjunum. Gerð hafa verði skyndipróf við nokkra skóla i Reykjavík. Nauðsynlegt er að hefja hér regluhundnar rannsóknir í skólum. Með þvi er hægt að bera saman þrek islenzkrar skólaæskti og jafnaldra meðal annarra þjóða. Danskur brautryðjandi. Arið 1920 hlaut danskur lifeðlisfræðingur Nóbels-verðlaun. Hann hét August Krogh og mun hafa verið einn mesti uppfinnari og braut- ryðjandi í vinnulíffræði fyrr og síðar. Hann fann upp þrekmæli, samnefndan honum „Kroghs ergometer“. Þessi kraftmælir hefur sennilega verið til drýgri nota en flest önnur óhöld sem notuð eru við vinnupróf. Áhald þetta líkist reiðhjóli og sézst hér á með- fylgjandi myndum, þar sem verið er að taka vinnupróf, eða þolpróf eins og það er kallað. Kroghs-hjólið er nú til í mörgum afbrigðum. Það er notað fyrir austan tjald og vestan. Við ýms tækifæri getur það verið nauðsynlegt, að afla raunhæfra upplýsinga um starfsþrek eins eða annars, t. d. íþróttamanna á þjálfunarskeiði. Erlendis eru hermenn þolprófaðir og víða flugmenn. Á flestum stærri sjúkrahúsum eru sjúklingar þolprófaðir í margvíslegum tilgangi. Verksmiðjufólk og fólk i ýmsum iðngreinum er þolprófað og þannig fylgzt með áhrifum ein- hliða vinnu á liðan og heilsu. íþróttamenn eru þolprófaðir og sums staðar alveg reglulega ár eftir ár. Hvað er þolpróf? Að mæla þol manna, er það sama og að mæla Gestur Einarsson, vélvirki í Steðja, 21 árs gamali. Reykir ekki en hefur ekki stundað íþróttir í tvö ár. Þrcktala 33, sem samsvarar meðallagi um fimmtugt. hæfni þeirra til orkumyndunar á tímaeiningu. Starfsorka likamans myndast á tvennan hátt: a) anaerobt, þ. e. a. s. án súrefnis b) aerobt, eða við bruna. Við hámarksáreynslu er varir stutta stund, t.d. nokkrar sekúndur, þegar við hlaupum upp stiga, tökum spretthlaup, lyftum byrði, o. fl. myndast starfsorkan fyrir niðurrif orkuríkra efna, lokastigið er sundurdeiling vöðvaglyko- gensins anaerobt og myndun mjólkursýru. Ork- an, sem myndast á þennan hátt getur náð 3—5 hestöflum. Við langvarandi áreynslu, t.d. allar þolíþróttir, myndast starfsorka aerobt, þ. e. a. s. næringar- efnin brenna vegna tilkomu súrefnis og um leið myndast koldíoxyd og vatn Hin aeroba starfsorka er háð: a) hæfni hjartans og blóðrásarfæranna. b) hæfni öndunarfæranna. Sem dæmi um afköst hjartavöðvans má geta þess, að hann dælir blóðinu (4—6 lítrum) eina umferð á 1 minútu í hvild og slær 40—80 sinn- um á sama tima. Við hámarkserfiði dælir það allt að 40 lítrum á sama tíma, þ. e. a. s. 1 minútu og slær um 200 sinnum eða oftar á mi'nútu. Um afköst öndunarfæranna er svipað að segja. Við öndum 5—6 lítrum á minútu i hvíld, en við hámarkserfiði allt að 150 lítrum á sama tíma. Með öndunarloftinu flytjum við súrefnið til lungnanna og siðan með blóðinu eða réttara sagt með rauðu blóðkornunum til allra vefja líkamans, þar sem bruni fer fram. Saman fer við aukið erfiði: a) örari hjartsláttur og meira blóðmagn streymir gegnum hjartað og blóðrásar- færin á mínútu. b) tiðari öndun og meira loftmagn er flutt gegnum önudnarfærin á mínútu. Mæling ó þolhjóli byggjast á þeirri þekktu forsendu, að slagafjöldi á mínútu og súrefnis- upptpaka fylgja samlægum línum. Þorgeir Guðmundsson, bóndi í Gufunesi 58 ára. Fyrrum handhafi Grettisbeltisins í glímu og Íslandsmethafi í kúluvarpi og kringlukasti. Hefur alltaf unnið við land- búnað og erfiðað mikið. Hann hefur þrek- tölu 40 sem samsvarar meðalþreki manns um fertugt. Séu blóðrásar- og öndunarfærin ekki fær um, einhverra hluta vegna að auka afköstin frá hvildarstarfsemi sinni, er viðkomandi heldur ekki fær um að auka vinnuafköst sín nema að sama marki og þessi líffæri leyfa. Efnaskipti 20 ára karlmanns, sem er 80 kg að þyngd, eru í hvíld 80 kílókaloríur = 80 stór- ar hitaeiningar á klukkustund. Til að mynda 5 stórar hitaeiningar þarf blóðið að flytja 1 líter af súrefni til vefjanna. Við þurfum þvi um 16 lítra af súrefni á klukkustund til að við- halda hvíldarefnaskiptunum eða 0,30 litra á mínútu, þ. e. a. s. 5 lítra af öndunarlofti á mín. Þvi meir sem einhver getur aukið efnaskipti sín fró hvíldarefnaskiptingu, þvi meiri er hæfni hans til mikilla afreka í þoliþróttum. Hið svonefnda „prófgildi“ einstaklingsins fæst með þvi að deila þyngd viðkomandi i súr- efnisupptökuna í lítrum. Notuð er sérstök tafla fyrir karla og önnur fyrir konur. Meðal súrefnisupptaka fyrir þjálfaða karla er Frainhald á bls. 27. Þeir sem hafa áhuga fyrir því að fá þol sitt mælt, geta snúið sér til Benedikts Jakobssonar, íþróttahúsi Háskólans, og hann mun gefa allar nánari upplýs- ingar. Erlendis geta menn feng- ið þessa þjónustu hjá vísinda- stofnunum, t. d. annast Lífeðlis- fræðistofnunin í Stokkhólmi slíkar mælingar fyrir sænska atvinnurekendur, sem vilja vita, hvort menn hafi nægilegt þol fyrir erfið störf. vikan xx

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.