Vikan


Vikan - 05.04.1962, Side 29

Vikan - 05.04.1962, Side 29
Toni heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meðfærilegt Með TONI fáið pér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að “leyniefni” Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það. Ekkert annað permanent hefir “leyniefni”. það er eingöngu í Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Einn þeirra er einmitt fyrir yður. Toni framleiðsla tryggir fegursta hárið heföi horft á það sjálfur, þegar Juan kom svifandi upp úr þrónni — en sú lygi kom Juan vel. Sjeikinn lét baða hann og bera honum dýrlegar kræsingar. „Það er svo aö sjá, sem djúkinn Þinn hafi klórað Þig á bak- inu“, sagöi hann. „Já, hann er dálítið harðhentur", svaraði Juan — og mátti til sanns vegar færa, því að sú er trú sígauna, að djúkinn ráöi örlögum sérhvers memns. Þegar veizlunni var lokið, lét sá hinn illi sjeik leiða Juan allsnakinn upp i háan turn virkisrústa nokkurra í grennd við tjaldbúðirnar. Einn lít- ill gluggi var efst á turninum og eng- inn hleri fyrir. „Þér er frjálst að ganga út og inn um gluggann með aðstoð djúka þíns. Sjáðu . . . það eru ekki nema um fjörutíu fet niður í mjúkan sandinn". Þegar Juan var einn orðinn, varð honum litið út um gluggann. Sá hinn illi sjeik hafði að visu sagt Það satt, að ekki voru nema um fjörutíu fet niður I mjúkan sandinn. Hins vegar hafði hann ekki getið þess að múrinn var alsettur löngum, uppsveigðum og oddhvössum járngöddum, en um fimm- tán fet frá gluggakistubrúninni og niður að efstu gaddaröðinni — ber- sýnilega með ráðum gert, til Þess aö fangarnir gætu ekki stokkið út, Þvl að þá mundu þeir festast á göddunum og rifna á hol. Ef ég hefði reipi, þótt það væri ekki lengra en sex fet, hugsaði Juan Gutierrez með sér, þá væri mér borg- ið. En hann hafði hvorki reipi né neitt annað; hann var allsnakinn og í klefanum var ekki neitt lauslegt. Juan settist á gólfið og tók að hugsa sitt ráð . . . tók að hugleiða hvílík ósköp af köðlum og reipum og bönd- um hann hefði handleikið á undan- förnum árum . . . úr hampi, strái og hrosshári. Hrosshári? Hans eigið hár var meira en átján þumlungar á lengd. Einhvers staðar hafði hann heyrt að það væru hundrað þúsund hár á hverju karlmannshöfði. Og hár hans var þétt og sterkt. Þurfti hann annars við? Og tafarlaust tók hann að reita af sér hárið, hvert á eftir ööru, og flétta úr þvl sterkt reipi. Aö sex viknum liönum var hann orðinn ber- sköllóttur — en þá var reipiö líka orðið eins langt og með þurfti. Ekki veittu fangaverðirnir þvi þó neina athygli, að útlit hans heföi tekið nokkrum breytingum. Þeir höfðu séð svo marga af föngum sín- um missa hár sitt og tennur — og vitið líka. En svo mikinn áhuga hafði sá hinn illi sjeik á því að sjá hvernig djúkinn færi að því að bjarga Juan úr klipunni, eða hvort honum tækist Það, að hann lét flytja tjald sitt sem næst turninum; inni í því sat hann svo og beið, reykti og drakk kaffi — en Juan var staðráðinn í því, að þetta skyldi ekki verða honum neitt skemmtiatriði, auk þess sem hann gerði sér ljóst aö leyndin sakar ekki þegar þvi er að skipta. Því var það, að eina nóttina þeg- ar hann vissi að sjeikinn var í fasta- sveíni, brá hann reipinu um krók i gluggakistunni, sem einhverntima hafði verið notaður fyrir hlerafest- ingu, og lét sig siga niður. Um leið og hann náði fótfestu á efsta krók- gaddinum, var þrautin unnin; eftir það var auðvelt að handstyrkja sig niður eftir göddunum, og að tveim mínútum liðnum stóð hann óskadd- aður á mjúkum sandinum. Sól reis á himni, sá hinn illi sjeik kom út úr tjaldi sínu til að vegsama Allah og Múhammeð ■— og Þarna stóð Juan Gutierrez frammi fyrir honum. Nú urðu Beduinarnir fyrst undrun slegnir. „Gakktu í þjónustu mína ásamt djúkanum þínurn", mælti sá hinn illi sjeik, „og ég skal gera mikla virðingu þína“. En þegar Juan neitaði því góða boði, móðgaðist sá hinn illi sjeik. „Farðu þá“, sagði hann, þegar hann hafði látið færa Juan i góð klæði. „Taktu með þér vatn, nesti og hnif, og farðu. Þú færð sólarhring í forskot, en að honum liðnum veiti ég þér eftirför, ásamt mönnum mín- um. Ef við náum þér, gerist þú minn maður, annars ertu frjáls. Þetta er drengileg keppni", sagði sá hinn illi sjeik, „þvi að þú hefur þinn djúka, en við höfum ekki nema hestana okkar". Juan Gutierrez hélt af stað. Hann miðaði átt við sól og hélt í norður, i stefnu á hafið. Hann vissi að þess var engin von, að hann kæmist und- an Sandurinn var laus undir fæti og gangandi manni sóttist íerðin seint. Og þar eð hann hafði ekki nema sól- arhrings forskot, mundu riddarar Beduina ekki verða lengi að ná hon- um. Þótt útlitið væri ekki betra en þetta, var honum létt í skapi. Mundi nokkrum hafa tekizt að sigra þær þrautir, sem hann hafði þegar sigr- að? Það lá við sjálft að hann væri farinn að leggja trúnað á orð gömlu sígaunakerlingarinnar, tryði þvi sjálf- ur að hann ætti sér djúka, sem aldrei þryti ráð — eyðimörkin og sólskinið hefur furöuleg áhrif á menn. Juan Mim siniia VISCOSA. yikan 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.