Vikan - 02.08.1962, Page 6
VOLVO P 544
Séreinkenni: Tveggja dyra 5 manna fólks-
bíll, heldur gamaldags i ytra útliti, en ný-
tízkulegur að innan. Öryggisbelti í standard-
framleiðslu. Allur virðist billinn vandaður
og traustbyggður. Af ýmsum ástæðum er
óhætt að mæla sérstaklega með honum fyrir
islenzkar aðstæður.
Að innan: Framsætin, tveir aðskildir stól-
ar, sem læknir hefur teiknað, sérlega þægi-
legir að sitja í, færanlegir fram og aftur, en
halli á bökum ekki stillanlegur með góðu
móti. Ókostur er að bökin í framsætunum
læsast ekki. Aftursæti er einnig ágætt að sitja
í og rúmgott er bæði i aftur- og framsætum.
Ágætt er að komast inn i bilinn. Nokkuð
lágt er til lofts í aftursæti, en prýðilegt í
framsætum. Sólskyggni er aðeins fyrir öku-
mann, en leiðinleg sparsemi að hafa ekki
annað fyrir farþega í framsæti.
Rúðuþurrkur eru rafmagnsdrifnar, en að-
eins einn hraði. Vatnssprauta er á framrúðu
og er rafmagnsdæla sem dælir vatninu upp.
Hemlabúnaður: Vökvaþrýstihemlar með
miklum viðnámsfleti, léttir í ástigi og virka
vel. Handhemill er vel staðsettur á milli fram-
sætanna, virkar á bæði afturhjól. Heldur er
hann þungur i átaki, sérlega fyrir kvenfólk.
Farangursrými er að aftan, í meðallagi
stórt en rúmar vel. Einnig er stór hilla aftan
Lwz-__ . .
við aftursætið sem þægilegt er að geta lagt
ýmislegt smávegis á.
Fjöðrun: Gormar að aftan og framan.
Fjöðrunin góð og demparar taka bæði slög.
Aksturseiginleikar eru góðir. Bíllinn ligg-
ur vel á vegi á miklum hraða, er viðbragðs-
fljótur en gæti verið betri ef við ættum kost
á betra benzíni, þar sem þjöppunarhlutfallið
er 8,5:1 í vélinni.
Áður en yfirbyggingin er máluð hjá verk-
smiðjunni er hún böðuð upp að gluggum með
fosfatböðun, sem á að ryðverja hana.
Tæknilegar upplýsingar: Vélin er 4 strokka,
4 gengis toppventlavél, 75 hö við 4500 sn/m,
vatnskæld og er staðsett framan í bílnum.
g VIKAN