Vikan - 02.08.1962, Qupperneq 14
LESTU BARA VIKUN A
OG Þ Á VEIZTU ALLT UM BLÓM
Rætt við Pál Michelsen í Hveragerði
— Aðsókn að gróðarstöðinni hjá mér hefur
aukizt geysilega síðan ég byrjaði að skrifa
hlómaþættina í Vikuna, sagði Paul Michel-
sen, þegar við heimsóttum hann á dögunum.
— Fólk skrifar utan af landi og biður um
j^blóm, sem nefnd hafa verið í þættinum og
" þá sendi ég þau í flugi. Annars hef ég ekki
alltaf blóm sem ég skrifa um í þættinum,
en þau eru þá til í öðrum gróðrarstöðvum
og ég vísa þá á þau þar. Þeirn finnst það
nú skrýtið hérna, en ég er ekki afbrýði-
samur út í keppinauta mína hér i Hvera-
gerði; get vel unnt þeim þess að selja eitt-
hvað því mér gengur svo vel.
— Það er gleðilegt að vel gengur. Þarna
sérðu, hvað Vikan hefur mikið auglýsinga-
gildi. Hvað ertu annars búinn að vera lengi
í Hveragerði?
— Síðan í janúar 1932. Þá var ólíkt um-
horfs i Hveragerði og nú er. Það munu hafa
v^rið náíægt tíu íbúðarhús og tvö gróður-
hús. Þeir feðgar, Sigurður búnaðarmálastjóri
og Ingimar í Fagrahvammi, sonur hans, áttu
þau. Ég réðst lærlingur til þeirra. Þá var
fariö að rækta tómata, melónur og blóma-
ræktin komin á sæmilegan rekspöl. Þessar
afurðir voru seldar af vagni í Reykjavík
og alltaí' seldist allt þrátt fyrir kreppuna.
En verðið var víst líka afskaplega lágt. Svo
stofnuði Ragna, systir Ingimars, blómabúðina
Fióru, fyrst á Vesturgötu og síðar í Austur-
stræti. Nú, það álti fyrir mér að liggja að
vera þarna hjá Ingimar í heil 25 ár. Ég fékk
meira að segja vinnuhjúaverðlaun Búnaðar-
félags íslands fyrir aldarfjórðungs þjónustu
við sama húsbónda.
— Svo þú hefur alla þína vizku frá Ingi-
mar?
— Ekki segi ég það nú. Ég lærði hjá hon-
um í tvö ár, en þá fór ég til Danmcrkur og
var þar bæði á skóla og í gróðrarstöðvum.
Danir eru afbragðs garðyrkjumenn og við
höfum bezt gagn af þvi að læra hjá þeim
allra aðstæðna vegna.
— Svo hefur þú byrjað sjálfstætt eftir
vinnuhjúaverðlaunin?
— Já, að visu var ég eitt ár hjá Ingimar
eftir að ég byrjaði. Þá hafði maður tómata
og gúrkur og pottaplöntur innan um. En það
var aðeins fyrsta árið. Þá hætti ég alveg
við tómata og sneri mér eingöngu að potta-
plöntum. Nú hef ég um 400 tegundir í hús-
unum og það mun óhætt að segja, að hvergi
sé til á einum stað annað eins úrval.
— Er ekki talsvert um það, að komið sé
með útlendinga til þín til þess að sýna þeim
gróðurhúsin?
— Það er stöðugur straumur af þeim. Á
s'ðasta ári komu hingað fjögur þúsund út-
lendingar á vegum Ferðaskrifstofunnar. Ég
taldi þá saman að gamni mínu. Oftast eru
aðeins óþægfhdi af þeirri umferð, því þcss-
hrttar fólk kaupir a clrei neitt. En ég hef
gain.m af ])ví saint, og ég sé ekki ástæðu til
að neita ].vl um að sjá gróðrarstöðina.
— Það má segja, að alla hátíðisdaga og
sunnudaga sé fullt af fólki, sem kemur til
b i'makaupa. Mikið af því er sama fólkið,
sam f emur ár eftir ár og oft á hverju sumri.
Biómarækt fer mjög mikið vaxandi, enda
eru blóm ódýrasta skreytingin, sem völ er
á. Allar nýjar verzlanir, kaffihús eða hótel
eru með blómaskreyfingmn. Blóm hafa hækk-
að mjög lítið í verði og miklu minna en flest
annað.
— Eru ekki einhverjar tízkusveiflur í
blómaræktinni?
— Jú, talsverðar. Nú er ég með mikið
úrval af alls konar kaktusum sem eru mjög
vinsælir um þessar mundir, sérstaklega hjá
Framhald á bls. 42.
Grófyrðiii lifa 1 mál-
inu og kláinið er
tjáningr frnmstæðra
lirafa. F.vndniii er
fág^aðra tjáningfa-
form, sein grefur 1
skyn með hnitmiðnð-
iiin listbrögrðum |»að
sem ekki má segja
með berum orðiim
■ *- "T' 3
•' ”•••-• •• •>..
.aKmaaflk:.nrtiRaLtiA♦i.'i. / .i tiúkrt; j'.íe.,*.
NE3TT
Fátt er lystugra en góður, kaldur mat-
ur, borðaður undir berum himni — úti
í guðs grænni náttúrunni. Það þarf að
búa vel um slíkan mat áður en að heim-
an er farið og er málmpappír ágæt
hjálp við það. Sé brauðið smurt áður
en lagt er af stað, er heppilegt að búa
úr þvi samlokur. Líka má smyrja lang-
brauð, sem er svo skorið i sneiðar eins
og kaka, brauðin eru þá skorin i sundur
eftir endilöngu í 2—4 lög, hvert lag
smurt með áleggi, síðan allt lagt saman
aftur og skorið í sneiðar, þegar komið
er á áfangastað. Líka má búa til ýmsa
smárétti, sem Ijúffengir eru lcaldir og
verða hér á eftir gefnar uppskriftir að
nokkrum samlokum og smáréttum.
14 VIKAN