Vikan


Vikan - 16.08.1962, Blaðsíða 9

Vikan - 16.08.1962, Blaðsíða 9
BSjll lilii : ^ívxwxví: ■ umfram hið óhjákvæmilega og nauðsynlega. Unga fólkið getur ekki sætt sig við, aS yfir hverju fótmáli þess sé vakað. Og þegar það neyð- ist til að rjúfa höft og bönn með því að segja skakkt til aldurs, þá þykir flestum fyrir því að gera það og telja það áreiðanlega illa nauðsyn. Það, sem þörf er að gera í þessu brýna hags- munamáli unga fólksins, er að opna tafarlaust samkomuhús við þess hæfi, sem ekki eru lakari en samkomuhús þeirra, sem eldri eru; hús, þar sem skemmtanir og veitingar eru við hæfi ungl- inga, en þó hvorki ofboðslegar né hraksmánar- legar. Verði orðið við þessari þörf, munu á skammri stund skipast veður í lofti. Æskan mun ekki þurfa að smygla sér inn á skemmtistaði hinna rosknari og ráðsettari. Og æskan mun ekki þurfa að drekka sig fulla af brennivini til að láta sér e-kki leiðast. í kjölfar þessara húsnæðisvandræða hafa siglt hinar fjölmörgu sjoppur, sem mörgum og þó einkum foreldrum og aðstandendum ungling- anna, hefur staðið ærið mikill stuggur af. Sökum þess að unglingarnir eiga hvergi sama- stað i skemmtanalífi bæjarins, þyrpast þeir á þessa staði því þar geta þeir verið saman óáreittir. Þar koma ungu stúlkurnar og ungu piltarnir saman lil að ræða hagsmuna- og á- hugamál sín. Yfir kókflöskunni, með vindlinginn i öðru munnvikinu, ræða þau landsins gagn og nauðsynjar og sýnist sitt hverju. Siæm úrlausn á húsnæðisvandræðum mun þetta eflaust vera að flestra áliti. En það þýðir ekki að berja höfðinu við steininn og spyrja fávíslega, hvers vegna í ósköpunum krakkarnir fari ekki annað. Svarið er ósköp stutt og lag- gott: Unga fólkið hefur ekki í annað hús að venda. Róttækasta og um leið æskilegasta leiðin til úrbóta yrði án efa sú, að hið opinbera kæmi hér til móts við eigendur skemmti- og dansstað- anna, og gerði þeim með einhverjum hætti kleift að bjóða unga fólkinu holla og heiðarlega skemmtun, sem enginn unglingur og ekkert sam- komuhús þyrfti að skammast sín fyrir. Blaðið hefur snúið sér til nokkurra reykvískra unglinga og rabbað við þau um vandamál það, sem hér er fjallað um. Fara samtölin hér á eftir: á * * -*■ SIGURJÓN GUNNARSSON (18 ára) Er það rétt, að reykvískir unglingar eigi yfirleitt hvergi aðgang að dansleikjum i borg- inni? — Það er alveg rétt. Aðeins einn eða tveir staðir veita fólki innan 21 árs inngöngu á dans- leiki sína. Aldurstakmörk þessi eru að vísu að- eins að nafninu til. Auðvitað er mikið um, að krakkarnir fari í kringum þessar reglur. — Ástandið er sem sagt slæmt í þessum efn- um? — Já, mjög slæmt. Að visu skánaði það um tima i vetur, þegar Gúttó var opið. — Hvað gætir þú hugsað þér, Sigurjón, að orðið gæti til að ráða bót á vandræðunum? — Ja, fyrst og fremst þetta, — að krakkarnir fái einhvern samastað. Það er alveg nauðsyn- legt að fá hús með viðeigandi hljómsveit. — Hvað taka unglingarnir til bragðs, þegar þeim er úthýst af svo mörgum skemmtistöðum bæjarins? — Þá leita þeir náttúrlega út fyrir borgina. Þar er ekki eins strangt eftirlit og meiri mögu- leikar á inngöngu. — Hvaða staðir verða helzt fyrir valinu, þegar út fyrir borgina er komið? — Það eru helzt staðir eins og Hvoll, Hlégarð- ur o.fl. Framhald á bls. 41. Útlagar stinga saman nefjum. Því miður alltof ungar--------------- Æskunni er úthýst af skemmtistöðunum, en sjoppur og sveitaböll verða athvarf unglinganna VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.