Vikan


Vikan - 16.08.1962, Blaðsíða 36

Vikan - 16.08.1962, Blaðsíða 36
inu. Bini fann hvernig hann varð spenntari og spenntari. Svona átti iífið að vera, ráðast á óvinina að nóttu til, læðast hljóð- laust áfram. Ilann kreisti ímyndaða byssu f sveittri höndinni og reyndi að láta fótatakið ekki heyrast. — Það er ekki nokknr sála inn- an tiu kílómetra, hvíslaði Don. En við verðum að vara okkur á lögreglu- bilnum. Nú voru þeir komnir að liúsinu. Don tók stein og braut með honum rúðu i kjallaranum, stakk höndinni inn um gatið og opnaði gluggann. í sömu andrá stóðu þeir báðir inni í húsinu. — Þetta er ekkert, hvíslaði Don. Bara ef maður veit, hvernig á að fara að því. — Það er eins og þú hafir gert þetta áður. Don hrissti höfuðið. — Nei, en ég hef hugsað um það. Ég gæti stolið öllu i þessu húsi og engum mundi detta í hug að gruna mig, með svona ríkan pabba og allt, sem ég þarf. Það mundi vera hinn fullkomni giæpur. — Er það til þess, sem þú fórst hingað? Til að stela? Don hló. — Þvi ætti ég að gera það? Hvað ætti ég að gera við þetta dót? Komdu nú! Bud elti hann upp kjallarastigann. Augu hans höfðu vanizt myrkrinu og dauft tunglsljós skein inn um gluggann. Þegar þeir komu inn i dagstofuna, sýndist honum fyrst, að húsgögnin væru svo undarleg í lög- un, en svo sá hann, að breidd höfðu verið lök yfir þau. Hann mundi ó- skýrt eftir því, að einhvern tima höfðu húsgögnin heima hjá honum verið með hlífðarlök. Mamma hans hlaut að hafa gert það, hugsaði hann. Mamma hans, sem hann mundi svo óljóst eftir, með andlit eins og hvitan blett, innrammaðan dökku, mjúku hári. Einhvern tíma hlaut hún að hafa lagt lök yfir húsgögnin þeirra. Stóllinn með gormunum upp úr sætinu, upplitaði sófinn, sem var slitinn og blettóltur, þetta hafði ver- ið nýtt og fínt og sveipað laki. Don tók eitt iak og vafði um sig og cngdist af hlátri, og Bud gerði eins. Þeir eltu hvor annan í dimmri stof- unni og hoppuðu á gólfinu eins og tveir draugar. Don snarstanzaði og Don hraut um hann og hentist á litið borð. — Hjálp, hvislaði Bud. Heldurðu að ég hafi brotið það? — Hvað gerir það til? Don kastaði frá sér iakinu og lyfti borðinu upp. Hann hélt því eins og bolta og spark- aði því út í herbergið. Það heyrðist brothljóð, þegar það skall í vegginn. Hann tók upp vasahníf og hljóp að sófanum. Andardráttur hans var svo þungur, að Bud heyrði hann greini- lega. Með snöggum handtökum risti hann áklæðið, tók hnefafylli af fiðri og stráði þvi um herbergið. Svo fór hann eins með stólana. _ Náðu i vatn, sagði hann. Bud stóð á miðju gólfi og starði. — Af hverju er þér svona illa við þau? hvíslaði hann. Hvað hafa þau gert þér? — Hver? — Þau, sem eiga hér heima. — Mitchellsfólkið? Ég þekki þau ekki einu sinni. —- En af hverju.... — Hvað er að þér? Ertu hrædd- ur? — Ég bara skil ekki af hverju þú villt eyðileggja allt hér. — Bara til að vera svalur, asninn þinn. Bara til að gera einhvern hasa. Hann ýtti Bud frá sér. Ég skal sækja vatnið sjálfur. Ég hcfði átt að hafa vit á því að taka ekki svona ræfil með mér. Bud fann, að hann fór að titra. Hann var enginn ræfill. Hann var enginn eftirbátur Dons, hann gat gert allt, sem Don gerði. Hann skyldi sýna honum það. — Ég sæki vatnið, sagði hann. Hann hljóp út í eldhúsið og fyllti stærstu fötu, sem hann gat fundið. Hún var svo þung, að hann riðaði með hana í höndunum. Hann bar hana að flakandi sófanum og hellti vatninu yfir hann. Nú var ekki lengur hægt að gera við hann. Nú var hann verri en upp- litaði gamli sófinn, sem mamma hans hafði einhvern tíma sveipað laki. Hann fór aftur og aftur fram eft- ir meira vatni og hellti því yfir allt þarna inni. Hendur hans titruðu og hann var lafmóður, eins og hann kæmi af harðahlaupum. Hann ætlaði að gera meira en Don — og verra en Don. Hann æti- aði að eyðileggja þetta hús almenni- lega, og ef lögreglan næði honum, ætlaði hann bara að hlægja þegar þeir tækju myndir af honum fyrir blöðin, og þá skyldi Don sjá hvort hann væri huglaus. Allt í einu heyrði hann rödd Dons, skæra og alveg rólega. — Við verðum að fara núna, Bud. Lögreglan getur komið. Bud stóð hreyfingarlaus nokkra stund. Hann horfði á rennblaut hús- gögnin. Einhvern tíma koma þau heim og sjá þetta. Konan fer að gráta.... Hann hélt, að nú færi hann að gráta sjálfur. Hann andaði djúpt. Hvað var að honum? — Ég er ekki hræddur við lög- regluna, sagði hann, en Don tók um handlcgg hans og ýtti honum út. Þeir voru komnir yfir hálfa gras- flölina, þegar þeir sáu bílinn koma og stanza. Þeir köstuðu sér á jörð- ina og sáu lögregluþjón stíga út með vasaljós. _ Liggðu kvrr, hvíslaði Don. Þetta er bara venjulegt eftirlit. Þegar hann er kominn hinum megin við húsið, hlaupum við. Þeir voru rétt komnir á hjólin, þegar þeir heyrðu í lög- reglubilnum bak við sig og hann ók hratt. Þeir beygðu út frá veginum og inn i girðingu. Þar stukku þeir af hjólunum og byrjuðu að hlaupa. Þeir heyrðu bílinn stanza, en þá voru þeir orðnir ósýnilegir i myrkrinu. Bud sá ljós í íbiiðinni á fjórðu hæð, þegar hann beygði inn í götuna. Pabbi sat alltaf og beið eftir hon- um, eins og hann væri smástrákur. Venjulega varð hann ergilegur yfir því, en ekki i kvöld. Honum leið illa, eins og hann væri að verða veikur — alveg eins og áður en hann fékk skarlatssóttina. Pabbi sat i sófan- um og lagði kapal. Hann sat þann- ig, að hann huldi slitnasta blettinn. Sófinn var ekki sem verstur, þegar þessi blettur sást ekki. Hann var að minnsta kosti ekki sundurskorinn. — Ég er kominn heim, sagði Bud. Pabbi leit upp. — Ég sé það, sagði hann, og hélt áfram við kapalinn. Bud neri sam- an höndunum. Ótrúlegt en sntt... FYRIR TÆPAR 3.000. Verzlunin FAFN I R Skólavörðustíg 10 - Sími 12631. BARNAVAGN BURÐARÚM & BARNAKERRA Saumum skerma og svuntur á barnavagna og kerrur. PÖSTSENDUM UM ALLT LAND. 36 v«AN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.