Vikan - 16.08.1962, Qupperneq 30
SUNDBOLTR
-•■■'v
model 1962
>AV* i. v •
Volio efoi
“'"ustu snið
* " (breyttnstn úrvnt
Biðpið um
— og þér fáið það btzta
„30. VIKAN
k
II
* -
4
'biipnar
* *L
m
f;"«T
Stjöruuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Þetta veröur
dálitið óvenjuleg vika, einkum hvað allt félagslíf
snertir. Þú munt fara í skemmtilegt samkvæmi,
þar sem ýmislegt nýstárlegt gerist. 1 vikulokin
færðu skemmtilega hugmynd — en líklega væri
þér réttast að hugsa ekki meira um þetta — láta þetta
bara vera hugmynd, því þetta er ekki hægt.
NautsmerJciö (21. apríl—21. maí): Vinur þinn ger-
ir þér ómetanlegan greiða i vikunni. Ekki er samt
víst, að þú kunnir að meta þennan greiða hans
— takir jafnvel ekki eftir þessu. Mánudagurinn
verður allt öðruvísi en þú hafðir gert ráð fyrir
— ekki þarftu samt neinu að kvíða þann dag. Taktu ekki
nærri þér, sem þú heyrir um ástvin þinn.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Hugmynd, sem
þú hefur unnið að að hrinda í framkvæmd undan-
farið, verður nú ioks að raunveruleika. Samt er
eins og Þú verðir ekki allskostar ánægður, og staf-
ar það af Því, að áhugi Þinn hefur nú beinzt yfir
á annað svið. Þú færð skemmtilegan gest í heimsókn á ólík-
legum tíma, einhvern tíma í vikunni. Hann færir þér fréttir.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú eignast nýtt
áhugamál í vikunni. Líklega verður þar ástvinur
þinn að verki. Þetta áhugamál gæti orðið til þess
að stytta ykkur stundir í framtiðinni. Leggðu ekki
út í neina óvissu í þessari viku, einkum ef pening-
ar eru í spilinu. Um helgina gerist atvik, sem kemur þér
í einhvern vanda.
hiónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þetta verður mjög
skemmtileg vika fyrir unga fólkiö, einkum það,
sem enn er ólofað, og er ekki ólíklegt, að þar eigi
Amor einhvern hlut að máli. Þú heyrir eitthvað,
sem þú misskilur svo, aö þú gerir eitthvað, sem
.pu munt sjá mjög eftir síðar. Líkur á stuttu en afar ó-
venjulegu og skemmtilegu ferðalagi. Litur vikunnar er blátt.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þú hefur átt
mjög annríkt undanfarið, en nú verður eitthvaö
til þess, að um fer að hægjast. Þú skalt reyna aO
nota fristundirnar eins og þú hafOir látiö þig
dreyma um — þér hættir nefnilega til þess aO
leggjast í leti þessa dagana, hvað aldrei skyldi verOa. Mánu-
dagurinn er mjög þýðingarmikill fyrir allt náið samband
vina á milli. Heillatala 4.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú skalt ekki
gera neitt, sem brýtur í bága við samvizku þína
— þér hættir nefnilega til Þess í vikunni. Ef þú
feilur í þessa gildru, ætti það þó að verða til þess
að þú hættir að gagnrýna ýmislegt í fari annarra.
Það er nú einu sinni mannlegt að skjátlast. Föstudagurinn
er langbezti dagur vikunnar, ekki sízt fyrir kvenfólk.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): ÞaO er hætt við
því, að vikan verOi ekki alveg eins og þú hafðir
vonað, þótt hún veröi engan veginn leiöinleg. Þó
getur veriö að þú gerir allt of mikiO úr öUu mót-
læti þessa dagana og fyllist því svartsýni, sem
aldrei skyldi verOa, því aö þú hefur manna sízt ástæOu til
aO vera svartsýnn. Einn hæfileiki þinn fær óvenjumikiO aö
njóta sín.
BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Liklega
verOur þessi vika miklu skemmtilegri en þú bjóst
við, og er það mest einum vini þínum aö þakka.
Þú virðist vanrækja einhvern I fjölskyldunni og
hræsna fyrir öðrum. Þú veröur að breyta til, svo
okki fari illa fyrir þér. Þessi hræsni er a.m.k. hreint og
beint hlægileg. Helgin verður dálítiö tilbreytingarlaus. —
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Kunnátta þin á
vissu sviöi verOur til þess aö þér býöst gott tæki-
færi, sem þú þvi miður getur ekki notað þér nema
að mjög litlu leyit. Vinur þinn veldur þér miklum
vonbrigðum, en ef þú hugsar þig vel um, myndir
þú aö öllum líkindum hafa hegOað þér nákvæmlega eins og
hann undir sömu kringumstæðum. Talan 8 skiptir þig miklu.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þaö steöja
að þér óvenjumargar freistingar í vikunni, og það
er eins og menn sitji og bíöi bara eftir þvi i ill-
kvittni sinni, aö þú fallir fyrir einhverri þeirra.
Þó eru mestar likur á því, að þú sleppir mjög
skammlaust frá þessu, og veröur þaO til þess, aO þú hækkar
víöa í áliti. A vinnustaO eru líkur á skemmtilegum glaöningi.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Líklega dettur
Iþér undarleg hugmynd í hug í sambandi viö stutta
ferð, sem þú og félagi þinn farið í. Þaö væri samt
hreinasta fjarstæöa aö fara að hrinda þessu í fram-
kvæmd að sinni. Til þess er timi þinn allt of naum-
ur. Þér sinnast viö einn bezta vin þinn. Láttu nú ekki stolt
þitt verða til þess að spilla vináttu ykkar. Heillatala 5.
4