Vikan - 01.11.1962, Qupperneq 20
Þannig er auðvelt að gera slétt-
an kappa: Saumið opiun renning
bæði að ofan og neðan og dragið
stengur í gegn á báðum stöðum.
Með þessu móti verður kappinn
alveg sléttur, og auðvelt er að taka
hann niður og setja upp. Takið eft-
ir því, að gluggatjöldin eru ekki
földuð niður með hliðunum. Þau
eru gerð úr ullarvefnaði, sem of-
inn er án jaðars.
í þessum glugga eru engin
gluggatjöld, heldur eingöngu græn-
ar plöntur Á kvöldin eru notuð
rúllutjöld úr bastvef. Á myndinni
sézt hvernig vefurinn rennur inn
í „kassa“ sem er úr breiðum list-
um, sem festur er á gluggakarm-
inn.
Gluggatjöld hafa margþættu hlutverki að gegna.'Þau geta gert herbergið bjart
eða dimmt. Mynztur þeirra hefur mikil áhrif á heildarmynd stofunnar — og það
verður að velja efnið þannig, að það fari vel við önnur efni þar inni. Hér verða
sýndar tólf gerðir af gluggatjaldaefnum.
Litir.
Mynztur.
Efni.
Gerð efnis.
Hafið birtuna í huga.
Gul og gulgræn glugga-
tjöld skapa vinalegustu
og þægilegustu birtuna
í stofunni. Snúi glugg-
inn mót norðri, sýnist
manni samt sólarbirta
í stofunni.
Hugsið um samræmið.
Séu litir á veggj-
um heitir, getur ver-
ið heppilegt að hafa
gluggatjöldin í svalari
litum.
Stórgert mynztur.
Séu veggir, teppi og
húsgögn einlit í stof-
unni getur verið fallegt
að velja mynztruð
gluggatjöld.
Smágert mynztur.
Séu herbergin lítil,
en ef það þykir samt
æskilegt að hafa
mynztruð gluggatjöld,
verður mynztrið að
vera smágert.
UII.
f stofu, þar sem flest
ananð er gert úr ull,
skapar það samræmi
að hafa gluggatjöldin
einnig úr ullarefni.
Bómull.
Bómullarefni má þvo,
og það má fá í mörgum
litum. Það fer vel í eld-
húsi, svefnherbergi,
barnaherbergi og í sum-
arbústaðnum.
Lausofið efni.
Oft er það gerð efn-
isins, sem setur svip á
gluggatjöldin. Hér er
efni, sem er ofið á sér-
stakan hátt.
Þéttofið efni.
Eigi gluggatjöldin að
vera efnismikil, er
heppilegt að efnið sé
þéttofið, án þess að
vera þungt.
• •
liturinn enn fallegur —■ eða hvort
mynztrið kemur vel út þegar það
hangir, eða leggst í fellingar. Er
gerðin hæfilega lausofin eða fast-
ofin? Líkar manni ljósblærinn sem
kemur af tjöldunum? Ekkert af
þessu er hægt að gera sér ljóst, fyrr
en maður hefur séð tjöldin fyrir
glugga.
Það á að ákveða það heima í stof-
unni, hvort gluggatjöldin eiga að
vera mynztruð eða einlit.
Það er góð regla að kaupa einlit
gluggatjöld, ef aðrir hlutir stofunn-
ar eru mikið mynztraðir. Ef mynztr-
uð gluggatjöld bætast þar ofan á,
verður herbergið of órólegt.
Hins vegar geta mynztruð glugga-
tjöld verið mjög falleg, ef teppi,
húsgagnaáklæði og veggfóður er
einlitt í lítið áberandi litum. En
þetta er nauðsynlegt að ákveða
áður en farið er í búðir. Það er auð-
veldara að ákveða þetta heima og
gera sér ljóst hvernig gluggatjöld-
in eiga að vera, til að fara vel við
heildarsvip stofunnar, heldur en að
Athugið styrkleika
litarins.
Hafa verður í huga,
að séu gluggatjöldin í
mjög sterkum lit, verð-
ur birtan sem inn kem-
ur, með sama litblæ.
nano Diomin 1 nuga.
Séu blómstrandi plönt-
ur í glugganum, og sé
óskað eftir mynztruð-
um gluggatjöldum, má
mynztrið ekki vera
blómamynztur.
Hör.
Sé óskað eftir glugga-
tjöldum
„náttúrleg-
um“ lit, eru hörefni
heppileg. Þau eru auð-
veld í þvotti.
Mynzturvefnaður.
Gerðin getur líka mynd-
að mynztur. Hér er efn-
ið ofið þannig, að það
myndast randir.
reyna að muna það í búðinni.
Ákveðið fyrirfram hvort glugga-
tjöldin eiga að stuðla að því að
hærra sýnist undir loft, eða að stof-
an sýnist lengri eða breiðari.
Flestir vita, að það er hægt að
láta mjótt herbergi sýnast breið-
ara með því að mála hliðarveggina
ljósari og endaveggi dekkri. Hins
vegar er hægt að gera herbergi
lengra í augum manns með því að
endaveggir séu ljósir og hliðar-
veggir dökkir. Þetta má hafa í
huga, þegar litur gluggatjaldanna
er valinn.
Mynztur og gerð tjaldanna hefur
líka áhrif í þessa átt. Sé efnið með
lóðréttum röndum og nái glugga-
tjöldin alveg niður á gólf, sýnist
hærra undir loft en ef þau eru með
láréttum röndum og stutt.
Fáið upplýsingar um hvernig á að
þvo efnið og hve mikið það muni
hlaupa.
Öðru hverju verður að þvo
gluggatjöldin — hve oft, fer eftir
því hvar þau hanga. Sé verið að
velja gluggatjöld fyrir stofu, þar
sem vitað er að gluggatjöldin ó-
hreinkast mikið, verður að hafa í
huga, að þau séu auðveld í þvotti.
Verzlunin á að geta gefið upp-
lýsingar um hvernig á að þvo þau,
og hve mikið efnið muni hlaupa,
og verður þá að taka tillit til þess
þegar efnið er mælt.
Mælið nákvæmlega stærðina og
munið eftir saumum, svo að vitað
sé nákvæmlega hve mikið efni þarf
fyrir gluggann.
Það ætti aldrei að treysta aðeins
augunum við að taka mál. Þá er
hætt við að komið sé heim með of
lítið eða of mikið efni, og hvort
tveggja er ergilegt. Notið málband,
eða það sem þægilegra er, tommu-
stokk.
Lóðrétta málið er tekið frá stöng-
inni niður á gluggakistuna eða gólf-
ið, og síðan er 20 cm bætt við það
fyrir saumum. Síðan er því bætt
við, sem gefið hefur verið upp að
efnið muni hlaupa í þvotti.
Lárétta málið er tekið frá enda
Framhald á bls. 42.
20 VIKAN