Vikan


Vikan - 22.11.1962, Qupperneq 14

Vikan - 22.11.1962, Qupperneq 14
/ •— Einn á ferð? — Já, en sjaldan riSandi nú orS- ið. Eomdu inn. — Jæja, áttu ekki hesta lengur? Þú liefur breytt þeim í bækur. Eg sé að þaS eru hækur frá gólfi til lofts hjá þér. — EitthvaS er hér af bókum ójá. Sumt gott og sumt lélegt eins og gengur. Bókaútgáfan er annars orS- in óttalega léleg. Setztu . . . Já, ótta- legt rusl. Almenna bókafélagiS og MenningarsjóSur eru í sama báti, hvaS þaS snertir. Enda vilja menn ekki eiga þessar bókadruslur. Þær hrúgast upp hjá fornsölum. —• Ertu nú ekki ósanngjarn? Finnst þér bókaútgáfunni hafa lirakaS Sigurður frá Brún stendur upp, gyrSir sig og strýkur gómum um kili. Sumir eru gylltir, aSrir svartir og láta minna yfir sér. ÞaS er ekki mark að kjölum. Iiann seilist eftir bók ofarlega úr skápnum. Ilún er gamul og snjáS. —■ Líttá þessa. Hún er síSan 1874. Lestrarbók handa aljjýSu heitir hún. Þórarinn Björnsson prestur í GörS- um og Yatnsfirði tók þessa bók sam- an. Ekkert þessu iíkt kemur út nú á dögum. — Jæja, veiztu vegna hvers það er? — Ojá, ég þykist vita þaS. Þeir sem ve'ja efni í bækur, þiggja fyrir það peninga. Menn vilja fá peninga fyrir alla hluti. Al’t verSur aS gefa fjárhagslegan ávinning. — En útgáfufyrirtæki verSur aS sjálfsögðu að bera sig. — Ég blæs á þaS og höfundar eiga ekki aS láta liafa sig í bað að gefa út hvað sem er. Svo vilja þeir fá skáldalaun í ofanálag. Skáld er gætt gáfum, sem ekki eru öðrum gefnar og það ætti að vera nægi’eg iaun. — HefurSu sagt skáldunum frá þessu? — Ég þori að standa við þessa skoðun hvenær sem er. Ég er á móti skáldalaunum af þeirri einföldu á- stæðu, að það er til bölvunar að hlaða auði að mönnum, scm þegar eru orðnir ríkir. Það er til bölv- unar að gera skáhtskap að gróða- fyrirtæki jivi hann á aS vera ann- að og göfugra. — Heldurðu þá, að þe.’r séu ailir auðugir, sem hafa fengið skálda- la.un? — Nei, en þeir sem fá þau eru þegar komnir á græna grein; þeir setja bæltur, en liinir, sem lepja dauðann úr krákuskel fá ekki neitt. Ég spyr: HvaS kostaði það Halldór Kiljan Laxness mikinn tíma að brasa í málaferlunum útaf tugþús- undunum, sém danskurinn stal af honum. Ef hann hefði aðeins venju- leg kennáralaun eins og Þorsteinn Erlingsson átti að fá, hefði hann getað dundað við að yrkja, meðan hann var að braska við að komast yfir þetta fé aftur. Og ég spyr aftur: Hvort hefði Snorri Sturluson skrif- að meira eða minna, ef hann hefði átt einu búinu minna eða jafnvel tveimur? Ef einhver þarf á þessu fé aS halda, þá eru það unglingarn- ir. Þá langar til þess aS segja eitt- hvað út frá gnægð hjarta síns, en verða að sinna brauðstritinu til þess að geta lifað. Annars þýðir harla Iitið að pexa um þetta. Það er eins og Steinn segir: „Að frelsa heiminn er eins og að standa uppá stól i stóru veitingahúsi og kalla út í salinn: Hér inni er stúlka í alltof þröngum hjóí. Og öllum er ljóst, að þessi maður er galinn.“ — Þú segir að sumir lepji dauð- ann úr krákuskel. Er þá skáldskap- ur þeirra þess virði, að undir hann sé Iilaðið? — Já, ef það er gert á réttan hátt. Ég ætla aS Þorsteinn frá Hamri liafi verið í vegavinnu, þegar sam- verkamaður hans kastaði fram þeirri spurningu, iivort guð væri til. Þor- steinn, sem annars er atómskáld, varpaði fram þessari vísu sem svari: „Cvendur spyr hvort guð sé til greylund illa þokkuð; sýnir á því engin skil, að þeir þekkist nokkuð.“ Mér þykir að ]jví meiri fengur og hef haft af jjví meiri bókmennta- lega og fagurfræðilega nautn að kunna þessa einu vísu heldur en lesa heila bók, sem nýlega kom út eftir Þorstein. í bókinni var berg- mál og lykt af skáldskap en ekkert meira. — Það hefur verið lögð á þaS 14 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.