Vikan - 22.11.1962, Síða 16
UNGA
FÖLKIÐ
GÖG og GOKKE
Þið munuð flest kannast við kempurnar hér á myndinni og hafið
áreiðanlega oftar en einu sinni hlegið ykkur máttlaus og meira en
það, vegna hinna margvíslegu og spaugilegu tiltækja þeirra félaga.
Þá þarf varla að kynna, - Þetta eru auðvitað hinir góðkunnu skop-
leikarar Laurel og Hardy, sem við þekkjum bezt undir nöfnunum
Gög og Gokke.
ATfíUGANOI FYRIR
UNGU STtJLKURNAR
Dulúðug fegurð.
Ekki verður annað sagt en að
stúlkan hér á myndinni búi yfir
sérkennilegri, allt að því dul-
úðgri fegurð, sem ekki er á
hverju strái. Annars er þessi
unga og fagra stúlka auðvitað
kvikmyndastjarna, — er hún
spænsk, heitir Sarita Montiel og
er hér að leika í spænsk-ítalsk-
frönsku kvikmyndinni „La bella
Lola“.
Stúlkan hér á myndinni, sim er ííölsk að þjóðerni,
en kvikmyndaleikkona að atvinnu og heitir því fagra
nafni Gianna-Maria Canale, er hér að taka sér bað í
bezta baðlyfi allra tíma, nefnllega mjólk. Það fylgir
sögunni, að mjólkin sé reyndar ekki nýkomin úr ís-
skápnum, enda mundi þá naumast þessi sælusvipur á
kvikmyndadísinni. Einnig má telja full víst, að hún
sé ekki heldur spenvolg.
Það ku vera afar hollt og fegrandi að taka sér öðru
hverju bað upp úr mjólk og væri það atliugandi fyrir
íslenzkar blómarósir, þó að ef til vill sé ekki aukandi
á fegurð þeirra og líkamstöfra.
16 VIKAN
„gÍN'T AR IIVET"
Hin kunna söng- og leikkona Anita Lindblom
hóf feril sinn árið 1954 en sló fyrst í gegn, ef
svo má segja með hljómplötu sinni „Sán‘t ar
livet“, sem náði miklum vinsældum bæði í
heimalandi hennar, Svíþjóð, og víðar. Anita
Lindblom hefur afar sérkennilega og fallega
rödd og hefur af mörgum verið nefnd hin nýja
Zarah Leander.
Anita Lindblom mun hafa sungið hvorki
meira né minna en rúmlega 40 lög inn á hljóm-
plötur og stendur sífellt í samningum um nýjar
plötur.
Kvennagull, eða hvað?
— Kvennagull, urrar Jane. Hún er dóttir
hins fræga leikara Henry Fonda. — Að pabbi
sé kvennagull! Ég get nú ekki annað en hlegið!
Ég get aldrei skilið, hvað allar þessar konur
hafa séð við hann pabba! Og ennþá síður skil
ég, að fjórar konur hafi getað orðið svo ást-