Vikan - 22.11.1962, Page 27
Frá saumavélum ...
Framhald af bls. 13.
reynslu sína og fjármagn, tókst
þeim ekki að venja Þjóðverja við
útlit amerísku bílanna, stærð þeirra
né vélarorku. Það var augljóst mál,
að GM varð að framleiða litla bíla
fyrir Evrópumarkaðinn. Þeir höfðu
komið upp útibúi í Berlín til þess
að framleiða vörubíla, en það var
ekki nóg.
Einmitt um þetta leyti barst GM
bréf frá Opel, þar sem stungið var
upp á þvi, að þessi tvö fyrirtæki
kæmu sér að einhverju leyti sam-
an um starfrækslu Opelverksmiðj-
anna í Riisselheim. Þetta mál var
rannsakað og rætt fram og aftur
í þrjú ár, og 1929 náðist samkomu-
lag. GM sendi hóp af sérfræðing-
um til þess a koma bandarískum
starfsháttum á fyrirtækið. Árið 1931
komu fyrstu GM Opel bílarnir á
markaðinn, og sama ár kom Opel
Blitz, sem varð vinsælasti vörubíll
Þýzkalands á fjórða tug aldarinnar.
Og það ár seldi Opelfjölskyldan
General Motors verksmiðjurnar að
fullu.
Næstu árin fylgdist Opel vel með
nýjungunum og bætti nokkruin við.
M. a. Olympia fyrsta bílnum, sem
framleiddur var í fjöldaframleiðslu
með sambyggðu boddýi og grind.
Þessi framleiðslumáti varð næstum
alls ráðandi hjá bílaframleiðendum
utan Bandaríkjanna.
Árið 1936 kom Opel Kadett, fyr-
irrennari nýjasta módelsins 'frá
Opel, og Admiral, stærsti bíllinn
frá Opel, sex strokka með 3,6 lítra
Opel (arðvfli
AFGREIÐSLUFRESTUR :
BÍLL FJÖLSKYLDUNNAR
BÍLL FYRIRTÆKISINS
BÍLL FERÐALAGSINS
DAGAR
VÉLADEILD
SÍMI 17080
mótor. Kapitan, sem framleiddur
var fyrst 1938, sannaði að jafnvel
stórir bílar gátu notað sambyggða
grind. A þessum árum voru einnig
gerðar miklar breytingar á verk-
smiðjunni, og Opel seldi NSU reið-
hjólaframleiðslu sína.
Svo brauzt stríðið út. 1940 tóku
Allir utan hættu, vestur gefur.
A K-G-7-2
9
D-8-6-5-3
K-3
A-K-D-9-4
Grunsemdir eru þýðingarmikill
þáttur í sagntækni og þess vegna
opnaði austur á einu laufi í þriðju
hendi. Honum fannst líklegt að suð-
ur yrði sagnhafi og ákvað þess
vegna að segja í þeim lit, sem
heppilegast væri að fá útspil í.
Suður sagði einn spaða, vestur
pass, norður hækkaði í tvo spaða
og þeir urðu lokasögnin.
Útspilið var laufatía og í þriðju
laufumferðinni lét vestur tígulní-
una. Nú spilaði austur tígulkóng
og meiri tígli, trompaði síðan þriðju
umferð en suður yfirtrompaði. Hann
tók síðan trompin og svínaði síðan
hjartanu gegnum vestur.
Þessi úrslit gáfu norðri tilefni
til þess að sýna hve óviðjafnanlegri
athyglisgáfu hann væri gæddur.
Norður sagði að hann myndi hafa
svínað gegnum austur, vegna þess
að hann var opnarinn og vestur
hafði sýnt tígulásinn eftir að hafa
tvisvar passað.
Auðvitað á að svína gegnum aust-
ur, en opnun hans kemur því máli
ekkert við. Austur er sannaður með
5 lauf (vestur var ekki með í þriðju
umferð) tvo tígla (austur trompaði
þriðja tígul) og eitt tromp. Austur
hlýtur þess vegna að hafa átt fimm
hjörtu upphaflega og vestur tvö.
Líkurnar fyrir því að ausur eigi
eitthvert sérstakt spil í hjarta eru
því fimm á móti tveimur — nægileg
ástæða til þess að svína gegnum
hann.
Þjóðverjar verksmiðjurnar í sínar
hendur, eftir að bandarísku starfs-
mennirnir voru flúnir heim. Vöru-
bílasmiðjan í Brandenburg við
Berlín var starfrækt öll stríðsárin,
en 1944 eyðilagðist helmingur verk-
smiðjunnar í Riisselsheim í loft-
árás.
Eftir uppgjöf Þjóðverja hófu
herir Bandaríkjanna varahluta-
framleiðslu í því sem uppi stóð.
Rússar fluttu stansana af Kadett
til Moskvu og þar varð Kadettinn
að Moskvits. aðeins lítið eitt breytt-
ur í útliti. Rússar hirtu einnig verk-
smiðjurnar í Brandenburg, eins og
þær lögðu^ sig, fluttu þær til
Kutayss í Úral og framleiddu þar
vörubíla eftir fyrirmynd Opel
Blitz.
í Riisselsheim var tekið að fram-
leiða 1,5 tonna Blitz í júlí 1949, og
síðan Olympia 1947 og Kapitán
1948. Og 1 nóvember það ár fékk
General MQtors á ný umráð yfir
eignum sínum í Riisselsheim.
Opel Reckord 1953 var fyrsta
nýja módelið síðan 1939, og síðan
hefur framleiðslan haldið stöðuet
áfram með nýjum módelum næst-
um ár frá ári, og nú á Opel nýjar
verksmiðjur í Bochum. auk verk-
smiðjanna í Riisselsheim, og þar
verður nýi Kadettinn framleiddur.
Þegar GM keypti Opelverksmiðj-
urnar 1929, hélt sölustjóri GM því
fram, að áður en langt um liði
myndu verksmiðiurnar framleiða
150 þúsund bíla á ári. Það var hleg-
ið að honum, en eftir tíu ár hafði
spádómur hans rætzt, og nú er
framleiðslan orðin fjórum sinnum
meiri en það.
Tækniþáttur. Frh. af bls. 3.
ÓHÆGT SÆTI.
Það verður varla sagt að þessi
þotufluggarpur sitji í hægu sæti eins
og spunakonan í kvæðinu. Eins og
kunnugt er sprengja flugmennirnir
sig sjálfir, í bókstaflegum skilningi,
upp úr orrustuþotunum, ef þeim
hlekkist á, og þjóta þá út frá vélinni,
unz þeir geta komið fallhlífinni við.
Brezki þotugarpurinn er þarna að
reyna eitt slíkt sæti, sprengir sjálf-
an sig rúma eitt hundrað metra frá
jörð, og lætur sig síðan svífa niður
í fallhlíf sinni — en hvernig það
er að fá slíkan rassskell, er svo ann-
að mál, sem fáir munu kæra sig
um að kynnast af eigin raun.
VIKAN 27