Vikan - 22.11.1962, Qupperneq 29
ypVMm&t*
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi tii fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz—21. apr.): Þú munt eiga
afar annríkt í bessari viku, einkum í lok vinnu-
tímans og rétt þar á eftir. Ef þú átt maka, mun
þessi maki þinn sýna þér fram á svolítiC glappa-
skot, sem þér var5 á, en hætt er samt við aB þú
takir þessari visbendingu illa, sem aldrei skyldi verða.
Heillatala karla 5, kvenna 7.
Nautsmerkiö (22. apr.—21. maí): Líklega verður
þessi vika alls ekki eins og þú hafðir ráð fyrir
gert, en í heild verður hún hin skemmtilegasta.
Frumlegt uppátæki þitt og félaga þins vekur
talsverða eftirtekt. Líklega verður þetta fyrir
helgina. Þú virðist einkennilega samansaumaður þessa dag-
ana, skerð allt við nögl.
TvlburamerkiO (22. maí—21. júní): Þú skalt fara
að ráðum þér eldri persónu, ef þú ætlar þér á
einhvern hátt að breyta til I vikunni. Það hefur
eitthvað borið á þrjózku í fari þínu undanfarið,
en af því verður þú að venja þig. Það er eins og
þú viljir sízt gera Það, sem aðrir benda þér á að gera, þótt
oft sé það hið eina rétta.
KrabbamerkiO (22. júní—23. júlí); Þetta verður
afar skemtmileg vika, einkum fyrir unga fólkið.
Amor verður mikið á ferðinni, og líkur eru meira
að segja á Því, að i þessari viku verði úr því
skorið hver verður lífsförunautur þinn. Fyrir
gifta fólkið verður vikan róleg og viðburðalitil, en þó afar
notaleg. Heillatala 5.
' LjónsmerkiO (24. júlí—23. ág.): Líkur eru á því
að þér sinnist við einhvern, sem þér er nákominn,
y en bezt er þá að reyna að gleyma þessu hið skjót-
asta og gera ekki meira úr Því. Stóratburður i
ftöiskvldunni verður eins og við var búizt og ef
veizla verður haldin, þá tekst sú veizla með eindæmum vel.
Miðvikudagurinn er mikill heilladagur.
MeyjarmerkiO (24. ág.—23. sept.): Þessi vika
verður fyrst og fremst vika karlmannanna, þótt
kvenfólkið þurfi engu að kvíða nema tilbrevt-
ingasnauðri viku. Karlmönnum gefast mörg
tækifæri. sem raunar er ógerningur að notfæra
sér öll, en mörg beirra geta orðið þeim beinlinis ómetan-
;leg. Helgin verður afar skemmtileg og nýstárleg.
VogarmerkiO (24 sept.—23. okt.): Þetta verður
vika mikilla öfga, þvi að ýmist leikur allt í
lvndi eða Þá þér finnst allt og allir á móti þér.
Þannig verður þetta fram á mánudag, en þá fer
allt að ganga sinn vana gang. Þú lest eitthvað.
sem gefur þér góða hugmynd. og skaltu ekki hika við að
hrinda henni I framkvæmd. Heillatala 14.
DrekamerkiO (24. des.—22. nóv.): Þú virðist hafa
vanrækt eitt skyldustarf þitt, eða eitthvað, sem
nánast mætti kalla skyldustarf, og verður þú að
reyna að kippa þessu i lag hið snarasta, annars
sérðu aldrei fram úr því. Fimmtudagurinn er
dagur, sem skiptir sambúð þína og félaga þinna miklu.
Farðu varlega þann dag. Heillatala 3.
BogmannsmerkiO (23 nóv.—21. des.): Líklega
muntu verða þess illvrmilega var, að þú hegðar
Þér ekki eins og skyldi gagnvart einum kunningja
binum. Þú virðist beinlínis revna að sýna hon-
um fram hversu litils Þú metur hann (þótt
svn sé ekki raunin). Þetta háttarlag þitt verður ekki skilið
til fullnustu, en þú verður að breyta betur.
CíeitarmerkiO (22. des.—30. jan.): Kona, sem ekki
hefur haft samskipti við big eða fjölskyldu þína
fyrri, kemur til þín eða þinna og fer fram á eitt-
hvað. sem verður til bess að þú ferð að vinna að
einhverju með henni. Laugardagurinn er
skemmtilegur dagur, en þá verður Amor mikið á ferðinni,
en ekki er vert að t.aka hann of alvarlega.
VatnsberamerkiO (21. jan.—19. febr.); Þú fær-
ist. of mikið í fang í vikunni, enda verður bú að
IHrjM gialda þess síðar. Það er svo sem ágætt að hafa
sjálfstraust, en það er óheilbrigt að ofmeta sjálf-
7"' an sig eins og þú gerir of mikið af. Kunnátta þin
á vi"su sviði verður til þess að þér býðst óvænt og skemmti-
legt tækifæri. Heillatala 4.
FiskamerkiO (20. febr.—20. marz): 1 þessari viku
verður heldur lítið að gera hjá þér á vinnustað,
og skaltu nota þann tima til að kippa þvl I lag,
sem þú hefur trassað undanfarið. Kvöldin verða
mjög ánægjuleg. Þú munt fara talsvert út að
skemmta þér, og bendir margt til þess, að þú kunnir nú
betur að skemmta þér en áður.
Foreldrar!
Leiðbeinið barninu er það velur sér skólapennann.
Einn þekktasti skóla-
frömuður íslenzkra
barnaskóla
hefur mælt með
K/MJÆR
pennanum.
H
KREUZER-pennaverksmiðjan í Bonn, V.-Þýzkalandi átti 25 ára
afmæli á s.l. ári og selja framleiðslu sína í 48 löndum í
sívaxandi mæli.
EF ÞÉR VILJIÐ SKRIFA VEL ÞARF
PENNINN AÐ VERA GÓÐUR.
K R E U Z E R - penninn f æst í næstu búð.
Einkaumboð:
H. A. Tulinius
Heildverzlun.
VIKAN 29