Vikan


Vikan - 21.02.1963, Page 15

Vikan - 21.02.1963, Page 15
hvað heitir. Enda skiptir það ekki máli, það er ekk- ert þekkt vatnsfall, en vatnið síast útí eyðimörkina fyrir austan. Þar verður ein fegursta vin, sem um get- ur, afmörkuð af sýrlenzku eyðimörkinni að austan en Anti-Líbanonfjöllunum að vestan. Pálmarnir og bananatrén kunna sér ekki læti og halda að þeir séu í hitabeltinu en ég er illa að mér í náttúrufræði og I kann ekki að nefna öll þau tré, sem þar njóta raka moldarinnar. í þessari vin hefur borgin Damaskus verið byggð. Damaskus er þannig í sveit sett, að hún hefur alltaf verið áfangastaður. í þann áfangastað var gott að koma eftir dagleiðir á eyðimörkinni og gott að hvílast þar áður en haldið yrði áfram á úlföldum, ösnum eða tveim jafnfljótum. Þannig hefur það verið síðustu sex þúsund árin; þann tíma hefur verið byggt ból á þessum stað. Nú vill svo til að við komum fyrst inn í hinn nýrri hluta borgarinnar og hann gefur sannar- lega ekki hugmynd um sex þúsund ára gamla Austur- landaborg. Hvítar súlur og sléttir fletir glers og steinsteypu. Gult og blátt á stöku stað eins og til að Útsýni yfir rústirnar frá háaltarinu. Konan xneð arabiska höfuðbúnaðinn er frú Hanna Karlsdóttir í Holti. Júpítershofið í Baalbck hefur verið feiknarleg bygging cins og bezt sést með því að bera vegginn saman við mennina neðst í horninu. f húsi Ananíasar í Damaskus. Munkur sýnir börnum myndir af því, pegar Páll féll af bakl og þegar hann var iátinn síga niður af múrnum. auka spennuna, undirstrika listrænt mat arkitektsins. En þefurinn er einkennilegur, áleitinn og fremur óviðfelldinn. Eins og frá gripahúsi eða svínastíu. Og það er hreint ekki auðvelt að komast frá honum. Hann fyllir hvern krók og kima. Utan við þessar nýju, fínu götur, þar þrífst sóðaskapurinn með viðlíka blóma og aldinin á trjánum. Sólin bakar allt dautt og lifandi í ofni sínum og rotnunin er mikil. Þefurinn þarafleið- andi sterkur og megn. # Næturstaður okkar, Hótel New Semiramis, stendur við eitt nýlegt torg; þar eru bæj- arvinnukarlarnir í júgurbuxum og hafa hvíta höfuðdúka til hlífðar fyrir sólarhitanum. Húsin eru nýleg, stórir búðargluggar með flegnum kjólum til sýnis, þeir eru nældir sam- an aftan á gínunum til þess að eggjandi línur kvenlíkamans njóti sín langt að, helzt allar götur út á miðju torgsins, þar sem tjöruvinnumennirnir eru að puða. Ég veit ekki til hvers þessi útstililng á að höfða; þær Evudætur sem ganga framhjá þessum tízku- glugga eru allar svartklæddar með slör yfir höfðinu og andlitið framúr því svo lengi sem þær mæta ekki neinum vantrúuðum. En þegar þær mæta okkur, þessum aðskota- dýrum, þá draga þær slörið sem snöggvast fyrir munninn og senda okkur augnaráð, sem er blandið ótta og fyrirlitningu. Margar þeirra sem komnar eru af unga aldri eru tannlausar og með einhverskonar fjólubláa flekki eða útbrot á niðurandlitinu. Þó kann vel að vera, að þær séu allt að því að vera fallegar í augum tjörukallanna á torginu, sem standa álútir í júgarbuxunum sínum. Menn líta allt • öðrum augum á konur og ástir- í hinum arabiska heimi en hér á Vesturlöndum. í okkar augum er staða þessara kvenna átakanleg, þær sjálfar miður geðslegar og að minnsta kosti talsverð mótsetn- ing við gínurnar í glugganum. Heitt rökkrið leggst yfir Damaskus áður en því verður komið við að sjá alla merkis- staði. Merkilegast af öllu er leiðsögumaðurinn, Arabi með slatta af Fransmannablóði að því er virðist og það er raunar ekki ólíklegt, hér voru frönsk yfirráð og franskt her- lið. En orkan sem býr innra með honum er sjálfsagt ein fimmtíu megatonn og við erum örskammt komin þegar við vitum allt það helzta um líf hans og frábæra tungu- málakunnáttu. Honum nægir ekki að tala ensku, þó það dugi; franska, þýzka og ítalska verða að fá að fljóta með. Svo kann hann nokkrar sænskar setningar og heimtar að fá að segja það á íslenzku, sem hann þarf að þylja fyrir okkur um borgina. — Merhaba, merhaba, segir hann. Segið þið bara merhaba. Það þýðir góðan dag. Good morning, merhaba, very easy. You try. Sehr gut. What did you say it was? Góðan dag. Alright. Ce tres biens. Francaise? Je parle Francaise aussi. Alright. Alla vackra flickors skál. — Þannig lét hann dæluna ganga og satt að segja stal hann senunni frá borginni — að minnsta kosti öðru hvoru, enda var honum meira áhugamál að vekja áhuga á sinni eigin persónu en þessari borg, sem fyrir löngu var orðin hversdagsleg fyrir hann. Ég man eftir Omayod moskunni, dýrlegu guðshúsi þar sem þeir segja að Jóhannes skírari sé grafinn. Þar voru Múhameðstrúarmenn í röðum að tala við Allah eins og lög gera ráð fyrir, en leiðsögumaðurinn gat ekki á sér setið og lét dæluna ganga; nú var Framhald á bls. 34. VIKAN 8. tbl. — JEj

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.