Vikan


Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 50

Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 50
Heildsölubirgðir: Ö. VALDEMARSSON OG HIRST H.F. Sími 38062. .......................................................... hugsa um önnur börn, heldur bara mín börn, því ég veit að þau vilja það líka helzt.“ Hún var „sjúkdómstilfelli". Hans eigin dóttir var óhamingjusöm og trufluð, og hvorki hann né Margit höfðu tekið eftir því, og samt sem áður voru þau bæði barnasálfræð- ingar, sem unnu með sálsjúk börn nær allan sólarhringinn. Litla skyn- sama dóttir hans þjóðist af skorti á ást og alúð frá foreldrum sínum. Hve mörgum börnum hafði hann ekki hjálpað undir sömu kringum- stæðum? En sinni eigin dóttur hafði hann alveg gleymt. Hann hafði að- eins leikið sér við hana örfá skipti þegar hann átti smástund heima, en síðan gleymt henni í ákafa sínum við að hjálpa öðrum ungum börn- um. Honum leið afar illa, og reyndi árangurslaust að finna leið út úr þessum ógöngum. Hann tók telpuna í fang sér og bar hana inn á skrif- stofu sína. Þar settist hann með hana í kjöltu sér, tók fram bandarísku myndirnar, sem hann notaði ávallt til þess að fá upplýsingar um sólar- ástand barnanna, kveikti á segul- bandstækinu og bað hana að segja sér sögu um það, sem hún sæi. Hún byrjaði að segja söguna af bjamar- pabba og bjarnarmömmu og bjarn- arungum litlu tveimur, sem sátu saman við matborðið. Bertil heyrði þegar Margit kom inn, og sendi henni aðvarandi augnaráð. Það voru einu sinni bjarnarpabbi og bjarnarmamma, sem áttu tvö börn. Ekki bara eina litla einmana telpu, heldur líka lítinn bróður. Og það var alltaf svo gaman við mat- borðið. Bjarnarpabbi fór út að vinna á daginn til að afla matar fyr- ir mömmuna og börnin, en mamm- an var alltaf heima á daginn að elda matinn. Stundum sullaði bróðirinn á dúkinn, og þá byrsti pabbinn sig, en mamman bara hló og sagði, að það væri allt í lagi, því hún ætti þvottavél. Og á kvöldin þurfti börnunum aldrei að leiðast, því pabbinn og mamman voru alltaf heima. Stundum fóru þau þó í boð, en samt leiddist börnunum ekkert, af því þá höfðu þau hvort annað. Stundum meiddi bróðirinn systur- ina, og þá leiddist henni, en á eftir var hún glöð á ný, því hún hafði bróður sinn, og þurfti aldrei að vera einmana. Bróðurnum þótti líka vænt um hana, og hann meiddi hana bara óvart. Og svo var sag- an búin. „Hvernig ber okkur að lækna þetta tilfelli,“ sagði Bertil seinna þetta sama kvöld, eftir að þau höfðu í sameiningu breitt sængina yfir dóttur sína, og boðið henni góða nótt. „Ég læt undan," sagði hún alvar- leg. „Þú hefur áður haft orð á því að þú vildir bæta við enn einum aðstoðariækni, og þá léttast mín störf nógu mikið til þess að ég get sinnt Sofie meira en ég hef gert.“ „Svo þú vilt ekki algerlega hætta að vinna við sjúkrahúsið?" „Nei,“ svaraði hún fastmælt, og nú skildi hún fyrst til fullnustu, hvers vegna svo margar mæður höfðu mótmælt harðlega, þegar hún hafði reynt að fá þær til þess að hætta að vinna úti, og sinna börnum sínum meira. „Bertil, við gerum tilraun með Nisse.“ „Með Nisse?“ „Já, ég skal taka hann að mér persónulega á sjúkrahúsinu, og þeg- ar ég kemst að raun um, að hann er ekki raunverulega slæmur, þá lofa ég því, að hann skal fá að koma með okkur í sumarleyfið. Auðvitað getur verið að hann kenni Sofie einhver ljót orð, en þó held ég, að það sé stærri möguleiki á því, að hún geti kennt honum nokkur góð orð og hugsanir.“ í rúmunum sínum hvíldu Sofie og Nisse. Sofie með hamingjubros á vör, en Nisse hafði kvíðann sem sinn fylgisvein inn í draumalandið. Tvær sálir með sameiginlega mein- semd, sem ástúðin ein gat læknað. Örvita þrenning. Framhald af bls. 21. þungur og heldur óviðkunnanleg- ur blómailmur inni í stofunni, en nú liafði hin sterka angan af furu- nálaoliunni náð yfirhöndinni og honum leið vel. Hann opnaði við- tækið og tónar Beethovens fylltu stofuna. Evelyn stóð allt í einu hjá lion- um. llún hafði komið inn án þess hann veitti því athygli. Hann virti hana fyrir sér; hún var fegurri en nokkru sinni, enda þótt hann gæti ekki gert sér ljóst hvað þvi olli. Hún var ekki snyrt á annan hátt en venjulega og ekki í nýjum kjól, og samt sem áður fannst honum sem hann hefði ekki séð hana slíka lengi, eða þá að hann hefði ekki veitt henni atliygli um langt skeið og sæi hana nú allt í einu sem ó- kunnuga. Hann hallaði þreyttu höfði að barmi hennar og heyrð'i hjarta hennar slá, hratt og létt. Að sjálfsögðu hafði landsyfir- réttardómarinn átt sín ástarævin- týri áður en hann kvæntist; kynnzt að minnsta kosti fjórum eða fimm konum náið, venjulegum konum á venjulegan hátt. En kynni hans og Mariönnu höfðu ekki ver- ið með venjulegum hætti . . . log- andi ástriða, sem ýmist brá til ástar eða haturs, en var svo allt í einu slokknuð jafn skyndilcga og hún hafði blossað upp. Droste vissi ekki enn hvort þeirra hafði átt upptökin, eða hvort þeirra hafði kólnað fyrr, hann eð|a Maríanna. gQ — VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.