Vikan


Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 45

Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 45
DUS BLÆKLOR gerir gulnað tau mjallhvítt. DÚS-BLÆKLÓR gerir meira en að gera þvottinn hvítari, það sótthreinsar hann líka. DÚS-BLÆKLÓR fer vel með þvottinn. DÚS-BLÆKLÓR eyðir lykt og blettum í eldhúsi, baði, ísskáp- um, vöskum, gólfflísum, rusla- fötum, tréáhöldum, baðkerum og steypiböðum. DÚS-BLÆKLÓR er tilvalið til sótthreinsunar í veitingahúsum, ísbúðum, mjólkurvinnslustöðv- um, sláturhúsum og á mjólkur- áhöldur í sveitum. þó aö þær séu mjög sjaldgæfar. Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að stúlkan hiafi engan áhuga fyrir að kyssa manninn, þó að hún hafi ekki haft neitt á móti því að dansa vangadans. í þriðja lagi verður svo að hafa í huga, að kvenfólk hefur mjög mismunandi mat á kossum. f augum sumra stúlkna er það sjálf- sagður hlutur að kyssa karlmann, sem lienni likar sæmilega vel við, þó að hún sé ekki minnstu vitund hrifin af honum. Aðrar stúlkur takíi þetta miklu alvarlegar og vilja eklci vera i keleríi með karlmönn- um, nema að þær séu verulega hrifnar af þeim. Þessi sama regla gildir um allt kynferðislegt sam- band milli kynjanna. Það fer að miklu leyti eftir uppeldi og um- hverfi hvernig fólk snýst við því. Karlmcnn hafa yfirleitt miklu meira gaman af að kyssa en kven- fólk. í augum karlmanna er það verðugt og skemmtilegt sem frí- stundavinna og svo er þessi skemmtilega tilhugsun að það er aldrei að vita hvað' úr þvi verður. Kvenfólk hefur ekki sérlega gaman af því og væri sennilega alveg sama þó að það geri það aldrei. Það er miklu algengara að þær geri það til að þóknast karlmann- inum, en flesta grunar. í þeirra augum er það ekki annað en tákn þess að sambandið er nánara og væru alveg eins ánægðir með að vera í fanginu á karlmanninum án þess. í rómantiskum bókmenntum hefur verið gert mjög mikið úr því hve kossar séu stórkostlegir, þeg- ar fólk elskast, og þá sér i lagi fyrsti kossinn. Fólki á að liggja við yfirliði, sjá stjörnur og yfirleitt á allan hátt að vera miður sín af sælu. Reynsla flestra er allt önnur og verður fólk oft fyrir veruleg- um vonbrigðum vegna þessa. Allt líkamlegt samband karls og konu er karlmanninum miklu mik- ilvægra en konunni. Fyrir karl- manninn er það takmark í sjálfu sér, en hefur lítið gildi fyrir kon- una, nema að tilfinningar séu á bak við það. Það er karlmannin- um eðlilegt að leita á stúlkur og stúlkunum eðlilegt að halda aftur af honum. Þvi miður er lauslæti hjá stúlkum allalgengt hér á ís- landi. Þær hoppa upp í rúm hjá hverjum karlmanninum á fætur öðrum, án þess að nokkrar tilfinn- ingar séu að baki því. Þetta er óheppilegt frá þjóðfélagslegu sjón- armiði, enda höfum við heimsmet- ið í fjölda lausaleiksbarna. Þetta er einnig merki um persónulegt agaleysi viðkomandi stúlku sem er ekki lieppilegur eiginleiki hjá verð- andi eiginkonu. Það er rétt að liafa það i huga, þó að fáir myndu fást til að viður- kenna það, að allir ungir menn og allar ungar stúlkur, sem ekki eru gift, líta á alla sem þau kynnast, sem mögulega maka, venjulega án þess að gera sér grein fyrir þvi. Það er augljóst mál, að ungur mað- ur hefur ekki áhuga fyrir að gift- ast stúlku, ef margir af kunningj- um hans hafa átt við hana náið samband. Þetta sama gildir að nokkru leyti um karlmennina, en þó i minni mæli. Engin af þessum lauslátu stúlk- um okkar vill fallast á að þetta eigi neitt skylt við skækjulifnað. Mun- urinn er satt að segja ekki mjög mikill, nema livað skækjan virðist gera sér betur grein fyrir verð- gildi peninganna en aðrar lauslát- VIKAN 8. tbl. — 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.