Vikan


Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 30

Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 30
Kelvinator Áratuga reynsla tryggir yður óvið- jafnanlegan kæliskáp að ytra útliti, hagkvæmni og notagildi. - Hagsýnar húsmæður um víða veröld velja KELVINATOR kæliskáuinn. 6 og 7.7 cub.ft. fyrirliggjandi. 5 ára ábyrgð á mótor, árs ábyrgð á öðrum hlutum skápsins. - Viðgerða- og varahlutaþjónusta að Laugavegi 170. Sími 17295. AFBORGUN ARSKILMÁL AR. Vekla Austurstræti 14. Sími 11687. gQ _ VIKAN 8. tbl. II 4 4 'HL Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl): Kona, sem þú þekkir lítilsáhttar, kemur talsvert við sögu þína 1 þessari viku. Líklegt er, að þú kunnir ekki í fyrstu að meta það, sem hún gerir fyrir þig, en brátt mun renna upp fyrir þér Ijós. Þér gefst óvenjugóður tími til að sinna áhugamálum þínum í vikunni. Heillatala 7- Nautsmerkið (22. apríl—21. maí): Þetta verð- ur fremur tilbreytingarlítil vika, einkum ef þú reyn- i rekki neitt til að koma lífi í tuskurnar. Ef þér leiðist heima, skaltu umfram allt reyna að komast að heiman og skapa þér einhverja tilbreytingu. Þú virðist ekki taka nóg tillit til eins í fjölskyldunni. Heillalitur rautt. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú munt lifa mjög skemmtielga daga, einkum þó um og eftir r helgina. Mánudagurinn verður þó sá dagur, sem Wiy þú munt lengst minnast, enda skiptir hann þig og þinn nánasta miklu. Amor verður mikið á ferðinni, einkum meðal fólks milli þrítugs og fertugs. Þér verður á leið- inleg skyssa um helgina. Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú verður fyrir miklum freistingum í vikunni, og því miður bendir allt til þess, að þú verðir ekki maður til að standast þær allar, en láttu yfirsjón þína bá verða þér víti til vamaðar. Mánudagurinn er dá- lítið varasamur fyrir þig, einkum ef peningar eru annars vegar. Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst): Það verð- CK ur ekki ráðið úr stjörnunum, hvort þessi vika er “ þér í vil eða ekki. Ýmislegt bendir þó til þess, að helgin verði undanförnum helgum í öllu mjög frá- brugðin. Þú skalt fara að öllu með gát um helgina og umfram allt ekki láat stjómast af skoðunum manna, sem þú þekkir lítið til. Meyjarmerkið (24. ágúst—23. sept.): Þú munt fá erfitt en skemmtilegt verkefni til að glíma við í vikunni, en líldega ætlar þú þér allt of lítinn tíma til að ljúka því, og getur því farið svo, að þér leysist verkið illa úr hendi ,ef þú kallar þér ekki einhvern tii aðstoðar. Þú virðist einstaklega sérhlífinn þessa dagana. Vogarmerkið (24. september—23. október): Þú munt tefla á tvær hættur í vikunni í sambandi við mál, sem hefur verið þér mjög kærkomið undanfarnar vikur, og ef að líkum lætur, farnast þér vel, en vissulega er það allt annað en þér að þakka, mundu það. Persóna, sem vill þér vel, hverfur af sjónarsviðinu um stundarsakir. Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Þetta verður hin ánægjulegasta vika í alla staði, einkum þó fyrir unga fólkið. Miðvikudagurinn verður líklega sá dagur, sem minnisstæðastur verður konum. Talan 4 virðist skipta afar miklu í vikunni. Á vinnustað gerist eitthvað, sem gæti orðið til að koma af stað illindum. Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Þú munt þurfa að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur látið sitja msr á hakanum undanfarið, og er vissulega ekki seinna w vænna- Þér tækifæri til að launa vini þínum greiðann sem hann gerði þér fyrir skemmstu, og skaltu ekki láta það happ úr hendi sleppa. Heillatala 11. Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Þessi vika verð- í alla staði hin óvenjulegasta, og væri þér bezt að skipuleggja hana á engan hátt fyrirfram, því að y íj allt virðist ætla að fara öðruvísi en áætlað verður. Eitt kvöldið kemur undarlegur gestur í heimsókn — hann er ekki allur þar sem hann er séður. Heillalitur rauðleitt. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.): Þú munt verða á- þreifanlega var við það, að persóna nokkur vill kynn- ast þér nánar. í fyrstu kann að vísu að vera svo, að þú kærir þig ekki um slíkan kunningsskap, en sannaðu til: úr þessu gæti orðið hin bezta vinátta. Helgin verður fremur leiðinleg, einkum fyrir karlmenn Heilla- tala 5. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz): Þetta verður frem- Our tíðindalítil vika. Þú muntT sitja mikið heima og una þér vel. Þú munt hitta kunningja þína óvenju- lítið í vikunni, en allt bendir til þess að þú hafir ekki nema gott af einverunni. Þriðjudagurinn er mik- ill hamingjudagur. Heillatala 7.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.