Vikan - 21.02.1963, Síða 30
Kelvinator
Áratuga reynsla tryggir yður óvið-
jafnanlegan kæliskáp að ytra útliti,
hagkvæmni og notagildi. - Hagsýnar
húsmæður um víða veröld velja
KELVINATOR kæliskáuinn.
6 og 7.7 cub.ft. fyrirliggjandi. 5 ára
ábyrgð á mótor, árs ábyrgð á öðrum
hlutum skápsins. - Viðgerða- og
varahlutaþjónusta að Laugavegi 170.
Sími 17295.
AFBORGUN ARSKILMÁL AR.
Vekla
Austurstræti 14.
Sími 11687.
gQ _ VIKAN 8. tbl.
II
4
4
'HL
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl): Kona, sem þú
þekkir lítilsáhttar, kemur talsvert við sögu þína 1
þessari viku. Líklegt er, að þú kunnir ekki í fyrstu
að meta það, sem hún gerir fyrir þig, en brátt mun
renna upp fyrir þér Ijós. Þér gefst óvenjugóður
tími til að sinna áhugamálum þínum í vikunni. Heillatala 7-
Nautsmerkið (22. apríl—21. maí): Þetta verð-
ur fremur tilbreytingarlítil vika, einkum ef þú reyn-
i rekki neitt til að koma lífi í tuskurnar. Ef þér
leiðist heima, skaltu umfram allt reyna að komast
að heiman og skapa þér einhverja tilbreytingu. Þú
virðist ekki taka nóg tillit til eins í fjölskyldunni. Heillalitur
rautt.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú munt
lifa mjög skemmtielga daga, einkum þó um og eftir
r helgina. Mánudagurinn verður þó sá dagur, sem
Wiy þú munt lengst minnast, enda skiptir hann þig og
þinn nánasta miklu. Amor verður mikið á ferðinni,
einkum meðal fólks milli þrítugs og fertugs. Þér verður á leið-
inleg skyssa um helgina.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú verður
fyrir miklum freistingum í vikunni, og því
miður bendir allt til þess, að þú verðir ekki maður
til að standast þær allar, en láttu yfirsjón þína bá
verða þér víti til vamaðar. Mánudagurinn er dá-
lítið varasamur fyrir þig, einkum ef peningar eru annars vegar.
Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst): Það verð-
CK ur ekki ráðið úr stjörnunum, hvort þessi vika er
“ þér í vil eða ekki. Ýmislegt bendir þó til þess, að
helgin verði undanförnum helgum í öllu mjög frá-
brugðin. Þú skalt fara að öllu með gát um helgina og
umfram allt ekki láat stjómast af skoðunum manna, sem þú
þekkir lítið til.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. sept.): Þú munt
fá erfitt en skemmtilegt verkefni til að glíma við
í vikunni, en líldega ætlar þú þér allt of lítinn
tíma til að ljúka því, og getur því farið svo, að
þér leysist verkið illa úr hendi ,ef þú kallar þér
ekki einhvern tii aðstoðar. Þú virðist einstaklega sérhlífinn þessa
dagana.
Vogarmerkið (24. september—23. október): Þú munt
tefla á tvær hættur í vikunni í sambandi við mál,
sem hefur verið þér mjög kærkomið undanfarnar
vikur, og ef að líkum lætur, farnast þér vel, en
vissulega er það allt annað en þér að þakka, mundu
það. Persóna, sem vill þér vel, hverfur af sjónarsviðinu um
stundarsakir.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Þetta verður hin
ánægjulegasta vika í alla staði, einkum þó fyrir unga
fólkið. Miðvikudagurinn verður líklega sá dagur, sem
minnisstæðastur verður konum. Talan 4 virðist skipta
afar miklu í vikunni. Á vinnustað gerist eitthvað,
sem gæti orðið til að koma af stað illindum.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Þú munt þurfa
að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur látið sitja
msr á hakanum undanfarið, og er vissulega ekki seinna
w vænna- Þér tækifæri til að launa vini þínum
greiðann sem hann gerði þér fyrir skemmstu, og
skaltu ekki láta það happ úr hendi sleppa. Heillatala 11.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Þessi vika verð-
í alla staði hin óvenjulegasta, og væri þér bezt
að skipuleggja hana á engan hátt fyrirfram, því að
y íj allt virðist ætla að fara öðruvísi en áætlað verður.
Eitt kvöldið kemur undarlegur gestur í heimsókn —
hann er ekki allur þar sem hann er séður. Heillalitur rauðleitt.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.): Þú munt verða á-
þreifanlega var við það, að persóna nokkur vill kynn-
ast þér nánar. í fyrstu kann að vísu að vera svo,
að þú kærir þig ekki um slíkan kunningsskap, en
sannaðu til: úr þessu gæti orðið hin bezta vinátta.
Helgin verður fremur leiðinleg, einkum fyrir karlmenn Heilla-
tala 5.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz): Þetta verður frem-
Our tíðindalítil vika. Þú muntT sitja mikið heima og
una þér vel. Þú munt hitta kunningja þína óvenju-
lítið í vikunni, en allt bendir til þess að þú hafir
ekki nema gott af einverunni. Þriðjudagurinn er mik-
ill hamingjudagur. Heillatala 7.