Vikan


Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 34

Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 34
öð miklu leyti komið undir hans eigin skapgerð, undirbúningi og persónuleika. Sé um göfugan og mikinn mann að ræða, gerir ein- manaleikinn hið hreina hugarfar hans enn hreinna, en hið ónæma og harða hjartalag smámennisins gerir hann enn ónæmara og harð- ara. Þó að einmanaleikinn geti lyft stórri sál á hærra stig verður hann smásálinni fjötur og kvöl. En rithöfundurinn ætti aldrei að einangra sig frá umheiminum, þcg- ar hann er ekki að starfi. Ég hef alltaf haft meiri áhuga á körlum og konum en hugmyndum. Mér leiðast kvikmyndir, sjónvarp og leiksýningar; þó að ég viti að málskrafsmenn séu yfirleitt lélegir höfundar, vil ég heldur tala við ein- hvern eða hlusta á einhvern tala. Margir munu leita vináttu við þig, þegar þú hefur mikið að gefa. Þeg- ar þú hefur þörf fyrir að þér sé gefið, mun þeim fækka, en þeir verða hetri og traustari. UM ÁSTINA. Ástin er allsherjar skapari manns- ins og alheimsins. Ástin er innsta eðli alls og allra. Ástin lyftir hugs- uninni á hærra og víðara svið, skerpir andlega hæfileika, skirir 'til- Hvar er örkin hans Nóa? Dngfrú Yndisfríð býður yður hið landsþekkta konfekt frá N Ó A. Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin: Sigrún Linda Kvaran Rauðalæk 13, Rvík. Nú er það örkin hans Nóa, sem ungfrú Yndisfríð hefur falið í blaðinu. Kannski í einhverri myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana og ung- frú Yndisfríð heitir góðum verð- launum: Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis- gerðinni Nói. Nafn Heimilisfang örkin er á bls. Sími finningamar og stillir ofsann. Ást- in lifir og nærist á því að gefa. Það er hennar innsta eðli að gefa ekki einungis allt, sem hún getur látið af mörkum, heldur og einnig sjálfa sig. Ástin er gagnkvæm. Að skilja annan aðila er einhver hin mesta blessun í lífinu, og að vera skilinn af öðrum aðila er ef til vill sú un- aðslegasta og fyllsta gjöf, sem ástin getur gefið. Ástin gefur án þess að hyggja á endurgjald. Ástin er trygg og trú, þrátt fyrir allt, sem sagt hefur verið um ótryggð, óheiðar- leik og óstýrilæti hennar. Ástin viðurkennir hvorki takmörk tímans, vegalengdir eða ytri aðskilnað. Hún margfaldar gleðina, breytir sundur- þykki og ósamræmi í samkomulag og samræmi, dæmir ekki eftir því ytra. Ástin er æðsta takmark til- verunnar, hugsjón bræðralagsins, lífsfrjó persónuleikans og grund- völlur alls samstarfs. Ástin leitar að því góða, hvar sem er og við hvaða aðstæður sem er, og finnur það. Ástin túlkar tilgang alheimsins og mannsins i senn. Og trúin er ein- faldlega ást í víðtækari merkingu. UM NÚTÍÐ OG FRAMTfÐ. Nútíminn er ekki einn af öldudöl- um sögunnar, heldur öldufaldur sem rís með óstöðvandi hraða. Hið mikla tímabil er ekki á enda liðið, hinir miklu dagar eru runnir upp og enn meiri framundan. Hinar auknu samgöngumöguleikar og -aukna velmegun verður til þess að fólk ferðast hópum saman víðs- vegar um lönd og álfur. Allir ferð- ast um allt, og ekki er ósennilegt að sérhver maður sem eitthvað fer, komi heim aftur víðsýnni og hæfari maður, með minni andúð á með- bræðrum sínum, og dýpri skilning á þeim sannleika að velferð hans er háð velferð alls mannkyns. Þótt slögin séu veik enn, eru þó hjörtu mannanna loks farin að slá sem eitt hjarta. ★ í Baalbek og Damaskus. Framhald af bls. 15. hann kominn yfir í trúarbragða- ídeólógíu. Allright á hvað menn trúa, sagði hann. Bara að þeir fari með friði. Ég er Moslem. Flestir eru Moslems hér. Sumir kristnir. Allright. Fínir gæjar. Sama er mér. Bara ef þeir fara með friði. — En við innganginn var grafalvar- legur embættismaður Allah og hon- um leizt ekkert á, hvað þær voru berar um axlirnar sumar dömurnar okkar. Svo hann lét þær hafa svart- ar skykkjur til að gkýla nekt sinni. Bazarinn í Damaskus, hann er svo nærri moskunni fögru, að hávaðinn þaðan berst inn í helgidóm Allah. Ef til vill er þessi bazar austur- lenzkastur af öllu sem fyrir augum bar í þessari ferð. Það var leitt að geta ekki staldrað þar dálítið við, en þess var ekki kostur; en tvisvar gengum við þar í gegn. f fljótu bragði virðast þetta vera örþröng húsasund, upsir húsanna ná hérum- bil saman en maður sér allstaðar góða glefsu uppí himininn. Nú þarf náttúrlega varla að taka það fram, að gólfið — eða á ég heldur að segja jörðin — er þakið vamingi. Maður mismunar sér og skáskýtur framhjá góssinu á leið gegnum göngin. En veggirnir eru svo þaktir, að hvergi sést úr hverju þeir eru, eða hvort það eru bara staflar af koparmun- um, marglitu skótaui, persneskum teppum, strengjahljóðfærum, matar- ílátum. Svo verða rifur í staflana á einstaka stað og þar sést inná verkstæði, þar fara fram handiðn- ir. Arabiskt verzlunareðli þrífst hvergi betur en einmitt í svona þrengslum og margmenni. Allmarg- ir kaupmenn virðast ekki eiga sér ákveðinn samastað á bazarnum; þeir ganga um með stafla af dúkum á herðunum og áður en þú veizt af, hafa þeir umkringt þig, sveifla stórum damaskdúkum uppað nefinu á þér, tjalda næstum yfir þig dúk- unum ef þú ert ekki rokinn á stund- inni. Við göngum í nokkuð langri röð og svartskikkjufrúrnar hafa nóg að gera að kippa slæðunum saman fyr- ir munninn. Sumar eru í sandölum úr aflóga bíldekkjum. Svo er alls- staðar krökkt af þessum gráklæddu hermönnum stjómarinnar. Þeir bera stór skotbelti og það vantar ekki skot í eitt einasta slíður. Aftur á móti eru þeir sjaldnast með byssur; kannski ekki trúað fyrir þeim nema i stríði því að þá er allt leyfilegt. Þeir hressa samt uppá svipmynd mannlífsins á bazarnum og götunum i kring, föt þeirra eru nokkum veg- inn hrein. Betlararnir eru svo fjöl- mennir að þeir hljóta að hafa stétt- arsamtök: Einn hefur þessa gamal- kunnu aðferð að snúa lírukassa, ann- ar stendur með framréttar hendur én þess að reyna að sýnast eitt eða neitt og kvakar eitthvað í sifellu. Og svo er einn blindur, eða kannski sér hann meira en hann lætur. Suq et Tawil: Strætið beina, eða Vicus Rectus eins og það hét á dög- um Rómverja, það er frægasta gata í Damaskus. Það hefur verið aðal- stræti síðan Páll postuli kom þar, sællar minningar. Þá hafði einhver ómur af kenningum f^-ists borizt norður þangað og meðal Gyðinganna þar voru menn, sem töldu, að þar væri Messías borinn. Páll, sem þá hét Sál og var frá Tarsus i Litlu Asíu, hann gerði ferð sina til Dam- askus frá Jerúsalem til þess að berja á þessum villutrúarmönnum eða jafnvel að hafa þá með sér í bönd- um suður. Og láta þá standa fyrir dómi vegna skoðana sinna. Nú vildi svo til, að þar sem Sál kom ríðandi utan yfir eyðimörkina og nálgaðist Damaskus, þá varð ljós mikið og skært á himnum; hann blindaðist við það og datt af baki. Og í því heyrði hann rödd, sem spurði: „Sál, hví ofsækir þú mig?“ Og Sál spurði að bragði: „Hver ert þú, herra?“ Þá svaraði röddin: „Ég er Jesús, sem þú ofsækir. Erfitt mun þér verða að spyrna á móti brodcr- unum.“ Og Sál var leiddur inn til borg- arinnar og kom í hús Júdasar nokk- urs við Strætið beina. Þar var hann enn blindur í þrjá daga og þrjár nætur og neytti einskis; nú hafði hann sjálfur séð og heyrt og allt togaðist það á í huga hans þar sem hann sat í myrkrinu. Þá kom þar einn af lærisveinum Krists, sem bjó þar skammt frá, Ananías hét hann, og hann snerti Sál og þá fékk hann sjónina. Þama gerðist það síðan, að Ananías skírði Sál, sem nú varð Páll; postulinn Páll meira að segja. Hann byrjaði þegar að útbreiða kenningar Krists því maðurinn var duglegur. Það spurðist til fyrrver- andi samherja hans og þeir hugðust ganga af honum dauðum fyrir svik- in. En vinir Páls komu honum und- an; létu hann síga niður af borgar- múrnum í körfu. Hús Júdasar er líklega fyrir bí, en skammt frá Strætinu beina er hús Ananíasar. Þar er nú kapella. Leiðin þangað liggur gegnum þröng- ar götur og dimmar, sem minna á fátækrahverfið við Grátmúrinn í Jerúsalem. Það áttum við eftir að sjá síðar. Að ganga þar í gegn er hrollvekja, en um leið ógleyman- legur atburður. Það er orðið nokkuð dimmt. Og ljósmeti er ekki sóað í Damaskus með því að lýsa upp göt- ur fátæklinga. Á þeim götum ber það sama fyrir augu aftur og aftur: Fátækar konur, vannærð böm, hús verri en orð fái lýst, sóðaskapur. Loks göngum við niður steinþrep og komum í litla kapellu, hlaðna úr höggnu grjóti, gulleitu. Þarna bjó Ananías, sá góði maður, fyrir hér- umbil tveim þúsundum ára. Þar loga kerti og lýsa daufri birtu á grjótið en gömul skilirí af því, þegar Páll postuli blindaðist og þegar hann var látinn síga framaf múrnum, þau hanga á veggjunum sitt til hvorrar handar. Við þann forna múr, sem eitt sinn umkringdi Damaskus, þar voru handverksmenn við iðju .sína. Þar voru meðal annars búnir til skart- gripakassar, fóðraðir að innan en spónlagðir með mörgum tegundum viðar og flúmðu skrauti að austur- lenzkum sið. En utan dyra voru smá- pattar með þessi skrín og fóru eins og stormsveipir um göturnar þar sem einhver auravon var, Og þar sem túristabílar eru, þar er alltaf von. Nú voru margir kallaðir í kapp- hlaupinu um okkur, en frekar fáir útvaldir. Margar litlar hendur á lofti, brún barnsaugu. Sumir buðu niður, ætl- uðu sér að vinna á umsetningunni. Þá kom leiðsögumaðurinn, þessi með fimmtíu megatonnin innaní sér og sagði þeim að hafa sig á brott. Svo var dyrum bilsins skellt, rúðurnar undnar upp, en þeir gáfu upp barátt- una og létu skrínin síga. Þreyttir eftir daginn. Það stóðu nokkrir eftir þegar við fórum og grétu, því þeir höfðu ekki selt neitt. ,±. — VIKAN 8. tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.