Vikan


Vikan - 21.02.1963, Side 41

Vikan - 21.02.1963, Side 41
Ég undirritaður óska að gerast nemandi í: MÖTORFRÆÐI □ Vinsamlegast sendið gegn póstkröfu. □ Greiðsla hjálögð kr.____________ Heimilisfang Mótorfræöi II kennir leyndardóma dieselvélarinnar. Sami kennari — verö kr. 350,C Sjófarendur — kynnizt vélunum. Fyllið út seðilinn hér til hliSar og sendiS hann til BRÉFASKÖLA SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík. Innritum allt árið - BRÉFASKÓLI SÍS „Hvað er að, Henry?“ spurði konan. „Ekkert," sagði hann. „Þú ættir að færa þig um set. Yfir á kulborða." „Skipti Molo um umbúðirnar?“ „Já, ég nota nú einungis bórvatn.“ „Hvernig líður þér?“ „Ég er dálítið máttfarinn." „Ég ætla að fá mér bað,“ sagði hún. „Ég verð enga stund. Svo borða ég með þér og síðan flytjum við hengirekkjuna inn.“ Það var gott, sagði hann við sjálf- an sig, að við hættum að rífast. Hann hafði aldrei rifizt að ráði við þessa konu, en við hverja þá konu sem hann unni hafði hann hins veg- ar rifizt svo mikið að þau höfðu að lokum, alltaf, fyrir tæringu rifrildisins, ráðið því bana sem þau áttu sameiginlega. Hann hafði elsk- að of mikið, krafizt of mikils, og honum hélzt ekki á neinu. HONUM varð hugsað til þess, þegar hann var aleinn í Konstantín- ópel forðum, hafði staðið í rifrildi í París áður en hann hélt þaðan. Hann hafði legið með hórum nótt og nýtan dag, og síðan, þegar það var á enda, og honum hafði ekki tekizt að vinna bug á einman- leika sínum, heldur einungis gert sér hann óbærilegri, hafði hann skrifað henni, þeirri fyrstu, þeirri sem yfirgaf hann, og sagt henni frá því í bréfinu, hvernig hann hefði aldrei reynzt þess umkominn að ganga á milli bols og höfuðs á ein- manaleikanum ... Hvernig hann hefði orðið magnþrota og heltekinn hið innra með sér einu sinni þegar hann hélt að hann hefði komið auga á hana úti fyrir Regence, og að hann veitti eftirför hverri konu sem minnti hann á hana á götu, kviði því að það kæmi á daginn að það væri ekki hún, kviði því að verða að sjá á bak þeim tilfinningum, sem hún vakti með honum. Hvernig hver sú kona sem hann lagðist með gerði söknuð hans enn sárari. Hvernig að það sem hún hafði gert gat aldrei skipti neinu máli þar sem hann vissi að hann gat aldrei læknazt af ást sinni á henni. Hann skrifaði þetta bréf í klúbbnum, allsgáður, og sendi það í pósti til New York, bað hana að skrifa sér og senda bréfið til skrifstofunnar í París. Það virtist öruggt. Og þetta kvöld er hann saknaði hennar svo sárt að hann var allur heltekinn hið innra, gekk hann meðfram Taxims, náði í stelpu og bauð henni í kvöld- verð. Hann hafði farið með hana á dansstað á eftir, hún dansaði illa, og hann hafði skipt á henni og skap- heitri armenískri mellu, sem neri kvið sínum við hann svo við sjálft lá að undan brynni. Hann tók hana af brezkum undirforingja úr stór- skotaliðinu eftir að hafa slegizt við hann. Stórskotaliðinn skoraði á hann að koma út með sér og þeir slógust í myrkrinu á steinlögðu strætinu. Hann hafði slegið hann tvisvar, þungt, á kjammann og þeg- ar hann lá ekki samt var honum ljóst að þetta yrðu hressileg slags- mál. Stórskotaliðinn barði hann fyrst á skrokkinn síðan á gagnaug- að. Hann beitti enn vinstri hendi og hitti og stórskotaliðinn flaug á hann og þreif í treyjuna hans og reif af henni ermina og hann barði hann tvisvar aftanvert við eyrað og rotaði hann síðan með hægri hend- inni og hratt honum frá sér. Þegar skotliðinn féll skall hann á hausinn og hann hljóp á brott með stelpuna því að hann heyrði að herlögreglan var á leiðinni. Þau náðu í leigubíl og óku út til Rimmiley Hissa með- fram Bosporus, og hringinn, og aft- ur til baka í nætursvalanum og gengu til rekkju og hún var eins lík ofþroskuðum ávexti á að taka og á að líta, en mjúk á hörund eins og rósarblað, safamikil, þétt á kviðinn, brjóstamikil, og það þurfti ekki neinn svæfil undir þjó- hnappana, og hann yfirgaf hana áð- ur en hún var vöknuð og leit skjátu- lega út í fölri morgunskímunni og hann kom til Pera Palace með glóð- arauga og bar frakkann sinn því að aðra ermina vantaði á hann. Það sama kvöld hélt hann til Anatoliu og hann minntist þess að seinna í þeirri ferð, óku þeir allan daginn um valmúaakra sem þeir ræktuðu til að vinna úr ópíum og hve undarleg'a líðan það vakti, og loks virtust allar fjarlægðir rangar, þegar þeir hófu árásina með hinum nýkomnu liðsforingjum frá Const- anz, sem kunnu andskotann ekki neitt, og stórskotaliðið hafði skotið á þeirra eigin hersveitir og brezki eftirlitsforinginn grét eins og barn. Það var þennan dag sem hann sá í fyrsta skipti dauða menn klædda hvítum ballettpilsum og á tákróka- skóm með hríðskotabyssur í hönd- um. Tyrkirnir höfðu sótt fram stöð- ugt og þunglamalega og hann hafði séð mennina í pilsunum taka til fót- anna og liðsforingjana skjóta á þá og taka síðan sjálfa til fótanna og hann og brezki eftirlitsforinginn höfðu hlaupið þangað til hann fékk sting fyrir brjóstið og hann fékk rammt bragð í munninn og þeir staðnæmdust bak við kletta nokkra og enn sóttu Tyrkirnir fram eins þunglamalega og áður. Seinna hafði hann séð það gerast, sem hann mátti aldrei hugsa um og enn seinna hafði hann séð það enn verra. Og þegar hann kom aftur til Parísar í það skiptið gat hann því hvorki rætt um það né heyrt á það minnzt. Og þegar hann fór þar framhjá kaffi- húsi nokkru, sat bandaríska skáldið þar með hlaða af diskum fyrir framan sig og heimskusvip á kart- öfluandlitinu og ræddi um Dada að- gerðirnar við Rúmena sem kvaðst heita Tristan Tzara, sem alltaf bar einglyrni og hafði höfuðverk, og þegar hann var kominn aftur heim í íbúðina til konu sinnar sem hann elskaði nú aftur, allt rifrildi gleymt, öllu brjálæði lokið, glaður yfir að vera kominn heim, var pósturinn hans sendur þangað frá skrifstof- unni. Því var svarið við bréfinu sem hann hafði skrifað borið inn á bakka einn morguninn og þegar hann sá rithöndina kólnaði hann aliur upp og reyndi að lauma bréf- inu undir annað bréf. En kona hans spurði: „Frá hverjum er þetta bréf, vinur minn?“ og það varð endirinn á því upphafi. Hann minntist hinna góðu stunda sem liann hafði átt með þeim öll- um, og rifrildisins. Það var eins og “ 41 VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.