Vikan - 23.01.1964, Side 2
ER BIFREIÐ VORRA TlMA —
ER BIFREIÐ VEGA ALLRA LANDA
SIMCfl
II!
SIMCA 1000
SIMCA 1000
SIMCA 1000
SIMCA 1000
SIMCA 1000
SIMCA 1000
er öruggur í akstri, léttur og sterkbyggður og óvenjulega hraðskreiður
er fjögurra gíra áfram — allir samstilltir.
hefur vökvaþrýstihemla, sem aldrei þarf að stilla.
hefur hljóðláta 52ja hestafla vél, öflugt hita og kælikerfi, góða
hljóðeinangrun, frábæra fjöðrun og undra góð sæti.
ber með sér gæði efnis í hverjum hlut.
er sérstaklega sparneytin og ódýr í viðhaldi.
SIMCA 1500
SIMCA 1500
er stórglæðileg 5 manna bifreið af meðalstærð með öllum þeim þægindum, sem
krafist er af „Luxus-bifreið“ en er þó ódýr.
er með 81 hestafla vél, hámarkshraði 155 km. Þyngdarpunktur Simca 1500 er
óvenju lár, sem gefur aukinn stöðugleika og Simca 1500 er með diskahemla,
sem enn auka öryggið. Fjöðrun er afburðagóð.
SIMCA
SIMCA
_ o — o —
er sparneytinn. Það þ'arf aðeins að smyrja hann eftir hverja 20 þús. km og skipta
um olíu á 10 þús. km fresti.
Sameinar alla kosti háþróaðrar franskrar tækni.
SIMCII
umboðið á íslandi - Bergur Lárusson h.f.
Brautarholti 22 — Sími 17379 — Reykjavík.
í fullri alvöru
Hversu þarfar
eru parfirnar?
Ernest Hemingway sagði í
einskonar eftirmála við líf sitt,
sem nýlega hefur verið birtur
ásamt öðru, sem rithöfundurinn
lét eftir sig af óprentuðu máli,
að hann sæi það betur og betur
með aldrinum, hversu þarfir
mannsins væru fáar. Hann sagði
líka, að sér virtist, að því fjöl-
skrúðugra sem innra líf manna
er, þeim mun fábreyttara er
ytra Iíf þeirra. Það er gamla
sagan um það, að allt sé þetta
streð og kapphlaup um hin svo-
nefndu lífsgæði, eftirsókn eftir
vindi. Þetta sjá menn stundum
þegar þeir gerast gamlir; jafn-
vel menn eins og Hemingway,
sem svo sannarlega lifði ekki
neinu fábreytilegu ytra lífi fram-
an af ævinni og raunar langt
fram eftir henni.
Ef það er rétt, að þarfir okk-
ar séu raunverulega fáar og
kapphlaup um veraldargæði
komi upp um andlega fátækt,
þá er ekki gott í efni hér á voru
landi. Það, sem var kallað lúxus
og hreinast óþarfi í tíð feðra
okkar og mæðra, eru nú orðnar
„þarfir“, já, hreint og beint
brýnustu nauðsynjar. Enda eru
margir hugsandi menn áhyggju-
fullir yfir því, að andlegu lífi
þjóðarinnar hnigni; að menn
hafi aldrei tíma til að vera ein-
ir með sjálfum sér við frjóa
íhugun fyrir kapphlaupinu um
hin efnislegu gæði. Ef til vill
kemur það aldrei betur í ljós
en einmitt um jól og áramót,
hversu þarfir manna gerast um-
fangsmiklar. Orsakast það mest
af samanburðarástæðum; hver
vill vera síðri eða geta leyft sér
minna en fólkið í íbúðinni fyrir
ofan eða í næsta húsi? Húsnæði
og bíll eru grundvallarlífsgæði
eða einskonar fyrsti áfangi. Ný-
tízku húsgögn er önnur „nauð-
syn“, en megna þó ekki að gera
neinn hamingjusaman til fulls,
því þá vantar ýmislegt til upp-
fyllingar, helzt krystal eða kera-
mik, myndlist og nokkra metra
af bókum. Það þarf líka bæði
stell og silfurborðbúnað, já,
raunar líka stálborðbúnað. Svo
fara staup og glös fyrir koníak
og asna vel í nýju tekkskápun-
Framhald á bls. 50.
2
VXKAN 4. tbl.