Vikan


Vikan - 03.12.1964, Síða 43

Vikan - 03.12.1964, Síða 43
REIKAÐ UM TORG RÚMAR Framh. af bls. 15. af þeim í Karþagó, að landvinn- ingar voru ekki til neins annars en afla þræla, fjár og skattpenings. Þá fór auðurinn að streyma til Rómar, þangað sem allir vegir liggja eftir því sem sagt var. Þar hlóðst upp marmari og gull, pell og purpuri og munaðurinn varð vísindagrein með nýrri fullkomnun. En undirstaðan var ótrygg og feysk- in: Bændurnir voru teknir frá plóg og sáningu til að stríða í fjarlæg- um skattlöndum og í stað þeirra streymdu herteknir menn inn í landið: Þrælar og ambáttir. - 9 - Sumir standa upp úr fjöldanum eins og þú, Rómúlus. Sumir fyrir ágæti sín og mannkosti, aðrir fyr- ir valdarán og grimmdarverk. Flestir nutu þeir skamma stund sæt- leika valdanna, en mér hefur alltaf fundizt merkilegt, að sumir grimmdarseggir breyttust í göfug- menni í valdastóli, en aðrir, sem virtust efnilegir í upphafi, um- hverfðust. Neró, til dæmis. Hann var alls ekki óefnilegur unglingur og langaði þessi ósköp til þess að verða listamaður. Það var ekki að skapi Öldungaráðsins. Þeir litu það með viðbjóði, þegar keisarinn fór að leika á leiksviði, því leikarar voru næstir þrælum að mannvirð- ingum. En svo hefur hann brjálazt og eftir það rak hvert óhæfuverkið annað: Móðurmorð og líklega hef- ur hann kveikt í borginni til þess að geta byggt hana aftur eftir eig- in höfði. Og hvernig var ekki sá ágæti Ágústus, sem eitt sinn lét skrásetja heimsbyggðina svo sem frægt er orðið. Hann sparaði hvorki manns- líf né óvönduð meðöl, meðan hann var að ná völdunum. En þegar þau voru trygg, þá fór hann að sýna föðurlega umhyggju og reyndi að bæta siðferðið — með litlum ár- angri. Ágústus og Livia, þau bjuggu á Palatínhæð, þar sem keisarar einir bjuggu svo og Vestumeyjar. Nú eru rústirnar af höllum hans komn- ar langleiðina niður í grasið, svona er allt hverfult. Þær vissu mót suðri, vissu mót leikvanginum mikla, Circus Maximus, þar sem lýðnum, atkvæðunum, voru styttar stundir við æðislega kappakstra og þá skemmtun að sjá villidýr rífa í sig þrjózka sértrúarmenn, sem kallaðir voru Kristnir. Ég man ekki til þess að hafa lesið eða heyrt um aðra eins tíma og þá í Róm er hrappurinn Súlla hafði náð völdunlim, Súlla hinn heppni eins og hann var kallaður. Þó voru það ekki beinlínis stríðs- tímar, að minnsta kosti ekki eftir að hann hafði náð völdunum. Hann hafði mjög áhrifaríka aðferð við það að útrýma óvinum sínum,- setti upp lista víðsvegar í borginni Hrein frísk heilbrigö húð Það skiplir ekki máli, hvernig húS þér hafiSÍ Það er engin húð eins. En Nivea hæfir sérhverri húð. Því Nivea-creme eða hin ný|a Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit. Og þess vegna getur húð yðar notlð þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt. Hún getur sjálf ákveðið það magn, sem hún þarfnast af fitu og raka. Þetta er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og Nivea-snyrta húð. VIKAN 49. tbi, 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.