Vikan - 03.12.1964, Qupperneq 68
\ð er sterkur leikur!!
luisbóndavaldi á Laugarvatni, e.f
svo rnætti segja. Skóla- og sýslu-
nefnd Árnessýslu hafa ekki leng-
ur þau völd sem hingað til. Rikið
hefur tekið við ráðsmennsku og
nú heyrir staðurinn undir
menntamálaráðlierra.
Ég fagna þessari breytingu og
vona að hún verði til þess að
ýtt verði af stað einhverjum þeim
framkvæmdum, sem ég benti á
í fyrrnefndri grein í fyrra að
þyrftu að koma á Laugarvatni.
Ég treysti þvi að menntamála-
ráðherra skilji það og meti, hvert
gildi Laugarvatn hefur sem
ifeirðamannastaður og þá fyrst
og fremst hvíldar- og dvalar-
staður. Þegar þróunin hefur
staðið i stað og staðurinn hjakk-
að í sama farinu að þessu leyti
í áraraðir, þá ber að vona að
nýir siðir komi með nýjum herr-
um. Að vori á að fara fram á
Laugarvatni landsmót ungmenna-
félaganna. Það hefur að undan-
förnu verið bezt sikipulagða
iþróttamót, sem hér er lialdið og
mætti íþróttaforustan i Reykja-
vík nokkuð af j)vi læra. En nú
vantar margt á Laugarvatni til
þess að þetta mót geti haft þann
glæsihrag, sem sæmir á svo f'öfer-
um stað. Það vanfar til dæmis
gersamlega útisundlaug, helzt 50
metra langa. Ilofur í þvi sam-
bandi verið talað um freniur
hvimleiða bráðabirgðalausn, en
nú hefur mér skilizt, að skóla- og
sýslunefnd hafi látið af hendi
ra-kna 200 þúsund krónur til
þessa mannvirkis. Sjálfsagt verð-
ur ekki unnt að hyggja þá sund-
laug í vor, sem æskileg þykir
fyrir framtíðina, en fyrst það er
nú orðin nauðsyn að þetta mann-
virki komi, þá væri ekki úr vegi
að fara að skipuleggja staðinn
með tilliti til slikra móta og
ferðamannaaðstöðu yfirleitt. Það
tjóir ekki að rjúka i að byggja
sundlaug, sem ekki samræmist
því skipulagi, sem gert yrði innan
iskamms. -Mér er sagt, að ein-
hversstaðar sé skólprennsli frá
skólanum í vatnið og það gæti
af þeim sökum ekki talizt heilsu-
samlegt, jafnvel ekki uppi við
ströndina hjá hvernum. Það er
ósvinna, að slikt eigi sér stað;
það verður að halda vatninu
hreinu, þar þarf að koma falleg-
ur, hvítur sandur á ströndina og
það þarf að hreinsa botninn eitt-
hvað út frá strolndinni. Það þarf
að koma nýtt gufubað og að-
staða fyrir léttar iþróttaiðkanir
svo sem badminton eða golf.
Það er hreyfing á ferðinni um
þetta mál og margir áhugamenn,
sem vonast til þess að Laugar-
vatn rísi úr öskustónni. Það er
á döfinni að stofna félag áhuga-
manna um uppbyggingu Laugar-
vatns sem ferðamannastaðar;
valdalaust og fjármunasnautt
félag, sem mun reyna að verða
málinu að liði eftir því sem
orðið getur.
GS.
FTRIR DREHGI
NYLON SKYRTUR
hvítar og mislitar
BINDI
SLAUFUR
Danskar terylene-
buxur
allar stærðir
peysur
sokkar
nærföt
náttföt
húfur allskonar
ítalskir hattar
hanzkar
belti
frakkar
treflar
kuldaskór
kuldaúlpur
tejsir l.f.
Fatadeildin
gg — VIKAN 49. tbl.