Vikan - 22.12.1964, Síða 6
AVALLT UNG
^AN^ASIIR
„junvenill mask"
ÚTSÖLUSTAÐIR. —
REYKJ AVÍK: Tíbrá,
Gjafa- og snyrtivörubúðin,
Oríon, Holts-Apótek, TJarnar-
hárgreiðslustotan. —
AKUREYRI: Verzlunin Drífa.
PATREKSFIRÐI: Verzl. Ó.
Jóhannessonar.
»
HVE GOTT OG FAGURT . . .
Kæra Vika!
Nú vil ég biðja þig að segja
mér álit þitt á vandamáli, sem
heldur fyrir mér vöku. Ég er
núna 28 ára gömul og vinn úti.
Fyrir sjö árum kynntist ég ung-
um manni og við trúlofuðumst.
Hann hafði og hefur enn mjög
sérstakar skoðanir á hlutunum,
líka á hjónavígslunni. Þegar við
vorum búin að vera þrjú ár
trúlofuð, þá fluttist ég alveg til
hans og við höfum búið saman
síðan. Hann gerir óskaplegt grín
að öllu þessu, sem hann kallar
„borgaralegar venjur“, eins og
til dæmis því að fara til prests
til að láta gifta sig. En fólkið
mitt og kunningjarnir láta mig
ekki í friði og eru sífellt að
spyrja mig að því, hvort við ætl-
um ekki að fara að drífa í því
að gifta okkur. Ég segi bara,
„Jú, ætli það ekki,“ en svo ságði
ég einu sinni við hann eins eðli-
lega og ég gat: „Heyrðu, það er
alltaf verið að spyrja mig að því,
hvort við ætlum ekki að fara
að gifta okkur. Það er engu lík-
ara en fólk sé farið að halda,
að þú viljir mig ekki fyrir konu,
fyrst við erum búin að búa sam-
an í fimm ár svona. Við ættum
nú kannski að herða á þessu, eða
hvað finnst þér? Þá sagði hann:
„Blessuð hlustaðu ekki á þetta
pakk. Hvað eigum við að gera
með að gifta okkur? Erum við
ekki fullþroskaðar manneskjur?
Er þér ekki nóg að ég elska þig?
Hverju mundi þetta giftingar-
vottorð breyta?“
Og nú er ég uggandi og dá-
lítið óróleg. Hefur þetta vottorð
þrátt fyrir allt ekki eitthvað að
segja? Getur það ekki verið, að
hann sé innst inni hræddur við
að binda sig og vilji halda leið-
inni opinni að geta sagt bless á
fyrirhafnarlítinn hátt, þegar hon-
um þóknast? Svarið mér fljótt.
Jósefína.
--------Smeykur er ég um, að
þú hafir rétt fyrir þér. Þó hon-
um finnist hjónavígslan og gift-
ingarvottorðið gamaldags, þá
hefur það ákveðna þýðingu —
sérstaklega fyrir konuna. Tregða
til að giftast er talin karlmann-
legt fyrirbrigði eins og vilji kon-
unnar til að koma sambandinu
á hjónabandsgrundvöll er talinn
kvenlegt einkenni. Oft er sagt,
DÖMUKÁPUR - VIÐURKENND G/EÐAVARA
Tízkuvepzlunin Héla
Skólavörðustíg 15 — Sími 21755.
ma
6 -
VIKAN 52. tbl.
LANCASTER maski í túbum, dugar í 30 skipti. Maskinn styrkir
þreytta og veika vöðva og eyðir hrukkum og dróttum.
Þegar, eftir fyrstu notkun, finnst yður þér hafa yngst upp,
næstum endurfæðst. Auðvelt að bera ó og enn
auðveldara að þvo burt með vatni.
að „hún hafi náð í karlmann"
og að „hann hafi látið ánetjast“.
Ein sálfræðileg kenning segir, að
hafi samband drengs við móður
sína verið mjög náið og síðan
slitið á sársaukafullan hátt, þá
myndist sálræn mótstaða gegn
því að bindast nánum böndum
aftur. Kannski er því þannig far-
ið með þennan mann. En ef hann
af einlægni ætlar sér að þola
með þér sætt og súrt ævina út,
þá ætti hann að gera þér þann
greiða að ganga með til prests
eða borgarfógetans, fyrst þér er
það mikils virði.
KOMIN í KLÍPU.
Kæra Vika!
Nú verður þú að bjarga mér,
Póstur, því þetta er allt saman
VIKUNNI að kenna.
Ég tók upp á því fyrir þrem
— fjórum árum, að skrifast á
við karlmann í Englandi, en Vik-
an birti nafn hans og heimilis-
fang í einhveirjum pennavina-
þætti. Við höfum skrifazt á all-
an þennan tíma, jafnvel þótt ég
hafi komizt að því fljótlega að
maðurinn var rúmlega fimmtug-
ur, en ég aðeins 23 ára. Bréfin
okkar hafa alltaf orðið innilegri
og innilegri. Frá minni hálfu hef-
ur það bara verið vegna þess að
mér þótti öruggt að segja manni
einhversstaðar í Englandi ýmis-
legt, sem ég hefi ekki sagt öðr-
um. Það kitlaði dálítið og ég
hafði gaman að því. Ekkert ann-
að. Stundum hef ég líka ýkt dá-
lítið... töluvert, kannske, og
sagt honum sögur af mér og sam-
bandi mínu við karlmenn hér
heima, sem alls ekki eru sannar.
En nú dettur karlfauskinum
allt í einu í hug að koma hingað
til að heimsækja mig, og eftir
því sem ég bezt fæ séð, hefur
hann fullan hug á að giftast mér.
Allavega heldur hann að ég sé
það léttlynd að mér verði eng-
in skotaskuld að hafa hann í
rúminu hjá mér á meðan hann
stendur við.
Auðvitað vil ég ekki sjá karl-
inn né heyra hér heima, en
hvernig á ég þá að snúa mér í
málinu?
Siðprúð.
--------Þetta var þér rétt mátu-
legt fyrir að vera að æsa full-
orðinn mann svona upp. Réttast
væri að dæma þig til að liafa