Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 22.12.1964, Qupperneq 15

Vikan - 22.12.1964, Qupperneq 15
y-:<:y ( |§® . ::: : :::: . íhsííííi Ég lield afi mér sé næstum ó- hætt að segja að PEYSURNAR megi vera hvernig sem er. Sú, sem er einna mest áberandi, er „strokk- laga“ peysa. Er hún öll prjónuð eins og fit á peysu, ]). e. nolckrar brugðnar og nokkrar sléttar lykkj- ur. Virðast ermarnar oft settar i hálf kæruleysislega og mælti segja mér að prjónakonunum á Islandi jaætti iiið mesta „ósnið“ á ])eim. Þessi peysa er yfirleitt aðeins fram- leidd í einni stærð og á svo að teygjast eftir líkamanum. Afleið- ingin er sú að hún fer ekki vel nema mjög grönnum manneskjum. Þessi peysa er yfirleitt einlit, sé hún í fleiri litum er hún með reglulegum röndum á lang- eða þverveginn. Og einu má ekki gleyma — hún á að vera innan- undir pilsinu ef vel á að vera. Önnur gerð af peysum, sem vert er að minnast á, er laust prjónuð útprjónuð mohairpeysa. Er hún mjög hlýleg en í senn sparileg. PILSIN eru tvenns konar, eftir því hvort þau tilheyra peysu eða jakka, þ. e. eru helmingur af kjól eða dragt. Sé pilsið helmingur af tvískiptum kjól er það yfirleitt heldur fínt og í engu frábrugðnð þeim pilsum, sem verið hafa undan- farin ár. Sniðið er yfirleitt beint, stundum er pilsið þó dálitið út- sniðið að neðan. DRAGTIRNAR eru þær prjóna- flíkur, sem mér finnst hvað skemmtilegastar. Sniðið er yfir- leitt ekki mikið frábrugðið venju- legum taudrögtum, en áferðin miklu skemmtilegri. Dragtin er prjónuð úr mjöt7 (jrófu garni, gjarnan sprengdu garni, eða þá að tveim- ur eða fleiri litum af fínu garni hefur verið undið saman. Prjón- aða dragtin býður upp á mikla möguleika varðandi skraut, t.d. heklaðan einlitan kant neðan á pilsinu, á kraganum eða vösunum (ef um slíkt er að ræða) o. s. frv. Sömuleiðis er hægt að útbúa skemmtilega prjónaða hnappa, hneslur o. fl. Er Chanelsniðið alveg ákjósanlegt fyrir prjónuðu dragtina (þ. e. það snið sem tízkufrömuðurinn Chanel hcfur kom- ið með ár eftir ár, með aðeins smávægilegum breytingum). Um KÁPURNAR skiptir að miklu leyti sama máli og um dragtirnar. Ivápan er prjónuð úr grófu garni nema ef um kvöldkápu er að ræða, þá er garnið fínna og gisið mynztur. Til þess að gera prjónuðu kápuna hlýlegri, er oft settur á liana skinnkragi, skinnkantar framan á erm- arnar eða neðan á faldinn. Skinnkantar og skinnkragar eru nefnilega hátizkan í ár — ég lield að mér sé óhætt að segja að á tveimur af hverjum þremur kápum sé eitt- hvað úr skinni. VETTLINGARNIR OG TREFLARNIR eru ósköp svipaðir því sem verið liefur undanfarin ár. Treflarnir eru stórir, gjarnan röndóttir og þá i sterkum litum. Ef vettlingarnir eru háir eru þeir mynztraðir upp eftir handleggnum — og fyrir þær, sem ætla að prjóna sér háa ullarsokka, þá er alveg upplagt að prjóna vettlinga með sama mynztri. Og þá er komið að toppnum — liöfuðfatinu. Höfuð- fötin sem Parisardömurnar bera í ár eru: LOPAHÚFA OG HÁRNET. Lopahúfan (efnið er að vísu ekki beinlinis lopi, en áferðin næstum hin sama) er hekluð og er lagið Framhald á bls. 31. VIKAN 52. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.