Vikan


Vikan - 22.12.1964, Side 30

Vikan - 22.12.1964, Side 30
Leynilögregluspasjarinn Sher- lock Holmes er nú heldur bet- ur orðinn gamaldags sögu- hetja, með stækkunarglerið sitt í hendinni og bogna píp- una í munninum, ekki sízt nú, þegar fundizt hefur öruggasti spæjari allra tíma, sem er svo nókvæmur að hann get- ur skoðað og lýst efnismagni, sem er þúsund sinnum smærra en nokkur annar spæjari ræður við. Þetta er í rauninni tæki, sem notar kjarnorku og geislavirkni til að skoða sönnunargögnin, og getur þannig leitt í Ijós, hvort grunaður maður sé saklaus eða sekur. Niðurstöður, fengnar með tæki þessu, eru Ú Hér eru púðuragnirnar gerð- ar geislavirkar, áður en þær eru rannsakaðar til að greina uppruna þeirra. nú teknar gildar hjá banda- rískum dómstólum. Þessi nýja tækni er köiluð „neutron activation analysis", skammstafað NAA, og með henni er hægt að ákveða gerð efniseiningar, sem er að- eins einn tíu billjónasti úr grammi, eða þekkja eina te- skeið af eitri, sem blandað hefur verið saman við þús- undir lítra vatns. Með því má finna og skoða örlitlar púðuragnir úr byssu, skoða eitt mannshár, eða hve litla ögn sem er, af næstum hvaða efni sem er. En aðferðin er í aðalatriðum sú, að efnið er gert geislavirkt, og geisl- unin siðan skoðuð í sérstök- um tækjum, en þá kemur gerð og tegund efnisagnar- innar í Ijós. Ú Sérstöku efni er roðið á höndina, en við það festast púðuragnirnar — ef til eru. SÍÐAN SÍÐAST Ú Ef maður cr grunaður um að ha.fa skotið úr hyssu, má kom- ast að raun um ]>að mej. því að ná örlitlum púðurögnum af hendinni á honum, og skoða þær með NAA-aðferðinni. Þá kemur í Ijós, hvort hann hef- ur skotið úr byssunni, hvaða byssu hann hefur notað, hvenær hann skaut úr henni og jafn- vel hvaða gerð skotfæra hafi verið í byssunni. I háskóla einum í Bandaríkjunum hefur verið fundin upp aðferð til að framkvæma uppskurði á mönnum, í fullu trausti þess að engar skaðlegar bakteríur eða gerlar komizt að skurðstaðnum. Til þess er notað nokkurskonar tjald úr glæru plasti, og fest við sjúklinginn þar sem skurðurinn á að vera. Læknarnir eru fyrir utan tjaldið, og framkvæma aðgerðina í gegnum það. Þessi aðferð er talin vera mikil framför í læknavísindum, ekki sízt þegar græða þarf ný líffæri við sjúklinginn, eins og t.d. nýru. Sömu- leiðis þar sem um smitnæma sjúkdóma er að ræða, og við aðstæður þar sem erfitt er að framkvæma nauðsynlega sótthreinsun eða við- hafa fullkomið hreinlæti. Síðastliðið sumar fór íslenzka bítlahljómsveitin SOLÓ til Noregs og ferð- aðist um í Suður-Noregi við miklar vinsældir ungdómsins þar. Það skeði í Risör, þar sem þeir höfðu verið ráðnir til að leika tvo laugar- daga í röð, að þegar þeir komu þangað í síðara sinniö, urðu unglingarnir þar liálf óðir af hrifningu, og áður en íslenzku piltarnir gátu áttað sig, höfðu stúlkurnar í salnum dregið þá niður af leiksviðinu og hrúguðust í kringum þá með ópum og óhljóðum. Þeim tókst ekki að losna frá stúlk- unum fyrr en lögreglan hafði skorizt i leikinn og bjargað þeim aftur upp á pallinn svo þeir gætu haldið áfram að leika á hljóðfæri sin. Vinsældir drengjanna spurðust um suðurhluta landsins, og þeir voru alls staðar umkringdir ungu áhugafólki og aðdáendum. í bænum Adalsbruk, þar sem flestar beztu hljómsveitir Norðurlanda hafa leikið, settu íslenzku piltarnir met í vinsældum og léku þar fyrir troðfullu húsi. Norska ríkisútvarpið fékk þá til að leika inn á segulband, og var því síðan útvarpað nokkrum dögum síðar. Er vafalaust óhætt að fullyrða, að íslenzk hljómsveit hafi vart áður orðið svona geysivinsæl í Noregi, og að piltarnir hafi orðið landinu til sóma. ■

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.