Vikan - 22.12.1964, Page 39
inni, er svo stilling fyrir loftræst-
ingu í bílnum, þegar aliir gluggar
eru lokaðir. Það er líka góður hlut-
ur. Stýrishjólið er af sporttýpu —
körfuhjól með flautupílór greiptri
í hvern hjólpílóra, enginn flautu-
hringur. Flautan er sæmilega radd-
sterk. Framsætin aðskilin (Bucket-
týpa) og mjög þægileg. Stillanleg
fram og aftur. Aftursætið er sófi,
ætlaður fyrir þrjá, en ég hygg, að
ekki verði allir jafn ánægðir með
að sitja þar í miðjunni, því heljar-
mikill stokkur gengur aftur eftir
miðju gólfi. Ég myndi einna helzt
finna það að, að ekki virðist nógu
vel hugsað um aftursætisfarþeg-
ana; þeir fá lítinn stuðning við lær-
in, og fótarúmið má varla þrengra
vera. Hér hefur f jölskyldubillinn
fórnað helzt til miklu á kostnað
sportbílsins. Óþarft er að taka það
fram, að bíllinn er fóðraður allra
horna á milli, og áklæðið í sama
lit og bíllinn að utan. Það er mjög
viðkunnanlegt.
Þegar maður opnar aðra hvora
hurðina — því Mustang er aðeins
tveggja dyra — má segja að mað-
ur taki alla hliðina úr. Ég lét í
Ijsó nokkurn ótta við, að hurðin
tæki það mikið á sig, að henni
myndi hætt við skrölti, en Þórir
var ekki á sama máli. Hann kvað
hurðina svo lága, að þegar allt
kæmi til alls, væri hún ekki nema
15% stærri en á venjulegum
amerískum fólksbíl, og minni, þeg-
ar búið væri að skrúfa niður rúð-
una. Þar að auki væri frágang-
urinn á dyrastafnum og stýringum
hurðarinnar og læsingum svo góð-
ur, að ekki þyrfti að óttast að hún
sigi. Og víst er um það, að ekki
verður mikið fyrir aftursætisfarþeg-
unum, þegar þeir fara inn eða út.
Skottið er gott og opnast vel,
þótt ég hefði persónulega kosið að
það opnaðist lengra niður að aft-
an, en kannski það hafi ekki svo
mikið að segja fyrir hinn almenna
kaupanda, hvort svo sem hann er
að kaupa sér sportbíl, fjölskyldu-
bíl eða einkabíl. Frágangur allur
á bílnum virðist vera hinn vandað-
asti, og svo er að sjá, sem lacocca
hafi varað sig á því soðinu, sem
svo mörgum hefur reynzt ónotalega
heitt: Að reyna að gera dýran bíl
ódýran.
Og verðið? Alger standard gerð
af Mustang mun kosta 295 þúsund
krónur íslenzkar, miðað við harð-
topp, en 325 þúsund, miðað við
Convertible (blæjubíl). Og víst
mundi góðverk að kaupa gripinn,
því það styrkir ríkiskassann um ca.
150—200 þúsund. Og væntanlega
batna þá vegirnir að sama skapi.
Þar að auki er svo hægt að fá
alls konar aukaútbúnað með bíln-
um, og er hann talinn upp annars
staðar á síðunni.
Að lokum hef ég tilhneigingu til
að taka undir með bandaríska bíla-
manninum, sem ég man ekki leng-
ur hvað heitir, að hann sagði að
loknum reynsluakstri á Mustang:
Þetta er einhver gallalausasti bíll,
sem ég hef ekið.
Og þetta virðist vera almenn
skoðun, því á þeim skamma tíma,
sem liðinn er frá því að sala hófst
á Mustang, er hann orðinn þriðji
söluhæsti bíll í Bandaríkjunum.
Á næsta bæ við Ödáða-
hraun
Framhald af bls. 27.
því að búin er til maðkaveita að
sumrinu. Þá er haugað saman mat-
arieifum og öðru því sem fiski-
flugan sezt að í, en það er hvít-
maðkurinn, lirfa fiskiflugunnar, sem
notaður er fyrir beitu við dorgið.
Bezt þykir að stunda þessa veiði
á útmánuðum eða undir vorið, þeg-
ar ísinn er orðinn þunnur á vatn-
inu og komnar í hann vakir. Þá veið-
ist jafnan vel með skörinni. Enda
þótt vatnið sé ekki djúpt, aðeins
tveir metrar víðast, getur það verið
óþægilega blautt og kalt, ef ísinn
brotnar og þess vegna eru notuð
sérstök skíði til að fyrirbyggja það.
A vorin verður allmikil mergð svana
á vatninu en þegar eðlishvötin kall-
ar hefst grimmileg barátta milli
þeirra og það endar með því að
aðeins ein svanahjón verða eftir
á vatninu og gera sér hreiður þar.
Það hagar þannig til, að vatnið
er að verulegu leyti gert af manna
völdum með fyrirhleðslu og þegar
heimilisrafstöðin var byggð 1948,
þá hækkaði enn talsvert í vatninu.
Fallhæðin, sem virkjuð var, er að-
eins einn meter, en vatnsmagnið
bætir það upp. Sími kom þangað
norður eftir um 1930; þá var víða
símalaust í þéttbýlum héruðum, en
hins vegar var Jónas Jónsson frá
Hriflu valdamikill ráðherra á þeim
tíma og Bárðdælingur að uppruna.
Þjóðvegur telst að Víðikeri, 9 km
frá Svatrárkoti, en síðan sýsluveg-
ur, sem hefur víðtækari þýðingu en
aðeins fyrir þennan bæ. Þessi veg-
ur hefur greitt fyrir samgöngum
fyrir ferðafólk, sem leggur á Ódáða-
hraun. Byggð í Svartrákoti hefur
líka nokkra þýðingu fyrir Mývatns-
sveit, gangamenn þaðan gista þar
í göngum.
Það er greinilegt að veiðin er
uppistaðan í búskapnum, því sjálft
búið er lítið. Hörður hefur 166 kind-
ur á fóðrum í vetur, þrjá hesta og
fjórar kýr. Fjárhúsin standa suður
á túninu, kippkorn frá bænum, öll
úr torfi og grjóti úr hrauninu. Þau
hafa verið svo vel hlaðin, að nú
hafa þau staðið í 80 ár og sýn-
ast eiga langa lífdaga fyrir hönd-
liiliplliilllr
. < •»' :
An ALLJR VITI
fll# IhMÍI\ V I t I
Hinn heimsfrægi fegurðarsérfræðingur Helena Rubinstein selur hér á landi
hinar dásamiegu snyrtivörur sínar. Helena Rubinstein lætur sér svo annt
um fegurðina að hún hefir hclgað líf sitt rannsóknum á húðinni og notkun
fegurðarlyfja. Gjörið svo vel að kynna yður snyrtivörur Helenu Rubinstein.
■O Apple Blossom baCpúð-
ur og baðsalt.
Heaven Sent
ilmkrem,
baðpúður og
sápa. $
■O Apple Blossom handáburð-
ur — sápa og baðsalt.
ú Apple
Blossom
gestasápa og
ilmolía.
Apple Blossom ilmúðun — Handtösku ilmúðari — Handáburður — Báð- -O
vökvi — Baðpúður með Velour-svampi — Bað- og andlitssápa — Hreinsi-
krem — Næringarvökvi — Silki-andlitspúður — Silki-krempúður og varalitur.