Vikan


Vikan - 22.12.1964, Side 48

Vikan - 22.12.1964, Side 48
CANONET jnnior TAKIÐ MYMDIR ÁN FYRIRHAFNAR CANONET JUNIOR HUGSAR FYRIR YÐUR ALGERLEGA SJÁLFVIRK ÁBYRGÐ - VIÐGERÐARÞJÓNUSTA Bjorn & Ingvar Aðalstræti 8 — Sími 14606. Þessar umbúðir og góðar ljósa- perur heyra saman * vegna gæðanna — VIKAN 52. tbl. * 6-4 V A-7 ♦ A-G-7-2 * K-10-9-6-2 * 9-8 N A-K-7-3-2 V G-10-9 ¥ D-6-5 ♦ 10-9-5-4 V A ♦ 8-3 * D-7-5-3 S * A-G-4 A D-G-10-5 ¥ K-8-4-3-2 ♦ K-D-6 * 8 Norður Austur Suður Vestur 1 lauf 1 spaði 2 hjörtu pass 3 lauf pass 3 grönd pass pass pass dobl pass pass Norður gefur, allir utan hættu. Útspil spaðanía. Við skulum líta fyrst á sagn- irnar í spilinu í dag, því af þeim má töluvert læra. Margir sér- fræðingar myndu opna á einum tígli á spil norðurs, en opnun á einu laufi er langt frá því að vera óeðlileg sögn. Margir myndu einnig gefa forhandardobl á spil austurs í stað þess að segja einn spaða. Fyrsta sögn suðurs er að okkar áliti röng og fær doblið okkar atkvæði. Það er góð regla að dobla þá sögn hjá andstæð- ingi, sem hefði verið manns eig- in sögn, ef hann hefði sagt pass. Einn spaði hefði lika verið 300 niður, sem ætti að vera bezti árangur n-s á spilin. Um dobl austurs á lokasamningnum er lítið að segja; hann vill tryggja sér spaðaútspil, sem þó er eng- in trygging fyrir því að þrjú grönd tapist. Vestur spilaði út spaðaníu, austur drap á kóng og spilaði lágum spaða. Nú kom þrisvar hjarta og austur var inni á drottn- inguna. Hann tók spaðaás og spilaði meiri spaða. Suður drap og átti afganginn af slögunum. Þrjú grönd unnin dobluð með yfirslag. Vitanlega hafið þið séð hvaða vitleysu austur gerir. Þegar norð- ur spilar hjartaás, þá verður hann að kasta drottningunni í, í þeirri von að vestur lendi síðan inni og geti spilað laufi í gegn. En til þess að það heppnist verður vest- ur að eiga laufadrottningu, sem hann á áreiðanlega, þar sem sagnhafi fer ekki strax í laufið. k Angelique Framhald af bls. 29. sem brelan og lansquenet. Og er hugur manna stefndi til ásta, var enginn svo aumur, að hann fyndi hana ekki hér. En frá upphafi vega voru sígaunarnir aðal aðdráttaraflið á markað- inum. Þeir voru prinsar markaðarins með fjöllistarmenn sína og spá- kerlingar. Frá því um mitt sumar var hægt að fylgjast með komu lesta þeirra. Horaðir, gamlir hestar, gengu undir vögnunum, hlöðnum af konum og börnum og alls konar tækjum og áhöldum, stolnu svínakjöti og kjúkl- ingum. Karlmennirnir þögulir og hrokafullir, með sítt svart hár undir fjaðrahöttunum, sem slúttu yfir leiftrandi, kolsvört augun. Þeir báru langar lensur um axlir sér. Parísarbúar horfðu á þá með sömu spurulu forvitninni, eins og for- feður þeirra höfðu gert árið 1427, þegar þessir eilífu, hörundsdökku flækingar, höfðu komið að múrum Parísarborgar í fyrsta sinn. Þeir höfðu verið kallaðir Egyptar. Betlararnir viðurkenndu áhrif þeirra á upphaf lagasetningu undirheimanna og á allra kjána messu sat foringi þeirra veizlu með Stóra Coesre. Rodogone Egypzki, sem sjálfur var af sígaunaættum, var því í mikl- um álitum meðal glæpamanna Parisarborgar. Það var ekki nema rétt- mætt, að hann vildi hafa einkaaðgang að þessu markaðssvæði. Calem- bredaine var hins vegar höfðinginn yfir hliðum Nesle og Pont-Neuf og krfðist þess, að þetta svæði væri hans og eingöngu hans. Þessi samkeppni gat aðeins endað með dauða annars hvors. Síðustu dagana áður en markaðurinn var opnaður, brutust út nokkr- ar skærur umhverfis hverfið. Daginn, sem opnað var, urðu menn Calembredaine að láta sér nægja

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.