Vikan


Vikan - 22.12.1964, Page 50

Vikan - 22.12.1964, Page 50
Pillsburys BEST Munduð þér eítir að kaupa PILLSBURY’S BEST? Ef ekki, þá munið það næst! knrichep FLQJE Pillsburys BEST hjörtu þessara þriggja bjarna, hins gamla húsbónda þeirra, og sömuleið- is unglingsins, sem gekk um og safnaði peningum oð lokinni sýningu bjarnanna. Þau urðu fljótlega ásátt. Klukkan í turnum Saint-Germain-des-Prés sló tíu, þegar menn Rodo- gone, sem voru á verði meðfram gömlu síkjunum, sáu einhverja risastóra veru koma í áttina til þeirra í mistruðu tunglsljósinu. Binn þeirra, sem fór að rannsaka hvað væri um að vera, kom til baka með rifna yfir- höfn og alblóðuga bringu eftir risastóran hramm. Hinir biðu ekki eftir frekari útskýringum, en forðuðu sér hver sem betur gat. Sumir þeirra hlupu niður að Signu til að vara félaga sína við, en þeir höfðu fengið samskonar ónotaheimsóknir. Flestir glæpa- mannanna voru þegar komnir yfir ána á sundi yfir á bakkana hjá Lou- vre og aðra heilsusamlegri staði. Að berjast og drepa hvern annan i heiðarlegu einvígi var ekki álitið tiltökumál i hópi þessara manna. En enginn i hópi Rodogone Egypzka hafði hugrekki til að berjast við björn, sem á afturfótunum var að minnsta kosti tólf fet á hæð. Angelique sneri aftur að Nesle turninum og lét menn Calembredaine vita, að engir óæskilegir náungar væru lengur í hverfinu. Nokkrir van- trúaðir fóru til að rannsaka sögu hennar, en gátu ekki gert annað en viðurkenna staðreyndir. Trjábotn rak upp gjallandi hlátur: — O la la! Þessi Marquise'des Anges, endurtók hann hvað eftir ann- að. Svo er verið að tala um kraftaverk....! En Nicholas tók ekki eins á málunum. —• Þú hefur farið til þeirra til að svikja okkur, sagði hann og sneri upp á úlnlið Angelique. — Fórstu til Rodogone Egypzka til að seljá þig, eða hvað? Til að kæfa afbrýðissemiskast hans, varð hún að segja alla söguna. Að þessu sinni lék allt á reiðiskjálfi undan hlátri Trjábotns. Nokkrir nágrannar komu út að gluggunum sinum og hótuðu að koma niður með sverð sín og vopn og kenna þessum flækingum, sem ekki leyfðu heiðarlegu fólki að sofa, betri lexíu. Fótalausi maðurinn lét Það sem vind um eyrun þjóta. Hann renndi sér út á trjáplötunni sinni og fór frá einni kránni til annarrar, gegum endilangt Faubourg Saint-Germain hverfið, öskraði af hlátri og sagði söguna. Um mörg ókomin ár áttu betl- ararnir, sem söfnuðust saman við eldana eftir að segja söguna af Marq- uise des Anges og björnunum þremur. En þetta var engin lokahríð. Þegar að henni kom var Desgrez lög- regluforingi vel undirbúinn og að morgni hins fyrsta október fór hann til fundar við Monsieur de Dreux d’Aubray, yfirlögreglustjóra í París og fékk hann til að setja eins mikinn lögregluvörð og mögulegt var inn á markaðstorgið í Saint-Germain. En allt var rólegt um daginn. Menn Calembredaine höfðu töglin og hagldirnar og héldu uppi lögum og reglum. 1 rökkurbyrjun komu vagn- ar aðaismannanna inn á svæðið. Angelique var við hlið Calembredaine og saman horfðu Þau á skepn- urnar berjast: Tveir bolabítar móti villisvíni. Mannfjöldinn hafði gam- an af þessum ruddalegu leikjum og þyrptist upp að girðingunum um- hverfis leikvöllinn. Angelique var sætkennd. Þau höfðu komið viða við og drukkið sitt af hverju. Hún eyddi og sóaði á báða bóga úr pyngjunni, sem Nicholas hafði rétt henni. Hún var að kaupa leikföng og góðgæti handa Flori- mond. Að þessu sinni, til þess að ekki yrði eftir honum tekið — því hann hafði grun um að lögreglumenn lægju í leyni — var Nicholas vandlega rakaður og þokkalega klæddur. Allt var gleymt. Þetta var markað- urinn við Saint-Germain. Ljósin glömpuðu í gljáandi augum og fólkið minntist markaða bernskunnar, þegar það var ennþá heima í sveitum og smáþorpum. Nicholas setti handlegginn um mitti Angelique. Þannig var hann vanur að leiða hana. Henni fannst éins og um hana væri spenntur járnhringur svipað, og hún hafði séð í fangelsunum. Þetta tröllatak var þó ekki alltaf óþægilegt. I kvöld fannst henni til dæmis, að hún væri grönn og veik- byggð, hjálparvana og varin i þessum sterku höndum. Hennar hendur voru fullar af góðgæti, leikföngum og litlum ilmvatnsflöskum. Bardagi dýranna æsti hana, svo hún æpti og stappaði eins og hinir, þegar villi- svínið sendi hundana æpandi og vælandi út að mannfjöldanum. Allt í einu sá hún handan við vígvöllinn, hvar Rodogone E’gypzki stóð og horfði á þau. Framlhald l nœsta blaði. öll réttindi áskilin — Opera Mundi, Paris. 5Q — VIKAN 52. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.