Vikan


Vikan - 12.05.1966, Page 2

Vikan - 12.05.1966, Page 2
1962 var heildarlengd malbikaðra gatna í Reykjavík 59 km. — Síðastliðið ár hafa verið malbikaðir 38,8 km. Árið 1970 er áætlað að allar götur innan Elliðaáa og ' Fossvogs verði malbikaðar TR YGCJUM 'AFRAM UPPB YCGINCU REYKJA VlKUR í FULLRI ALVÖRU TÓMSTUNDIRNAR VERÐA VANDAKÁL Þróunin bæði hér og annars- staðar stefnir í þá átt, að vinnu- tíminn verður sífellt styttri og styttri. Stytting vinnutíma hef- ur verið liður í launabaráttu vinnustéttanna og með þeim árangri að nú geta velflestir tek- ið pjönkur sínar og haldið heim, þegar enn er verulegur hluti eftir af deginum. í fjölda fyrirtækja, bæði hér og erlendis hefur sá háttur verið upp tekinn að vinna af sér laugardaginn og þá er helgin orðin tveir heilir dagar. Nýlega sá ég það í bandarísku blaði, að næsta skref í þróun- inni þar vestra mundi verða það, að menn færu til síns heima um hádegi á föstudegi. Mig minnir að það hafi verið George Bernard Shaw, sem sagði, að vísu í gamni, að sunnu- dagurinn væri eitt alvarlegasta vandamál mannkynsins. Þeir sem ekkert hafa við að vera heima hjá sér, horfa fram á helg_ ina með hálfgerðum hryllingj enda er frítíminn orðinn allt 0f langur til þess eins að liggja uppíloft á sófanum. Við höfum ekki orðið svo mik_ ið vör við þetta vandamál en0- þá vegna endalausrar eftirspurn- ar eftir yfirvinnu, en þá er styttur vinnutími tilgangslaus, ef hann hefur einungis í för með sér lengri eftirvinnu. Æskilegra væri að uppræta þá vinnuþrælk- un, sem enn á sér víða stað. Hér er nýtt vandamál á ferð- inni, sem enn hefur ekki verið reynt að mæta og bíður úr- lausnar. Nú tíðkast að varpa öllu á herðar velferðarþjóðfélagsins og eitt af verkefnum þess í fram- tíðinni og raunar mjög bráðlega verður að koma upp heppilegum tómstundastöðvum. Sumir geta alltaf gert sér eitthvað til dund- urs á eigin spýtur, en fyrir hina, verður að setia upp einhvers-. konar starfsemi á stöðum eins og Krísuvík, Hveragerði, Þing- völlum og Laugarvatni til dæm- is. Tómstundaniiðstöðvar þurfa að rísa í öllum stærri bæíum og margar í Reykiavík, Þetta er þeg- ar orðið dagskrármál á Norður- löndum; þar tala þeir um „Fri- tidscenter", sem nauðsyn gagn- vart styttingu vinnutímans. Þá er verr farið en heima setið, | ef auvnar t^mstundir snúast upp ; það að verða einskonar bol 0, aldrei var það ætlunin- Þannig getur farið ef ekki ver^ur shý- izt við vandanum af skynsemi, bæði af hálfu einstaklinSantla 0g þjóðfélagsins. Gs.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.