Vikan - 12.05.1966, Qupperneq 8
NÚ GETIÐ ÞÉR FENGIÐ LÖNG, LENGRI
OG ENNÞÁ LENGRI, SILKIMJÚK AUGNHÁR
Ultra^Lash er fyrsti aucjnhára\\turinn sem lengir og þétt-
ir augnahárin án þess að gera þau stíf. Þessi einstaka
efnablanda lengir án gerviþráða. Allt sem þér þurfið að
gera er að bera Ultra+Lash á með hinum hentuga Duo-
Taper Brush sem bvggir upp um leið og hann litar hvert
augnhár. Ekkert auka erfiði og ekkert ergelsi út af gljáa-
lausum og klístruðum augnhárum. Sérstaklega auðvelt
að hreinsa á nokkrum sekúndum með Maybelline Mas-
eara Remover. Iíémur í þrem góðum litum: VELVET
BLACK SABLE BROWN og MIDNIGHT BLUE.
Skáldiðoo
iirOhitinn
Greín efftir
Gísla Sigurb|öv*nsson
Fyrir nokkrum árum var
haldið hátíðlegt í höfuðborg
landsins 100 ára afmæli stór-
skáldsins Einar Benediktsson-
ar og afhjúpað minnismerki —
myndastytta af honum sjálf-
um. Átti hann þetta sannar-
lega skilið. Hann hafði um
áratugi og mun um ókomin ár
eiga eftir að glæða hug og
þor þjóðarinnar með dýrmæt-
um kvæðum og ljóðum. Fyrir
þetta var þakklát þjóð að
þakka skáldajöfri sínum. En
hann hafði einnig gert annað,
sem seint mun gleymast eða
fullþakkað — hann benti þjóð
sinni á tímum vonleysis og
fátæktar á nýjar leiðir til at-
hafna og dáða. Skáldið og at-
hafnamaðurinn varð, eins og
gerist alltaf hjá lítilli þjóð,
misskilinn og líf hans var ekki
allt blómum stráð — síður en
svo. En hann átti fjársjóð, sem
svo fáir eiga, hugsjónir — og
hann sá svo ótal margt á
undan hinum.
Eitt af því, sem hann eign-
aðist hér á landi var mikið
jarðhitasvæði, ekki ýkjalangt
frá kaupstað, sem síðar var
bær, en nú er orðin borg.
Hann vissi, að jarðhitinn er
mikils virði og að hann má
nota á svo margvíslegan hátt.
En ekkert var gert; skáldið
lézt og árin liðu. Svo var það
mörgum árum seinna að einn
af færustu fjármálamönnum
landsins hafði áhrif á það, og
stuðlaði að því, að bærinn
eignaðist jarðhitasvæðið.
Hann sá strax hversu mikið
og margt mátti gera með
jarðhitann — og hann vildi að
bærinn eignaðist landið vegna
þess, að hann var einn af
þessum fáu mönnum, sem í
þá daga hugsuðu fjTÍr fólkið.
Saga þessa manns er táknræn
um hvemig tímpvnir voru þá
— fyrir fjölda mörgum árum.
Með dugnaði, festu og fyrir-
hyggju hafði honum tekizt að
efla þá stofnun, sem hann
starfaði við um langt árabil,
svo að til fyrirmyndar var.
En þá komu stjórnmálin, og
hann hvarf frá starfi, enda
þótt starfskraftar hans væru
óskertir. Gerðist það á þeim
tímum, að menn voru látnir
hætta störfum af stjórnmála-
skoðunum einum, en sem bet-
ur fer á slíkt sér ekki stað
lengur. Hefur þjóðin fyrir
löngu skilið, að slíku hefur
hún ekki ráð á, heldur ekki
á því, að láta duglega og
færustu menn á ýmsum svið-
um hætta störfum aðeins
vegna þess, að almanaksárin
eru orðin svona eða svona
mörg.
En þetta allt er formáli að
ævintýrinu um jarðhitasvæð-
ið, sem skáldið keypti og varð
síðar eign nýrrar borgar.
Jarðhitinn þar er nærri ó-
tæmandi. Heitar laugar eru
margar og svo er það gufan,
sem kemur úr ótal borholum.
Hefur fyrir nokkru verið not-
að af henni til saltvinnslu og
hitaveitu — en frá því hefur
verið skýrt áður í blöðum, og
verður því ekki ritað nánar
þar um — en þessar tvær
framkvæmdir hafa haft mik-
il áhrif á afkomu borgarbúa.
Garðyrkjumiðstöðin í
Krýsuvík er orðin fyrir löngu
öllum landsmönnum vel kunn
— enda hefur með starfsemi
hennar orðið algjör ])áttaskil í
garðyrkju í landinu. Var lengi
vel mjög mikil óreiða í mennt-
un garðyrkjumanna, en síðan
Garðyrkju- og skógræktar-
skóli Ríkisins tók til starfa í
Hveragerði fyrir nokkrum ár-
um hafa algjör þáttaskil orðið.
Hefur öll menntun garðyrkju-
i