Vikan - 12.05.1966, Page 49
notuðu það. Þótt það hafi lengi
verið ófrávíkjanleg venja, að
höfundar þeir, er sent hafa frá
sér bækur það árið, sem úthlut-
unin tekur til, séu teknir í lægsta
launaflokk að minnsta kosti, svo
sem í viðurkenningarskyni, þá
var nú brugðið út af þeirri venju
að ráði meirihluta úthlutunar-
nefndar, sem menn eru, sem
kunnugt er, skipaðir í eftir póli-
tík. Hvorugur þeirra Ingimars
eða Jóhannesar fékk krónu.
Hér í blaðinu birtist, til frek-
ari upplýsingar á málinu, viðtal
við Ingimar Erlend Sigurðsson,
þann rithöfund íslenzkan, er hvað
umdeildastur hefur verið undan-
farna mánuði, auk umsagna
nokkurra viðurkenndra rithöf-
unda og bókmenntamanna, sem
Vikan hefur leitað álits hjá varð-
andi þau skáld og þær bækur,
sem ómótmælanlega hafa verið
mest á dagskrá hjá okkur upp
á síðkastið.
dþ.
í J iflÉll'
LILJJU
LILUU
LILUU
LILUU
Vilhjálmur S. LILJU BINDI
Vilhjálmsson__________ ERU BETRI
Framhald af bls. 13.
BORGARLÍF. Þetta er mikil skóld-
saga, stíllinn er næmur til áhrifa,
litirnir aðeins tveir: hvítt og svart.
Skaphitinn er mikill og hrokinn ó-
skaplegur. Hefndin er sæt fyrir
suma. Ég trúi því ekki, aS Borgarlíf
valdi neinum straumhvörfum. For-
vitni er nokkur fyrir hendi um efni
þessarar bókar og fyrst og fremst
vegna þess aS hún er talin „lykil-
róman". Fólk langar til að lesa Ijótt
um aðra og þá fyrst og fremst þá,
sem þaS veit einhver deili á.
SVÖRT MESSA. Halldór Laxness
var milli tvítugs og þrítugs, glaður
og fagnandi á degi hverjum, hann
kom dansandi og brosandi móti
manni hvar sem fundum bar sam-
an. Hann var sundurgerðarmaður
og klæddist stundum skrítilega og
þá mest þegar hann hafði ráð á
því. Stíll hans var léttur en losara-
legur, en sýnir hans miklar og marg-
víslegar og tilsvör hans leiftrandi
af gáfum. — Jóhannes Helgi er
stórvaxinn, lokkurinn svartur, and-
litsvöðvar strengdir, augun hörð, al-
varan þung og sterk. Hryggð og
varnarstaða. Hann hirðir lítið um
klæðaburð eða útlit, greiðir sér jafn-
vel ekki. Stíll hans er sterkur og
mótaður, höggvinn til og boðunin
situr föst, hverfur ekki að sinni.
Hann hefur svo mikið að segja, að
hann gætir ekki hófs. Þér ber að
hlusta. Þér ber að lesa. Svört messa
ber öll þennan svip, nema hvað
samúðin með persónu bregst næst-
um aldrei — og það er góður drátt-
ur. Hugmyndin er stórkostleg: Lítil
eyja og mannfélag hennar, ótrú-
lega samanþjappað mannfélag með
nær öllum skinum og skuggum
þjóSfélagsins. Sagan er of löng.
Hún hefði batnað við úrfellingar al-
veg eins og Vefari Halldórs. Þessi
skáldsaga er þrekvirki og ber vott
Fást í næstu búð
LOXENE
- og flasan ffer
um frábæra hæfileika og mikiS
þor. Ég trúi því að hún valdi straum-
hvörfum. Ef Jóhannes Helgi beitir
sjálfan sig þeim aga, sem Halldór
gerði og hefur alltaf gert, þá er
ég ekki í nokkrum vafa um að hann
kemst ekki skemur en hann. ViS
hann mun ég segja ef ég hitti hann
einhverntíma: ElskaSu aðra meira
en sjálfan þig. — En elskaSu sjálfan
þig samt.. .
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson.
Dæmd fyrir kjörbúða-
þjófnað
Framhald af bls. 15.
sig seka um svona ómerkilegan
þjófnað?
Hún á lúxusvillu í Goldwater
Canyon hverfinu, þetta hús eitt
stendur ekki í minna en fjórum
milljónum króna. Hún býr þarna
ein, án þjónustufólks, en á þann
hátt að það er ómögulegt að setja
hana í samband við peningavand-
ræði. Hún ekur rjómagulum Ford
Thunderbird, með svartri leðurinn-
réttingu, og ef hún verður þreytt
á honum, er annar bfll, Buick Stat-
ion tilbúinn í bílskúrnum. A gras-
fletinum fyrir framan dagstofu-
gluggana glitrar á sundlaugina og
hún á mjög mikið af vinum, þekktu
fólki ( kvikmyndabænum.
Fyrir fimm árum skildi hún við
fimmta eiginmann sinn, olíumilljón-
arann J. Howard Lee frá Texas.
Hann greiddi henni 26 milljónir
(fsl.) króna, til að losna við þras,
eins og hann sagði. Varla getur
hún verið búin að eyða því öllu.
Sérstaklega ekki þar sem hún í
þrjú ár hefur fengið framfærslupen-
inga frá sjötta manni sínum, Lewis
Boise Jt. frá Californiu, sem er
þekktur lögfræðingur, að vfsu ekki
milljónaeigandi, en samt ekki beint
fátæklingur.
En það sem þó er athyglisverð-
ast er það að hún var búin að fá
tilboð og samninga úr kvikmynda-
verinu. Hversvegna gerði hún þetta,
sem gat haft áhrif á ráðningu henn-
ar?
Það var Paramount sem bauð
henni þetta hlutverk og hún átti
að leika á móti Don Ameche (í
„Picture Mammy Dead"). Hedy
Lamarr átti að leika hlutverk konu
sem brennd er til dauða. Þegar hún
var tekin föst, hafði hún t töskunni,
fyrir utan 650 krónur f peningum,
tvær ávísanir frá kvikmyndafélag-
inu, sem hún hvenær sem var gat
breytt f 700 þúsund krónur f pen-
ingum.
Hversvegna stal hún?
Fyrsta setningin f lögregluskýrsl-
unni benti til þess að hún játaði á
sig sökina. í fylgd með lögreglu-
þjóni, kvenlögreglu og forstjóra
verzlunarhússins og sínum eigin við-
skiptaráðunaut stóð hún fyrir fram-
an lögregluforingjann á stöðinni og
hvízlaði:
— Hversvegna get ég ekki feng-
ið að borga þessar vörur? Onnur
Fjarlægið nagla-
böndin á
auðveldan hátt
Hinn sjálffyllti Cutipen gefur mýkj-
andi lanolínblandaðan snyrtilög, einn
dropa í einu, sem mýkir og eyðir
óprýðandi naglaböndum.
Cutipen er eins og fallegur, óbrjótandi
sjálfblekungur sérstaklega gerður til
snyrtingar. Hinn sérstæði oddur hans
snyrtir og lagfærir naglaböndin svo
að neglur yðar njóti sín.
Engra pinna eða bómullar er þörf.
Cutipen er algerlega þéttur, svo að
geyma má hann í handtösku.
fæst í öllum snyrtivöruverzlunum.
Handhægar áfyllingar.
Fyrir stökkar neglur hiöjið um
Nutrinail,
vítamínblandaðan naglaáburð, sem
seldur er í pennum, jafn handhæg-
um í notkun og Cutipen.
Eignist
nýja vini!
Pennavinir frá 100 löndum óska
eftir bréfaskriftum viS yður. Upp-
lýsingar ásamt 150 myndum
verða send til yðar án endur-
gjalds.
HERMES
Berlfn 11, Box 17/1 Germany.