Vikan - 19.05.1966, Qupperneq 2
í FULLRI HLVÖRU
Reykiaus borg
en rykmetluð
Það tíðkast að segja útlending-
um frá því og gjarnan með
nokkru stolti, að Reykjavík sé
reyklaus borg. Hitaveitan er því
til sönnunar; kolakaupmenn hafa
orðið að snúa sér að öðrum við-
fangsefnum, kyndiklefum er
sleppt í nýjum húsum og reyk-
háfar eru bara minnismerki um
liðna tíð. Frá þeim líður enginn
reykjareimur lengur til að
menga það loft allra lofta bezt,
sem norðanáttin skilar okkur
ofan af Esjunni. Þvílík heilsu-
lind.
Samt þrássast kvefið við að
skilja við okkur fyrir fullt og
allt og ein pestin rekur aðra eins
og heilnæmt norðanloftið hafi
ekkert að segja.
Það hefur það heldur ekki.
Þrátt fyrir reykleysið er Reykja-
vík rykmettuð borg; svo ryk-
mettuð að leitun mun á öðru
eins í Evrópu nema ef vera
kynni í smábæjum á Balkan-
skaga. Þar af stafar óhollustan
og óþrotlegur kveffaraldur ár
og síð. Kunnur háls- nef- og
eyrnasérfræðingur hefur sagt, að
hér hafi annar hver maður
skemmda slímhúð í nefi og hálsi
þar af leiðir viðnámsleysið gagn-
vart hvers kyns pestum.
Að mestu leyti er þetta af-
leiðing ófrágenginna gatna, það
er að segja; gangstéttir vantar
í stærstan hluta borgarinnar.
Gangandi vegfarendur verða í
svotil öllum úthverfum borgar-
innar að stikla í mold og möl,
eða for þegar blautt er um. For-
in veðst út á malbikið þar sem
það er og rýkur í háaloft undan
umferðinni þegar þornar.
SL. 4 ÁR VORU BYGGÐAR 2500 ÍBÚÐIR í REYKJAVÍK
EÐA FYRIR 10 ÞÚSUND MANNS
Á NÆSTU 4 ÁRUM ÞARF AÐ BYGGJA A.M.K. 2800 ÍBÚÐIR
TRYGCJUM 'AFRAM UPPBYGGINGU REYKJAVÍKUR
Gangstéttir eru jafn þýðingar-
miklar og göturnar sjálfar. Og
fullnaðar frágangur gatna er ekki
fyrst og fremst samgöngubót og
augnayndi, heldur kannski öllu
fremur heilsubótarráðstöfun.
Samkvæmt skipulaginu er ekki
lengi að bíða þess að götur verði
fullfrágengnar. Þegar búið er
að rykbinda Reykjavík, þá skul-
um við tala um reykleysið og
góða loftið, en ekki fyrr.
G.S.