Vikan - 19.05.1966, Side 4
ANDRÉS INDRIÐASON
Þyrnar
Þcssir piltar eru frá Snæfcllsnesi og kalla sig Þyrna,
cn áður ncfndist hljómsvcit þcirra Ómó. Piitarnir,
sem eru í miklum metum hjá ungu fólki á Snæ-
fellsnesi, heita, talið frá vinstri: Snorri Böðvarsson
(sólógítar), Xrausti Magnússon (bassagítar), Stefán
Alexandersson (trommur) og Sturla Böðvarsson, en
hann er hljómsveitarstjóri og lcikur á rhythmagít-
ar og harmonikku, þcgar svo ber undir.
dylst engum, að talsverður tjörkippur
Hli er kominn í hljómplötuútgáfu hérlendis.
Að vísu er hér aðeins eitt hljómplötuútgáfufyrir-
tæki um hituna, SG-hljómplötur, en það virðist
dafna allvel og jafnframt hefur það vakið at-
hygli, hve plöturnar eru vel úr garði gerðar.
Þá er það og lofsvert, að nú loksins hefur ungl-
ingahljómsveitum verið gefið tækifæri að leika
á plötu, en eftir þessu framtaki hefur unga fólk-
ið beðið lengi.
Fyrir skömmu kom út hljómplata með Dátum
og er þar að finna fjögur lög — þrjú eftir Þóri
Baldursson en eitt er erlent. Dátar hafa á til-
tölulega skömmum tíma aflað sér mikilla vin-
sælda hjá unga fólkinu en þeir hafa einkum
leikið fyrir „yngstu hlustendurna", m.a. í Lídó.
Ef við könnum nú innihald plötunnar, verður
fyrst fyrir lagið Leyndarmál. Þetta er rólegt lag
og einkar fallegt. Skemmtilegt er samspil gítars
og orgels í byrjun, sem gengur síðan eins og
rauður þráður í gegn um lagið. Söngur Rúnars
Gunnarssonar er mjög athyglisverður, hvert orð
kemst til skila, sem er sannarlega lofsvert og
tvísöngur Rúnars og Jóns Réturs í millikafla er
óvenju góður. Þeir bræður minna jafnvel á Pét-
ur ög Gordon í tvísöng sínum og er þar ekki
leiðum að líkjast. Texti Þorsteins Eggertssonar
er mjög þokkalegur. laus við skrúðmælgi og
hátíðlegheit — í senn einfaldur og einlægur.
Þetta er án efa bezta lagið á plötunni, lag, sem
vinnur á eftir því sem maður heyrir það oftar
og það á áreiðanlega eftir að verða Kfsseigt í
óskalagaþáttunum.
Lagið Alveg ær er öllu fjörlegra ( nokkurs
konar Chuck Berry tempói. Orgelið er yfirgnæf-
andi allt frá byrjun og erfitt er að gera sér grein
fyrir því, hvernig Dátar ætla að flytja þetta lag
á dansiböllum án aðstoðar Þóris Baldurssonar.
Textinn er skeifing lítilfjörlegur og í rauninni
ekki annað en endurtekningar. Söngurinn er
ágætur og undirspilið sannar, að Þórir er prýði-
legur orgelleikari. Lagið er sniðið handa þeim,
sem hafa gaman af að dansa sjeik, en sá dans
þykir víst gamaldags á þessum síðustu og verstu
tímum.
A hinni hlið plötunnar er fyrst lag, sem nefnist
Framhald á bls. 6.
Nú hleypum við af stað nýstárlegri skoðanakönnun og spyrjum:
Hvernig er íslenzka óskahljómsveitin skipuð? Þið eigið að kjósa
bezta sólógítarleikarann, bezta rhytmagítarleikarann, bezta bassa-
gítarleikarann, bezta trommuleikarann, bezta orgelleikarann, tvo
beztu saxofonleikarana og bezta söngvarann, m.ö.o. þið týnið úr
hinum mörgu hljómsveitum okkar þá einstaklinga, sem ykkur finnst
beztir á sitt hljóðfæri og stillið þeim upp í eina hljómsveit. Þetta
verður þá nokkurs konar landslið.
Þetta er í fyrsta sinn að skoðanakönnun með þessu sniði fer fram
hérlendis og okkur finnst hún álika skemmtileg og stöllunum hér á
myndinni!
Þegar óskahljómsveitin hefur verið kosin, fáum við væntanlega
að heyra hana í Lögum unga fólksins í umsjá Gerðar Guðmunds-
dóttur, en hún hefur boðið óskahljómsveitina hjartanlega velkomna
til sín. Einnig munum við að sjálfsögðu birta myndir af öllum þeim,
sem kosningu hljóta og kynna þá fyrir lesendum, en þeir, sem þið
viljið útnefna, mega að sjálfsögðu vera í hvaða hljómsveit á land-
inu sem er. Ef þið eigið bágt með að muna nöfn, er nóg að benda
á tiltekið hljóðfæri í tiltekinni hljómsveit, en þá vitum við, við hvern
er átt. Utan á umslagið skulið þið skrifa: Vikan, Eftir eyranu, Skip-
holti 33, Reykjavik.
Þátturinn Eftir eyranu mun framvegis birtast hálfsmánaðarlega í
Vikunni. Talsvert los hefur verið á þættinum í vetur sökum dvalar
stjórnanda hans erlendis, en nú, þegar þátturinn er kominn i fast-
ar skorður vildum við biðja unga lesendur um land alit að senda
okkur greinar og myndir, sem flokkast undir það efni, sem birtist á
þessum blaðsíðum. En nú tökum við fram blað og blýant og still-
um upp óskahljómsveitinni. Skilafrestur er til 1. júli n.k.
^ VIKAN 20. tbl.