Vikan - 19.05.1966, Síða 5
I
I
l
1
1
t
l
I
&
A
Sk
A.
&
£
&
S.
i
1
i
A
á
gítan :{
í þessum þætti og næstu
þremur þáttum birtum við
ráðleggingar fyrir byrjendur
í gítarspili og trommuleik.
Áhugi á þessum hljóðfærum
virðist fara sívaxandi hér-
lendis sem víðar og nýjar
hljómsveitir spretta upp eins
og gorkúlur um land allt.
Þess vegna væri ekki úr vegi
að hugleiða það sem hinir
eldri og reyndari spilarar
hafa að segja. Hér er um
spilara í sex þekktum hljóm-
sveitum að ræða — en þrjár
þessara hljómsveita hafa
haldið hljómleika hérlendis:
The Searcliers, The Kinks og
Thc Hollies. Við muniun
komast að raun um, að ekki
eru allir sammála í ráðlegg-
ingum sínuiri, en engu að
síður er fróðlegt að heyra,
hvaða heilræði þeir hafa
fram að færa.
. .Fyrst verður drepið á sóló-
gítarinn, en í næsta þætti
verður fjallað um rhythma-
gílar, síðan bassagítar og að
lokum trommur.
GEORGE HARRISON
The Beatles
Flestir, sem lást
viö gitarlcik,
komast að raun
um, að hljóm-
plötuupptökur
stundum
fyrirvaralaust og
V ji verður þá að
M liljóðrita eitthvert
£ ]■ lag í miklum
J flýti. Síðar, þegar
M þeir byrja að
leika sama lagið
,'á hljómleikum, fá þeir oft allt aðra
hugmynd um túlkunina og eru mið-
■ur sín, þegar þeir hafa hlustað á það,
,sem þeir hafa leikið inn á plötuna.
rAð minnsta kosti kemur þetta oft fyr-
ir rnig. Ég velti því alltaf fyrir mér,
hvers vegna ég spilaði ekki gítar-
sóló öðruvísi á plötunni.
Við höfum aldrei haft það fyrir sið,
að einhver tiltekinn í hljómsveitinni
spili alltaf sóló, þótt ég sé opinberlega
kallaður sólogítarleikari. Við gætum
þess alltaf, að gítararnir verði ekki of
hávaöasamii:, þegar einhver er að
syngja — það er mjög þýðingarmikið.
Skrúfaðu niður„ þegar einhver er að
syngja. Við John skiptumst oft á um
að spila sóló. t>að fer líka bezt á því,
að hann spili sjálfur sóió í þeim lög-
um, sem hann hefur samið og útsett
sjálfur. Ég vildi ráðleggja þeim. sem
lengra eru komnir. Ef einhver spilar
eitthvað. sem þéx finnst fallegt, skaltu
læra það. Það skiptir ekki máli. þótt
það sé slæmt. Læröu það samt til þess
að þú vitir, hvað þú átt að forðast-
Ég geri það nú.
KEITH RICHARDS
The Rolling Stones
Það er aðeins eitt
ráð til þess að fá
góðan tón út úr
gitarnum og það
er að ganga úr
skugga um það,
að magnarinn sé
fyrsta flokks.
Góður gítar og
umfram allt góð-
ur magnari hafa
óendaniega mik-
ið að scgja. Ég
hef ekki trú á því, að byrjendur græði
á því að fá tilsögn. Maður lærir að-
eins það, sem einhver gamaldags dúll-
ari viil að maður spili. Enginn getur
kennt manni músik. Annað hvort hef-
ur maður hana í sér eða ekki. Bezta
ráðið, sem ég get gefið byrjendum, er
þetta: Byrjaðu ekki á þessu, fyrr en
þig langar raunverulega til þess. Þú
þarft að hafa slíkan áhuga, að þú not-
ir hverja fristund til þess að kroppa
í gítarinn. Ef þú ímyndar þér, að þú
sért orðin einhver stjarna þegar i stað,
skaltu strax hætta þessu!
MIKE PENDER
The Searchers
Sá, sem hcfur ein-
sett sér að verða
góður gítarleik-
ari, fær þetta ráð
frá mér: Fáðu
þér tilsögn þegar
í staðl Ég gerði
það aldrei og hef
alltaf séð eftir
því. Ef þú leggur
þig allan fram —
og að læra eitt-
hvað er að leggja
sig allan fram — VERÐUR þú að fá
þér tilsögn. Æfingin er þýðingarmikil.
Ef þú hefur ekki þolinmæði eða brenn-
andi áhuga á að æfa þig er ég hrædd-
Ur Um að þú síglir fljótt í strand og
gefist upp. Hlustaðu á beztu hljóm-
plötur og þær verstu. Beztu? Ja, Bítl-
arnir eru mjög, mjög góðir hljóðfæra-
leikarar. Þeir hafa einhvern bezta, ef
ekki albezta hljóm á hljómplötum í
Bretlandi fyrir þessa tegund tónlistar.
DAVE DAVIES
The Kinks
Það er mjög erf*
itt að skilgreina
hlutverk sólógít-
arleikara í ,,beat“
hljómsveit, því að
músikin skapast
á því andartaki
sem hún er leik-
in. Þegar við er-
um í upptökusal,
hef ég ekkertfyr-
irfram ákveðið í
huga, sem ég ætla
að leika. Þar til rauða ljósið kviknar,
veit ég í rauninni ekki, hvernig ég
mun spila. Undantekning er lagið
,.Tired Of Waiting For Yoy“. Þegar það
var hljóðritað, hafði ég áður fundið
upp þessa skrykkjóttu hljóma í byrj-
un lagsins. Fáðu þér tilsögn, ef þú
ætlar að læra að leika á sólógítar, en
taktu ekki mikið mark á því, sem
kennarinn vill að þú spilir. Ef til vill
er betra að hafa undirstöðukunnáttu
í píanóleik til þess að kynnast þeim
lögmálum, sem músikin lýtur, og taka
síðan til við gítarinn. Að lokum þessi
ábending: Gítarkennarar geta verið
skaðlegir.
TONY HICKS
The Hollies
Sumar hljóm-
sveitir — til
dæmis Bitlarnir
og Rollingarnir —
hafa engan á-
kveðinn sólógit-
arleikara. Þótt
George Harrison
sé neíndur sóló-
gitarleikari Bítl-
anna, spila Jolin
og Paul oft sóló.
Við erum ekki
hrifnir af slíku fyrirkomulagi. Á
hljómleikum höfum við aldrei rhyth-
magítarleikara með í spilinu — okkur
finnst rhythmagítarinn ekki falla inn
í heildina. Hann er bara fyrir. Mér
er ánægja að segja frá því, að marg-
ir hafa orðið til þess að hrósa okkur
fyrir hinn hreina hljóm okkar. Ég
^ygg. að hinn hreini hljómur sé mest
að þakka fjarveru rhythmagítarsins.
Sjálfstæður stíll er nokkuð, sem sóló-
gítarleikarinn öðlast. Það kemur smám
saman af sjálfu sér. Annars hafa all-
ir sínar eigin hugmyndir um það, hvað
sé góð tónlist. Ég er ekki á sama máli
og Keith Richard, sem hvetur byrj-
endur í gítarleik til að forðast tilsögn.
Ég lærði í tvö ár á konsertgíar, og
það hefur orðið mér að miklu liði.
HANK MARVIN
The Shadows
Ég er að læra að
lesa nótur núna.
Það er stór-
skemmtilegt!
Ymsir kynnu að
segja, að slíkt
væri ekki nauð-
synlegt fyrir gít-
arleikara eins og
mig. og það er
hverju orði sann-
ara. En oft er það
svo, að það, sem
er ekki verulega mikilvægt, er
skemmtilegast. Það hefur veitt mér ó-
Framhald á næstu síðu.
(-----------------------------N
Stiörnublik
Fregnir herma, að Bob Dyl-
an hafi gengið í hjónaband
nýlega. Sjálfur er hann
þögull sem gröfin, þegar
þessi mál ber á góma .. The
Pretty Things hafa nú
fengið nýjan trommara. Sá
heitir Skip Allan og tek-
ur við af Viv Prince. Skip
hefur oft aðstoðað við
plötuupptökur hjá Ivy
League, Donovan og Them
.. . Ray Daviees (Kinks)
hyggst taka sér þriggja
mánaða hvild innan tíðar.
Hann segist ætla að nota
tímann til að helga sig tón-
smíðum. Hann hefur látið
svo um mælt, að honum
dauðleiðist ,,pop“ músik . .
Nýjasta lag Rollinganna
heitir „As tears go by“.
Lagið er eftir Mick Jagg-
er og Keith Richard, en
þeir sömdu það upphaflega
fyrir Marianne Faithfull,
sem söng það á plötu fyrir
einu ári. Nú er það Mikki
sem syngur með aðstoð
strengjakvartetts, og á
þetta að vera svar Rolling-
anna við Yesterday Bítl-
anna. Lagið var hljóðritað
í Hollywood —- á sama stað
og lögin Satisfaction og Get
of my cloud ... Hljómplöt-
ur Hermans Hermit's hafa’
á einu og hálfu ári selzt í
18 milljón eintökum. Her-
mann & Co hafa nú lokið
við að leika í tveimur kvik-
myndum á vegum Metro
Goldyn Mayer í Holly-
wood. Önnur kvikmyndin
nefnist „There is no place
like space“ og er lag úr
þeirri kvikmynd á tveggja
laga plötu og heitir A must
to avoid . . . Hermit merkir
einsetumaður . .. Bítla-
hljómsveitin The Cardinals
frá London segist eiga
heimsmetið í spilaúthaldi.
Þeir spiluðu 102 klukku-
stundir og 23 mínútur —
stanzlaust!
__________________________________'
VIKAN 20. tbl. g