Vikan


Vikan - 21.07.1966, Side 34

Vikan - 21.07.1966, Side 34
•a; / Rolf 3ohansen & Company - Laugaveg 178 áleit hann alls óhæfan til að um- gangast fólk. Alec Barr sat einn í stúku hús- bóndans. Næstum allir reyndu eitthvað að pota í kálfana. Tveir atvinnunautabanar sýndu listir sínar og lokkuðu kálfana frá hestamönnunum með skikkjum sínum. Húsbóndinn spennti á sig leðurhlífar og sýndi liðlegar hreyfingar með skikkjunni, Tom- as bróðir hans lék hlutverk pica- dorsins og sýndi leikni sína með lensuna. Kálfarnir stóðu sig vel. Síð- asta kvígan tók 16 stungur áð- ur en hún gafst upp. Hún yrði örugglega sett á til undaneldis. Ég skil ekki, hugsaði Alec, hvað það er sem kemur mér til að vera svona andstyggilega rót- arlegur? Ég var ófyrirgefanlega ruddalegur við Don Juan við há- degisverðinn. Ég býst við því að þetta sé hálfgerð feimni á ó- kunnum stað. Mér þætti líka gaman að sjá einhvern þessara skrautklæddu drengja, ef þeir kæmust einhverntíma í kast við reglulega reiðan fíl .. Hann nuddaði úlnlið sinn sem var skemmdur eftir árás fíls, sem hann hafði orðið að berjast við með byssuskefti. Ég þarf að skrifa bækur, ég þarf að borga reikninga ... Ég hefi ekki tíma til að láta naut- in reka hornin í bakhlutann á mér. Ég man eftir leikkonunni, sem var að læra þennan leik og eyðilagði á sér andlitið. Það var heilmikil vinna að lappa það saman og ennþá er ekki hægt að taka af henni nærmyndir, nema frá vinstri hlið. . . . Fjandinn hafi þetta allt saman, hugsaði hann og saup á koníak- inu. Nú kom að aðalatriðinu, litla stúlkan frá Hollywodd, Barbará Bah-heen átti að sýna listir sín- ar og berjast við bola. Que tengas suerte, hvíslaði hann, gangi þér vel. . .. Barbara var stórfalleg, þar sem hún stóð á gulum sandinum á sviðinu. Fallega lagaður líkami hennar naut sín vel í þröngum fötunum. Hún lyfti öxlunum svo fagurlega löguð brjóstin komu vel í ljós, stuttjakkinn lyftist frá bakinu, um leið og hún sveifl- aði skikkjunni til að egna kvíg- una. (Kvíguna? Hún hafði að minnsta kosti nógu stór og hvöss horn til að rista hana í sundur frá nafla upp að hálsi). — Olé Barbará! Olé la senor- ita americana! Olé la actrix! brava! Allir 20 áhorfendur hrópuðu þegar Barbara stappaði fótun- um, einn tveir, einn tveir, hetju- leg eins og Manolete, sem var dáinn, egnandi kvíguna. (Bar- bara hafði mikla leikhæfileika og nú var hún að leika BlóS og sandur, aðra útgáfu). — Hæ! Hæ! Hæ! Hæ boli! Hann heyrði þjálfaða leikkonu- rödd hennar, eins og hún væri að kalla orð eftir Hemingway. Stórkostleg sena. Smellið af! Þarna kom hin hrausta kvíga. (Hornin 14 þumlunga löng og beitt eins og nálar. Örugglega 400 pund á þyngd og full af járn- spjótum). Barbara sveiflaði skikkjunni liðlega niður á við, beygði höfuðið og horfði niður á fætur sér um leið og kvígan kom, bölvandi á móti henni. Blóðið lak úr lensusárunum nið- ur bóginn og hún þreif með sér skikkjuna um leið og hún þeytt- ist framhjá. Svo hristi kálfurinn af sér skikkjuna og litaðist um eftir óvini. Og óvinurinn var til staðar. Grannvaxin og falleg í þröngum nautabanafötum, brjóstin svellandi undir hvítri skyrtunni, hún stóð þarna ein og óviss. — Bu-h-h! Þetta sinn var það kvígan sem öskraði. Gestgjafinn og bróðir hans hlupu inn á svið- ið með skikkjur til að leiða at- hygli kvígunnar að sér, en ekki nógu fljótt. Barbara hljóp til að komast að skýlinu, sem nauta- banar nota stundum til að bjarga sér á bak við. Hún hrasaði og féll þegar hún var rétt komin að því og kvígan var ekki sein á sér, beygði sig niður og risti þröngar buxurnar af henni um leið og hún skreið inn í skýlið. Bræðurnir lokkuðu kvíguna burt og Barbara lcomst út af sviðinu. Hún hafði misst af sér hattinn, buxurnar voru rifnar og sömu- leiðis skyrtan. Hún hafði dott- ið á andlitið, svo hún var skinn- laus á nefinu og sárið fullt af sandi. Hún var náföl og svo fór hún að gráta. Don Juan hljóp til hennar og vafði rauðri skikkju utan um hana. Alec skalf. Hann ákvað, að ef hún gæti fengið einhver föt til að komast í heim á hótelið, þá skyldi hann sjá um það að það yrði ekkert flamenco æði til morguns í þetta sinn. Hann hugsaði með sér að það væri ekki skárst að klifra upp tré, þegar verið væri að flýja undan villidýri, sárast var að renna niður. Það var löng leið til borgarinnar, heim á hótelið; og það var örugglega sniðugast fyrir hann að reyna að halda sér saman.... Vr Feröapistlar frá Búlgaríu Framhald af bls. 23. ferðalagi tröllatrú á honum og Volgunni, jafnvel þótt útlitið sé stundum dálítið svart. Og það bæt- ir um öryggiskenndina, að yzt 1 hverri blindbeygiu er stór spegill, 34 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.