Vikan


Vikan - 04.08.1966, Side 6

Vikan - 04.08.1966, Side 6
P. S. Parket og Jaspelin gólfdúkur - nýir litir. Einnig linoleum parket-gólfflísar í viSarlíkingu. HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830. Tveggja manna svefnsóíi og samstæðir stólar „MÁ BJÓÐA YKKUR SMÁRIT"? Vikan, Reykjavík! Hvað segir maður við fólk, sem bankar uppá og býður smárit frá einhverjum sértrúarsöfnuðum og er svo uppáþrengjandi, að það er plága að losná við það. Þó er það alls ekki ókurteist, heldur aðeins svo ísmeygilega ýtið og maður á eitthvað svo bágt með að æsa sig upp. — Með beztu þökkum fyrir einhver góð ráð. Vegmey. Engin þörf er að æsa sig upp og ekki heldur nein þörf að hlusta á málalengingar þessa fólks. Að- eins skaltu gera eins og biskup- inn ráðlagði mönnum gagnvart ákveðnum sértrúarsöfnuði: „vísa þeim á dyr kurteislega en einarð- lega“. BÍTLAR OG FEGURÐARDROTTN- INGAR. Kæri Póstur! Ég ætla að skrifa þér nokkrar línur, bæði til að þakka það góða í blaðinu og rífast yfir því, sem mér finnst miður fara. Ég vona að þú takir það ekki illa upp. Ég er hvað óánægðastur yfir því. að mér i'innst ekki nógu vel vandað til valsins á fegurðardís- unum ykkar nú orðið. Getur ver- ið að íslenzkri kvenfegurð sé að fara aftur, eða er kannski erfitt að fá stúlkur í þessa keppni? Nóg um það. Ég vona að þú tak- ir þetta ekki svo, að ég sé að skamma þig fyrir þetta, því ég veit að þetta er ekki þér að kenna. Leitt þótti mér að lesa ummælin um hljómleika The Hollies í 22. tbl. Þar slettir höf- undur saur og fullyrðir ýmislegt um fatnað og söngrödd o.fl. o.fl., eins og það væri fimmtíu til sjö- tíu ára gömul kerling, sem skrif- aði ummælin. Auðsjáanlega hafði höfundur ekki hundsvit á því sem hann var að skrifa um, né nokkurn áhuga á þessu áhuga- máli okkar unga fóksins. Ég varð öskureiður af að lesa þessa endaleysu. Jæja, þá er þessu rifrildi í mér lokið. Ég bið þig, Póstur minn, að skila því til Vik- unnar, að ég þakka af alhug allt gott sem í blaðinu hefur birzt. Það er svo margt, að það er ó- mögulegt að fara að telja það upp. Sem sagt. þakka fyrir allt. Að mínu áliti er Vikan bezta vikublaðið. Svo er það gamla spurningin: Hvernig er skriftin? Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. 17 ára Vikuvinur. „Englnn gerir svo öllum líki, og ekki Guð í Himnaríki", hefur ein- hver spakur maður sagt, og sannast það víst á kvenfólkinu, því enn mun Guði ekki hafa lukkast að skapa svo fallega konu, að allir hafi verið á einu máli um að róma fegurð hennar. Þetta á að sjálfsögðu við um feg- urðardrottningarnar okkar eins og aðrar, og er álit þitt á yndis- leika þeirra eitt dæmið um það. Bítlamúsíkin er víst ekki heldur alveg óumdeild. Skriftin er góð. „TÍMINN LÆKNAR SÉRHVERT SÁR . . ." Kæri Póstur! Ég sé að þú svarar stundum bréfum um persónuleg vandamál, svo að ég ætla að leyfa mér áð leggja eitt slíkt fyrr þig. Ég er tuttugu og þriggja ára og hef í næstum fjögur ár verið með sama manninum og raunar næstum búið hjá honum upp á síðkastið, þótt við séum hvorki gift eða hringtrúlofuð. En nú fyrir skömmu hitti ég annan mann, sem ég er orðin ofsalega ástfangin í. Hann er líka hrifinn af mér og vill giftast mér. Ég vil ekkert frekar en játa honum, en hinn vinur minn tekur sér þetta óskaplega nærri og segist aldrei framar muni líta glaðan dag, ef ég yfirgefi hann. Mér er mjög hlýtt til hans og á erfitt með að gera honum á móti, þótt ég elski hann ekki. Hvað finnst þér að ég eigi að gera? Ein með samviskubit. Sértu sannfærð um að þú elskir síðari vin þinn, sé ég ekki fram á áð þú getir gert annað skyn- samlegra en að játast honum. Ef þú segðir nei við hann og héldir áfram að vera með hinum, mynd- urðu áreiðanlega naga þig í liandarbökin út af því og það kæmi til með að hafa þau áhrif á sambúðina, að hvorugt ykkar hefði neina lukku út úr því. Og cf vinur þinn, sem þú vilt nú yfirgefa, er mjög svartsýnn á til- veruna í bráðina, þá sakar ekki 6 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.