Vikan


Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 22

Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 22
Og Ulffhildup ffékk ffull umráð yffir hlóöun- um, og eldívið f þær, eldur eöa glóö fært á mílli hlóöa, og ffór brátt að rjúka hressi- lega úr báöum eldhússtrompunum GREIN EFTIR ÓLAF ÞORVALDSSON TEIKNING HALLDÓR PÉTURSSON FORSPJALL Það eru liðnir nokkrir áratugir síðan ég fór mjög að hugsa um að minnast Úlfhildar með því að koma á blöð því helzta, sem ég minnist frá samveru- árum okkar. Þó hefur þetta dregist þar til nú, ef nokkuð verður nema til- ferðin. Ég held, að meginástseðan fyrir þessu framkvæmdaleysi, sé, í sannleika sagt sú, að ég hafi alltaf fundið vanmátt minn í því, að gera þennan þátt svo úr garði, að sam- boðinn yrði minningu hinnar löngu horfnu merkiskonu. Fari svo, að einhver, fyrr eða seinna sjái þessar minningar, eða heyri, er hezt að taka það strax fram, að hér er ekki mikils að vænta, þar eð söguna segir í rauninni tólf ára unglingur, sem „nú er orðinn aldinn að árum“. Þetta verða því bernskuminningar aldraðs manns, sem hann hefur ekki fyxri komið í Verk að færa á blöð. Þessi undan- dráttur er þó ekki sökum þess, að ég hafi ekki verið minntur á verkið. Að þeirri á- minningu verður bráðlega vikið. Auk utanaðkomandi áminninga, vissi ég, að ævisól mín var mjög farin að lækka á lofti, og ég veit því ekki „hve lengi er vinnu- bjart“, og því óráð, að draga lengur, ef eitt- hvað ætti nú úr verki að verða. Það er á stundum fleira en stórtíðindi, sem koma okkur á óvart, svo óvart, að við gleymum algjörlega líðandi stund. — Þann- ig hefur gamli svuntuhnappurinn hennar Úlfhildar ekki einu sinni, heldur í nokkur skipti á síðustu áratugum, komið mér á ó- vart, og þar með komið mér til að gleyma hinni líðandi stund, og á sinn hátt minnt mig á, á þennan dularfulla hátt, að enn átti ég ólokið við að minnast, á annan hátt held- ur en aðeins í eigin huga, konu þeirrar sem hnappinn átti, og alls þess er ég minnist frá samveruárum okkar Úlfhildar. Þessi hnapp- ur er það eina áþreifanlega, sem ég á til minningar um hana. Þessi hnappur hefur minnt mig á fyrri eiganda á þann hátt, að líoma upp í hendur mínar, eða orðið fyrir mér oft á síðari timum, þar sem ég átti hans ekki von og þá ævinlega þegar ég svipaðist að einhveriu öðru. Ég tel, að ekki þurfi neitt dularfullt að vera við tilflutning hnappsins, að þeim vist- flutningi hans höfum við hjónin, sennilega, annaðhvort eða bæði, staðið hverju sinni, þótt við gætum ekki munað það. Hvað sem um betta er, þá á þessi forni hnappur, með sínum mörgu áminningum, sinn þátt í því, að ég legg nú í það, þegar Úlfhildur hefur legið í gröf sinni í nær sjötíu ár, að koma á blöð nokkrum minningum mínum um líf Úifhildar, á hennar síðustu æviárum. T'm, sem næst fyrri helming ævi Úlf- hildar, get ég því miður lítið eða ekki sagt, utan það, sem manntöl, kirkju- og þó helzt húsvitjunarbækur þess tíma segja, og um það mun ég geta, þótt slitrótt sé. — Hnapps- ins verður lítillega getið síðar. LITIÐ YFIR LÍFSHLAUP ÚLFHILDAR Áður en lengra er haldið, verður reynt að gera hér lítilsháttar grein fyrir aðal sögu- persónu þessa þáttar, Úlfhildi. Mjög tak- 22 VIKAN V

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.